Sunday, January 25, 2009

Brúðkaup eftir 3 daga og fjölskyldan kemur á morgun! Spennan magnast! Hér er allt á hvolfi því við erum að færa húsgögn til, til þess að hægt sé að koma gestum fyrir á öll gólf:)
Við erum frekar löt og þreytt þessa dagana eftir yfirstaðna törn, og við tilhugsunina um komandi törn. En það er samt allt að verða tilbúið fyrir brúðkaup og annað.

Thursday, January 22, 2009

Dr. ásta

Einkunnir eru komnar í hús og það gekk alveg frábærlega! Jákup fékk 4 (svarar til ca 6.5-7.0) og ég fékk 10 (ca.9.0). Við erum í algjörum sælurús hér á bæ!:D

Sunday, January 18, 2009

Útskrift, brúðkaup, flutningar, ný vinna....

Kristina að bíða eftir mér, þegar ég var að klára prófið.
Litla fjölskyldan, ég nýkomin úr prófinu, búið að taka á móti mér með blómum og kampavíni!

Ég var byrjuð að skrifa svo langt komment við síðustu færslu, að ég ákvað að skrifa bara nýja færslu og segja frá því hvað er framundan hjá okkur -í smáatriðum. Það er svo margt að gerast!
Næstu dagar fara í snatt fyrir brúðkaup. Á morgun förum við Dóra og Jákup í bæinn að leita að kjól fyrir útskriftina og redda alls konar hlutum, m.a. þarf ég að versla fyrir kökubakstur, en ég ætla að baka brúðarkökuna sjálf:D Dóra ætlar að baka kransaköku, og hjálpa mér með hina kökuna. Seinnipartinn erum við að fara á námskeið fyrir komandi lækna og þær frænkurnar ætla að hugga sig á meðan. Þriðjudagur er dæmdur bakstursdagur til þess að æfa mig:)
Á miðvikudag er samtal við prestinn og prufugreiðsla og förðun. Á fimmtudag er ég að fara til læknis að láta fjarlægja fæðingarblett. Á föstudag á að taka lubbann á litlu prinsessunni! Greyið sér varla út úr augunum lengur fyrir hári, en hún fékk gjafakort í klippingu í jólagjöf frá ommu og abba, þannig að það er upplagt að nota það fyrir stóra daginn.
Fjölskyldan kemur öll á mánudaginn og hlökkum við mikið til! Þá verður kökubakstur í stórum stíl og kjóllinn sóttur og annars bara huggulegheit. Brúðkaupið er á miðvikudag 28., útskrift 30. og nýja vinnan byrjar svo hjá okkur báðum á mánudeginum 2.feb. Sama dag fer fjölskyldan heim, og við þrjú förum að skipuleggja flutninga á meðan við erum að venjast nýju tilverunni. Við flytjum í læknaíbúð í byrjun febrúar. Við erum aðeins byrjuð að pakka niður, en það er alveg skuggalegt hvað við getum sankað að okkur af rusli og dóti. Við ætlum að henda öllum glósum frá fyrsta hluta námsins amk, og losnum þá við að flytja allmörg kg með okkur! hehe:) Með hverju árinu getum við fyllt heilt herbergi í viðbót með dóti. Hugsa sér að þegar ég flutti til Danmerkur fyrir 8 árum síðan, átti ég húsgögn og dót sem fyllti eitt herbergi og fannst nóg um. Nú erum við í 110m2 íbúð, stútfullri af dóti. Hversu mikill peningur hefur ekki farið í þessi ósköp??

Saturday, January 17, 2009

Það er algjör hamingja að vera búin! En við erum svolítið þreytt eftir alla þessa spennu.
Fyrsta prófið var skriflegt með 15 verkefnum á 3 tímum. Það var gert ráð fyrir 12mín á hvert verkefni, sem voru mislöng, þannig að stundum var urðum við að halda áfram án þess að hafa klárað verkefnið og snúa svo aftur þegar það gafst tími eftir önnur verkefni. Það voru oftast 4 spurningar í hverju verkefni og oftast myndir eða hjartalínurit sem einnig þurfti að meta, þannig að það var mikil tímapressa. Það var því bara tími til að skrifa það sem kom fyrst upp í hugann, og iðulega gleymdist eitthvað.
Fyrsta munnlega prófið var á þriðjudag. Það voru 10 standar með prófdómara og leikarum sem léku sjúklinga. Stundum voru dúkkur, ef við áttum að gera kvenskoðun eða leggja þvaglegg. Einn standurinn var hjartastopp, med dúkku og 4 svæfingalæknum sem stóðu og gláptu á mann reyna að bjarga lífi þessarar vesalings dúkku:) Seinni dagurinn var á fimmtudag, einnig með 10 stöndum. Við fáum svo sameiginlega einkunn fyrir alla 3 daga. Það gekk allt í lagi í skriflega prófinu, fínt á þriðjudag og alveg meiriháttar vel á fimmtudag:) Um kvöldið fórum við út að borða með bekknum og skemmtum okkur vel. En fólk var ansi framlágt, og ég var farin heim um miðnætti. Þá gat ég ekki talað lengur fyrir þreytu!
Við skruppum í bæinn í gær, til þess að fara með Kristinu í tveggja ára skoðun og máta brúðarkjólana okkar einu sinni enn. Kristina er 91cm og 13kg. Flott stór stelpa. Og hún var ægilega ánægð með kjólinn sinn, snerist í hringi fyrir framan spegilinn og sagði Stina fín!!:D
Við fórum líka á kommúnuna að redda pappírum fyrir brúðkaup, á síðusta snúning, en við höfum bara ekki haft tíma til þess fyrr. Næstu dagar fara í að velja sálma, tala við prestinn, fara í litun og prufuhárgreiðslu og æfa mig í að baka brúðartertuna!

Sunday, January 11, 2009

Við Lina mætum hver annarri myglaðari kl.8 þessa dagana til þess að reyna að troða einhverju inn í hausinn á okkur, einungis til þess að eitthvað rjúki út í staðinn. Hmmm. Inn á milli missum við okkur í spenningi yfir því að eiga okkur bráðum líf á ný.
Það er augljóslega komið í ljós að það eru bæði kostir og gallar við það að eiga börn í svona lokasprettum. Kosturinn er sá að við verðum að fara heim seinnipartinn, leika með lego og elda mat, og getum ekki snert bækurnar fyrr en garmarnir eru sofnaðir. Þar af leiðandi er maður ekki með samviskubit yfir lestri allan liðlangan daginn eins og singlarnir. Svo er yndislegt að lífið snúist um eitthvað annað! Gallinn er sá að maður hefur enga stjórn á eigin svefni eða formi hvern dag, því barnið ræður því. Kristina er búin að vera frekar ómöguleg síðustu daga vegna þess að hún hefur verið með hægðartregðu og ekkert viljað borða. Hún vaknaði kl.1.30 í fyrradag og var vakandi til kl.5 og þar að leiðandi ég líka. Svo var bara málið að rífa sig á fætur kl.7 til þess að fara að læra. Hún svaf áfram litla tröllið. En allt í allt er enginn munur á einkunnum þeirra sem eiga börn og hinna. Alla veganna ekki síðustu ár. Í sumar voru meira að segja 2 af 4 hæstu nemendum mæður, og önnur þeirra einstæð. Þetta verður spennandi!:)
Um helgina erum við í fríi. Algjöru fríi. Mmmmmmmmm:D

Monday, January 05, 2009

Próf á morgun

Yes, þá er komið að því. Fyrsta próf á morgun og það eina sem við hugsum um er hversu ljúft það verður þegar þessu er lokið! Hlakka svo til að eiga mér líf á ný. Vinir okkar smituðu okkur (og alla hina sem voru með okkur hehe) af ælupest á gamlárskvöld og Dóra lagðist í valsinn 1.jan og ældi lifur og lungum í hálfan sólarhring. Við Jákup sluppum með skrekkinn, var illt í maganum og flökurt en ældum ekki. Ég er enn með magakveisur. Svo tók Kristina upp á því að fá 40 stiga hita í fyrradag og er enn með hitavellu, og það hefur því ekki verið mikið um svefn hér síðustu daga. Ég ætlaði að reyna að tæma hugann í kvöld og horfa á sjónvarpið, en Kristina er ekki á því að fara að sofa. Hún átti að fara til dagmömmunnar í morgun í fyrsta sinn eftir jólafrí, en var heima hjá Dóru í staðinn. Ætli hún verði ekki líka heima á morgun, hitinn er minni en ekki farinn.
Við ætlum að taka pásu frá lestri á morgun eftir próf, og förum seinnipartinn að hitta kokkinn að skipuleggja matinn fyrir brúðkaupið. Ég missi mig alltaf í að hugsa um brúðkaupið þegar ég á að vera að læra þessa dagana;)
15.janúar verður æði.