Húsmóðir hvað?
Ég veit ekki hvort ég eigi að þora að láta heimsku mína í ljós, en ég er búin að ákveða að taka áhættuna og treysti á að þið kæru lesendur (miðað við kommentafjölda hlýtur þetta að vera allstór flokkur -NOT!) missið ekki álitið á mér. Ef álitið er eitthvað þeas, eftir færslur síðustu vikna.
Ég og Jákup keyptum okkur uppþvottavél síðasta haust, þegar við fluttum inn í þessa íbúð. Okkur lá svo á að koma henni í notkun, að leiðbeiningum hennar var hent lengst inn í skáp ólesnum, og sáu ekki dagsljós aftur fyrr en í þessari viku. Síðan við keyptum hana er ég búin að kvarta undan því að hún þvoi illa, þurrki illa osfrv, og það nýjasta nýja var að uppþvottataflan var hálfóuppleyst í skúffunni þegar vélin var búin að þvo. Ég nennti þó ekki að gera neitt í því fyrr en prófi og verkefni var lokið, en fann þá bæklinginn góða fram. Þá komst ég að því að það á að setja 2kg af salti í uppþvottavélina!! Salt í uppþvottavél, aldrei hef ég tekið eftir mömmu og pabba gera það... Saltinu var alla veganna hent í, glansefni fyllt á, vélin þvegin tvisvar, einu sinni með vélahreinsiefni, og viti menn! Næst þegar ég þvoði, var allt glansandi hreint, þurrt og engir kalkblettir!:-D Ég á alveg ágætisuppþvottavél þrátt fyrir allt;-)
Hin nýja uppgötvunin hjá mér er, að ég á ekki að hætta við núverandi feril til þess að verða dagmamma. Það er alveg á hreinu. Jesús Pétur hvað mér finnst leiðinlegt að vera heimavinnandi húsmóðir. Stelpurnar eru samt yndislegar;)
Og viljiði svo kommenta á eitthvað annað en íslenskt málfar hjá mér??!

14 Comments:
heheh kannast vel við þessa uppþvottavélasögu..við vorum smá tíma að finna út úr þessu líka!! Svo er líka gott að nota kalkfjerner í hana inná milli ;) sjáumst fljótlega :)
Til hamingju með nýjustu frænkuna. Hún er æði.
Ég hef aldrei heyrt þetta með saltið! Svo við getum þá verið ótrúlega vondar húsmæður saman HAHAHAHAHa.. Þarftu að gera þetta í hvert sinn? Eða bara fyrst?
Kveðja Helga Dröfn
Jei! Komments:)
Já nú skuliði heyra! í leiðbeiningunum stóð að það ætti að fylla á 2kg áður en maður notar hana í fyrsta sinn, og svo bæta á eftir þörfum. Og það var einmitt kalkfjerner í þessum þvotti sem ég splæsti á kelluna í gær:)
Við sjáumst í Europartý á morgun Hjördís!
Takk fyrir það HD, þú sérð hana eflaust á undan mér:( Hún er æði.
til hamingju med frænkuna, rosalega fín og glæsileg saga hja bródir thínum svona beint af fædingardeildinni. Fyndin tessi uppthvottavél, hef thetta med saltid i huga ef vid fjarfestum i einni.kvedja heiddis
Og hvar setur maður saltið???
Helga Dröfn
Ég er líka svona með leiðbeiningar, kíki helst ekki á þær. Þá er nú ágætt að búa með manni sem les ALLAR leiðbeiningar!:)
Takk fyrir thad Heiddís!
Saltid á ad setja í thess til gert hólf nedst í vélinni (amk í okkar vél), og á thví stendur SALT. Hehehe, hver er ad horfa nidur í botninn á vélunum??:)
Ég nenni einmitt ekki svona leidbeiningaveseni. Vandamálid er ad Jákup nennir thví heldur ekki;)
ehhhhm... við erum víst líka með svona salthólf á okkar vél :o Hingað til hefur það ekki verið notað en K er búinn að hella salti í það núna :D
Maður ætti kannski að lesa bæklingana, við erum búin að eiga okkar vél í rúm 4 ár og hefur einmitt fundist hún pínulítið skrítin á köflum. Það verður spennandi að sjá hvort saltið bæti úr því.
Hehehe gott að heyra að ég er ekki ein um þetta!:D
Hey - nú er ég farin að gá í mína vél..... bíddu....
HAHAHAHA það er líka svona á minni. EEEEENNNNNnnn ég kem ekki miklu salti í hólfið því það er fullt af vatni! Fylgist með því héðan í frá....
Helga Dröfn
Best að ég leggi mitt af mörkum í þessari umræðu;) þegar við keyptum okkar vél þá las Rúnar (ég er ekki leiðbeiningamanneskja) leiðbeiningarnar og við vorum mjög hissa á þessu salttali höfðum aldrei heyrt þetta áður. En mér skilst að þetta þurfi ekki á íslandi, bara í löndum þar sem er kalk og svona í vatninu.
sel það ekki dýrara en ég keypti það
Ég trúi því alveg, vatnið hér er allt öðruvísi en heima. Þú ert greinilega komin með netið þarna úti, á ekki að blogga?:)Vonandi eruð þið búin að koma ykkur vel fyrir!
Já gott að vera komin með netið heim!
Nei ætla ekki að stofna blogg, en er búin að skella vefdagbókinni inná síðuna hennar Karenar og ætla að nota hana til að babla um hvað við erum að bardúsa;)
Sæl frú húsmóðir:)
Já það kom víst fram neðarlega í umræðunni þetta með kalkið. Saltið er til að binda kalkið í vatninu.Þessvegna er ekki kalkhúð á því sem maður þvær í vélinni eins og þegar maður vaskar upp:) og maður á einmitt ekki að nota þetta á Íslandi. Það á að vera joðlaust salt, svo það má ekki vera venjulegt matarsalt, þarf að vera spes fyrir uppþvottavélar ;)
Já og til hamingju með frænkuna:)
Mbk,
Katla Þöll
Post a Comment
<< Home