Já, ok, þetta kom ekki alveg svona út í Preview! Damn.
astatedda
húsmóðir í Rødekro
Sunday, September 25, 2005
Bornholm


Ég var klukkuð af Arndísi og þess vegna fylgja hér eftirfarandi gagnslausar upplýsingar um mig:
1. Mig vantar 2 tennur, eina framtönn og einn jaxl, og er með rammskakka neðrivör vegna þess að ég datt á andlitið úr 1,5m hæð þegar ég var 6 ára og missti allar framtennurnar í einu.
2. Vinkonur mínar stríddu mér á því að vera með grátt hár þegar ég var yngri og þess vegna hef ég þrálátt litað á mér hárið síðan. Ég er þó í verkfalli á hárlitun eins og er, og liturinn er alls ekki eins slæmur og ég hélt:) Ég fæ þó oft að heyra að það fari mér betur að vera dökkhærðari.....
3. Ég get engan veginn sungið, og Dóra systir bað mig alltaf um að steinhalda kjafti þegar ég byrjaði að syngja með útvarpinu í bílnum!
4. Ég kunni ekki einu sinni að sjóða kartöflur fyrr en ég flutti til Odense, en hef öðlast mikinn áhuga á matargerð síðan þá og mér er óhætt að segja að ég er orðin mun betri í að elda en þá;-)
5. Ég veit ekkert betra en að vera á kafi í spennandi bók, og er hundleiðinleg að hafa með í frí vegna þess að ég fylli töskuna mína af bókum og lít helst ekki upp úr þeim fyrr en allt er lesið!
Ég klukka Vigdísi, Dóru og Sigrúnu!
Og þá er það Bornholm:
Við lögðum af stað eftir skóla á miðvikudaginn, 2 svíar, 6 danir og ég. Þetta er 5 klst ferðalag frá Odense með lest og ferju, og við vorum búnar að skipta á milli okkur verkum með nestið eins og sönnum dönum ber. Þegar við komum til Rönne, sem er stærsti bærinn á Bornholm, tók pabbi hennar Anne á móti okkur með tvo bíla, og keyrði okkur heim til þeirra í heimabakað brauð og kaffi og þaðan í sumarbústaðinn þeirra hinu megin á eynni.
Fyrsta kvöldið vorum við afskaplega rólegar, drukkum einn bjór, spjölluðum og fórum að sofa, enda var klukkan orðin 12 þegar við komum upp í bústað.
Fimmtudag fórum við að sjá Hammershus, sem er stærsta kastalarúst í Norður Evrópu. Mega flott.
Þaðan fórum við til Allinge og röltum um, keyptum póstkort og segla á ísskápinn. Merete, Minna, Camilla og ég fórum í fiskbúð og keyptum okkur reyktan laks og reyktan makrel og átum með fingrunum því það á að vera Bornholmsk specialty. Við fórum líka í brjóstsykursgerð og keyptum að sjálfsögðu smá nammi. Þaðan fórum við til Gudhjem og borðuðum pönnukökur og ís og löbbuðum um höfnina. Sá bær er þvílíkt huggulegur og ég verð að koma þangað aftur á ferðamannatíma þegar allt er í fullum gangi. Þaðan löbbuðum við 4 heim, því Anne var bara á einum bíl. Það tók 1,5klst með smá eplastuldi á leiðinni. Trén hreinlega svigna af eplum og perum þarna, þau hafa ekkert við þetta allt að gera sjálf:)
Þetta kvöld borðuðum við allar kanínufóður, af því að tvær af stelpunum eru grænmetisætur, sem mér fannst óætt að mestu leyti...en ég stóð mig bara þeim mun betur í rauðvínsþambi! Við spiluðum mjög skemmtilegt spil og drukkum fullt af bjór þetta kvöld. Ég og Camilla keyptum okkur nefnilega fleiri tegundir af bjór til bjórsmökkunar og stóðum okkur ágætlega í þeim efnum á meðan við skíttöpuðum í þessu blessaða spili sem gekk út á að þekkja alla hina sem best. Sú sem vann var hálf edrú og dóttir sálfræðings. Við Camilla kennum sálfræðikunnáttunni um hversu vel hún las alla aðra, hún sem átti að þekkja okkur minnst! Við rústum þessu næst:)
Föstudagsmorgun byrjaði með þynnku hjá mér eftir 5 tíma svefn, en með sjóbaði hjá flestum hinna. Sumarbústaðurinn lá alveg niður við sjóinn, og það var 20 stiga hiti alla dagana. Algjör bongóblíða! Þegar allir höfðu borðað og sturtast fórum við til Rönne aftur. Við keyrðum 6 í bílnum og 3 hjóluðu þessa 2 tíma yfir eynna. Ég var ansi þreytt en það var gaman að sjá þennan gamla bæ. Það var svo komið að mér, Kamilla og Sandra að hjóla tilbaka seinnipartinn, sem ég var ekkert alltof glöð með sökum þreytu en lét mig þó hafa það. Ég vildi nefnilega frekar taka strætó yfir eynna:) En við lögðum af stað upp og niður brekkur inn í skóg og hjóluðum og hjóluðum og hjóluðum....... Þegar við komumst loksins út úr skóginum (við hjóluðum í 1,5klst inni í miðjum skógi og vissum ekki hvað sneri upp eða niður. Sáum líka fullt af bambi, m.a. eitt dautt sem hafði verið keyrt niður!) vorum við orðnar hundþreyttar, það var að verða dimmt og við vorum búnar að hjóla snarvitlausa leið og enduðum minnst 10km frá sumarbústaðnum. Þá vorum við svo pirraðar að við vorum við það að henda hjólgörmunum út í buskann og öskra! Við urðum hins vegar bara að drífa okkur af stað í rétta átt áður en það varð alveg dimmt, því það eru engir ljósastaurar úti á landi í Danmörku. Við spýttum í lófana og brunuðum af stað. Hefðum við verið 10mín lengur um að koma okkur í hús, þá hefði verið orðið aldimmt og við ekki séð rassinn á sjálfum okkur. Þetta tók 3 tíma. Jey. Við fengum hins vegar góðan mat og vín og spiluðum og spjölluðum þangað til ég fór fyrst í rúmið kl.23. Þvílíkt partyanimal!
Laugardag fórum við í sjóbað, til Svaneke, sáum fullt af keramik, glerblástur og aðra brjóstsykursgerð, miklu flottari en þá fyrri og margt fleira. Þetta var líka svakalega huggulegur bær. Þetta var hinsvegar stuttur dagur af því að við urðum að drífa okkur upp í bústað að þrífa áður en við keyrðum til Rönne aftur til að ná ferjunni.
Ferðin heim var fín. Við borðuðum restar eftir helgina, öllu var pakkað niður og étið á pappadiskum, aftur eins og ekta dönum sæmir. Við spiluðum forseta alla leiðina. En mikið var gott að koma heim til Jákup og sofa í eigin rúmi og þurfa ekki að hlusta á Merete tala upp úr svefni, hroturnar í Linda, eða smjattið í Siv! Hehehe, þvílíkar dömur;)
Þetta var þrælfín ferð í alla staði og við skemmtum okkur konunglega. Meira að segja í hjólreiðatúrnum framan af, þar kepptumst við um að hringja bjöllunni í hvert skipti sem það kom brekka, sem var ósjaldan!
Ég hélt að ég myndi vera dauðþreytt í dag eftir ferðina, og hafði ekki annað á dagskránni en að slappa af og lesa smá. En svo var ég svo hress að við J drifum í að þrífa öll gólf og gera klárt fyrir sófann sem er væntanlegur í vikunni, og svo fórum við Merete út að skokka! Við urðum að brenna einhverju af öllu jukkinu yfir helgina:)
Wednesday, September 21, 2005
Blak
Ég fór í BLAK á mánudaginn. Þar sem ég er að æfa, á sjúkrahúsinu, er blak komið á tímatöfluna eins og allt mögulegt annað og ég lét mig hafa það að fara í einhvern grunnskólann með stelpunum til að spreyta mig. Ég hélt að við værum bara með völl til ráðstöfunar í 1,5 tíma og myndum bara spila eins og við vildum, en......BWAAA....þarna var mættur þjálfari af holdi og blóði, fullt af blóðþyrstum, blakspilandi samnemendum mínum og okkur var svo tilkynnt að við ættum að keppa 8.okt!! Ég hef ss ekki spilað blak síðan í menntó, og þá var markmiðið að forðast boltann og hvað þá að henda sér á eftir boltanum niður á gólf! Fyrir það fyrsta kunni ég enga boltatækni, boltinn rauk bara í einhverja átt ef ég svo mikið sem snerti hann, og í öðru lagi varð mér ljóst að vandamál mitt með að loka alltaf augunum þegar það kemur bolti fljúgandi í áttina að hausnum á mér er ansi óæskilegt í þessum leik.... Ég og boltaíþróttir!
Ég var ss versti spilarinn þennan dag. En hey -það er æfing á hverjum mánudegi!:) Ég er bara ennþá með bláa og fjólubláa handleggi og harðsperrur í rasskinnunum, en þetta var samt mjög gaman. Það er aldrei að vita hvað getur orðið úr þessu;-)
Nú verð ég að pakka. Lestin til Bornholm fer af staðeftir 2 tíma! Jeyjey
Saturday, September 17, 2005
Ég fór í kickbox á fimmtudaginn með Merete. Það er ekki í frásögur færandi nema að stúlkan sú er ca.20kg þyngri og sterkari en ég, og í hvert skipti sem ég fer með henni, kem ég lurkum lamin heim og með marbletti um allan líkama! Ég er ansi aum núna.... Skil ekki hvað ég er að spá. En þetta er ansi gaman samt! Spurning um að para sig saman með einhverjum í eigin þyngdarflokki samt sem áður, þeas ef ég ætla að halda áfram að mæta. Bráðum get ég þóst vera fórnarlamb heimilisofbeldis ef ég held þessu áfram!
Fór í bíó í gær á myndina The constant gardener. Veit ekki alveg hvort ég sé að gera þetta viljandi í undirmeðvitundinni, en þetta er að verða að einhverju þema hjá mér. Ég sá myndina Hotel Rwanda um daginn, og báðar myndirnar fjalla um eymdina í Afríku og hversu létt vesturlandabúar taka á málinu, og jafnvel notfæra sér ástandið. Það er ágætt að vera minntur á það öðru hverju hvað maður hefur það gott:) Góð mynd. Eða það fannst mér. J er víst ekki alveg sammála, en hann verður líka alltaf pissed þegar fólk er vont í kvikmyndum. J er hæstánægður með að sjá bara Kill Bill og Van Helsing og álíkar vitleysur.
Minnispunktur: Ekki horfa á Schindlers list með honum!!!
Afmæli í kvöld hjá Pål, og skokk á morgun með Merete (spurning um að maður skelli sér í átak með Kristni bróður og félögum fyrst maður er á fullu hvort eð er!:). Annað kvöld förum við svo heim til David og Stine, ásamt Lene og Simon, til að horfa á myndir frá ferðinni í sumar og borða góðan mat. Huggó.
Í næstu viku fer ég til Bornholm með 9 vinkonum. Við erum búnar að fá lánaðan sumarbústað og ætlum að hjóla um eynna og detta í það í 4 daga! Ég hlakka mikið til! Loksins fær maður að sjá eitthvað landslag hérna í Danmörku:) hehe
Monday, September 12, 2005
Ég og Jákup, systir hans og vinkona hennar, fór í afmæli hjá Baldri og Gunnhildi kærustunni hans á laugardaginn. Það er langt síðan ég hef skemmt mér svo vel á djamminu! Ég var líka ansi vel í glasi og dansaði alla nóttina...;) Gaman þegar djamm heppnast vel! Takk fyrir mig;) Ég held svei mér þá að það hafi allir verið að skemmta sé þetta kvöld. Sigrún vinkona var að halda upp á 25 árin á Akranesi, Guðrún mágkona var að halda upp á sitt 25 ára afmæli í Reykjavík og Stebbi Örn átti líka afmæli þetta kvöld! Til hamingju með það öll sömul;) Ég fagnaði fyrir hönd ykkar allra hér í Odense, og leiddist það ekki ónei...
Vaknaði í morgun til að fara í skólann, druslaðist í sturtu og gerði allt klárt, en var allan tímann eitthvað hálf skrítin, gat varla haldið jafnvæginu og svimaði og var hálfóglatt. Það var ekki erfitt að sannfæra sjálfa mig um að þetta væri nógu góð ástæða til að halda sér heima fyrir í dag:) Ég sit því hér í mestu makindum og les Harry Potter og surfa á netinu! -En er ennþá jafnvægislaus.....skrítið.....Kannski var ég fyllri en ég hélt á laugardaginn -eftirköst?!? hmmmmm
Tuesday, September 06, 2005
Jebb, skólinn er byrjaður og það er bara stórfínt! Kominn tími til að herða sig í ræktinni líka.
Ég er alveg dottin inn í allskonar sjónvarpsþætti eins og venjulega á haustin; Top model, Paradise Hotel, ER, CSI..... Já, eitthvað verður maður að hafa fyrir stafni þegar það fer að dimma, ekki satt?:)
Ég veit ekki hvað það er með andlitið á mér, einhver æðri völd eru á móti mér þessa dagana. Fyrst var ég stungin af moskítóflugu og andlitið á mér bólgnaði upp öðru megin. Síðan fór ég til tannlæknis fyrir viku og hef varla getað borðað síðan fyrir verkjum og vakna á morgnana með þvílíka tannpínu að ég get ekki opnað munninn. Allt þetta út af sári aftast öðru megin sem er búið að mynda HOLU inn í kinnina á mér. Huggulegt, já ég veit. Og núna er ég (fyrir utan að vera enn sárkvalin þó ég reyni að nýta það í megrunartilgangi, hahaha) með risastóra SJÁLFLÝSANDI bólu á hökunni!! *Grenj*
