Ég veit ekki hvort ég eigi að þora að láta heimsku mína í ljós, en ég er búin að ákveða að taka áhættuna og treysti á að þið kæru lesendur (miðað við kommentafjölda hlýtur þetta að vera allstór flokkur -NOT!) missið ekki álitið á mér. Ef álitið er eitthvað þeas, eftir færslur síðustu vikna.
Ég og Jákup keyptum okkur uppþvottavél síðasta haust, þegar við fluttum inn í þessa íbúð. Okkur lá svo á að koma henni í notkun, að leiðbeiningum hennar var hent lengst inn í skáp ólesnum, og sáu ekki dagsljós aftur fyrr en í þessari viku. Síðan við keyptum hana er ég búin að kvarta undan því að hún þvoi illa, þurrki illa osfrv, og það nýjasta nýja var að uppþvottataflan var hálfóuppleyst í skúffunni þegar vélin var búin að þvo. Ég nennti þó ekki að gera neitt í því fyrr en prófi og verkefni var lokið, en fann þá bæklinginn góða fram. Þá komst ég að því að það á að setja 2kg af salti í uppþvottavélina!! Salt í uppþvottavél, aldrei hef ég tekið eftir mömmu og pabba gera það... Saltinu var alla veganna hent í, glansefni fyllt á, vélin þvegin tvisvar, einu sinni með vélahreinsiefni, og viti menn! Næst þegar ég þvoði, var allt glansandi hreint, þurrt og engir kalkblettir!:-D Ég á alveg ágætisuppþvottavél þrátt fyrir allt;-)
Hin nýja uppgötvunin hjá mér er, að ég á ekki að hætta við núverandi feril til þess að verða dagmamma. Það er alveg á hreinu. Jesús Pétur hvað mér finnst leiðinlegt að vera heimavinnandi húsmóðir. Stelpurnar eru samt yndislegar;)
Og viljiði svo kommenta á eitthvað annað en íslenskt málfar hjá mér??!