Þetta hefur ekki verið sólarhringur sem ég vil endurtaka neitt í bráð!
Kristina byrjaði á því að fá háan hita enn einu sinni í gær og tók í eyrun á sér. Ég hugsaði með mér að enn ein eyrnabólgan væri að byrja og fór að leggja plön fyrir komandi viku svo við Jákup kæmust eitthvað í tíma í skólanum. Góðar vinkonur mínar buðust til þess að passa garminn í 1 og 2 tíma svo við kæmust í skólann. Svo var veðrið svo gott að ég ákvað að skella mér út að skokka með Halldísi til þess að hlaða batterýin. Ég skildi ekkert í því hvað ég var slöpp í skokkinu, ég ætlaði varla að lifa af þessa 5km! Þegar ég kom heim var mér illt í maganum, en hugsaði ekkert meira um það, borðaði bara kvöldmat og fór í sturtu. Þegar ég var að reyna að læra um kvöldið, var mér svo óglatt að ég gat ekki einbeitt mér. Þannig að ég skellti mér bara í bólið kl.21.30, þar sem Kristina og Jákup sváfu nú þegar. Svo vaknaði ég kl.23 og ældi eins og múkki:( Ég skreið uppí aftur, sveitt og skjálfandi, en þá leið ekki nema hálftími þangað til Kristina byrjaði að æla. Við tvær skiptumst á að æla fram á nótt og Jákup sinnti okkur þangað til hann sjálfur fór að æla. Restin af nóttinni leið í hálfgerðu móki þar sem við hentumst á fætur með Kristinu á hálftíma fresti þegar hún gubbaði, og bunkinn af útældum sængurfötum, náttfötum, handklæðum og taubleyjum stækkaði ört. Kl.8.30 í morgun leið okkur svo hræðilega illa að við vissum hreinlega ekki hvað við áttum að gera! Við gátum ekki staðið upp og gátum því ekki sinnt Kristinu greyinu sem lá á milli okkar. Það var þvílíkur bardagi að standa upp til þess að ná í vatn eða hrein föt handa henni. Hún var ótrúlega góð, á milli þess sem hún gubbaði lá hún bara og hjalaði eða svaf. Hún drakk sem betur fer rosalega vel allan tímann, meira að segja svo vel að við þyrftum stundum að stoppa hana af því það endaði alltaf með uppköstum.
Marianna kom kl.14.30 með gosbyrðir og hjálpaði okkur með Kristinu, eldaði fyrir okkur súpu í kvöldmatinn og gekk frá í eldhúsinu. Við erum loksins farin að geta staðið án þess að það líði yfir okkur og erum hætt að æla. Ef ég hef einhvern tímann saknað þess að hafa mömmu og pabba nálægt, þá var það í dag!! Næst þegar gubbupest er að ganga ætla ég að loka mig af hérna heima með fjölskyldunni minni! Þetta er það versta sem ég veit. Ojbara.
Við förum sem sagt ekki mikið í skólann á morgun. Vonandi erum við samt hressari á morgun því ég verð að fara í gömlu íbúðina og þvo gólf, við skilum lyklunum af okkur á miðvikudaginn. Ef við náum þessu prófi eftir 2 og hálfa viku verður það kraftaverk!