Monday, May 12, 2008

Tannburstar og bað

Það verður að segjast eins og er. Dóttir mín er ekki óvitlaus! Í ljósi þess að það er hvítasunnuhelgi og flestallar búðir í Danmörku eru lokaðar, ákvað hún að henda tannburstanum sínum eða fela hann svo hún myndi sleppa við að fá burstaðar tennurnar í nokkra daga. Hún var burstuð á laugardagsmorgun og burstinn hefur ekki sést síðan! Hún fær nefnilega oft að bursta aðeins sjálf þegar ég er búin. Ég hef ekki grænan grun um hvar burstinn leynist, er búin að leita víða.
Annað tiltæki hjá dömunni var að taka ástfóstri við fingramálinguna sem ég keypti handa henni á laugardaginn. Lokin á dollunum eru svo litrík og flott, að hún vill helst taka þetta með sér hvert sem er. Ég reyndi að leggja litina til hliðar í smá stund í gær á meðan hún fór í bað, en lítil kríli skilja ekki hugtök á borð við "á eftir", "á morgun" osfrv. Það var því mikill harmleikur þegar átti að baða hana án litanna, og eftir smá stund gaf ég eftir og lét hana fá litina í baðið. Þá flutu dollurnar hinsvegar bara um allt og vildu ekki vera til friðs, og þá byrjaði harmleikur þáttur 2. Baðið var með öðrum orðum stutt í þetta sinn. Það þurfti að þurrka tárin:(

2 Comments:

At 5:05 PM, Anonymous Anonymous said...

Ekki óvitlaus = vitlaus

Er ekki ljótt að segja svona um dóttur sína ;)

Þetta er snilld, minnir mig á Gabríel hans Stebba, hann faldi víst dót heima hjá honum og sótti aftur að vild án þess að Stebbi kæmist nokkurn tíman að því hvar hann feldi.

KT

 
At 7:59 PM, Blogger Ásta said...

Þú segir nokkuð! Það er þó hægt að efast um vitið, þegar litið er á hvernig hún brást við að litirnir flutu í burtu frá henni í baðinu;)

Ég fann tannburstann, hann var undir einhverjum tímaritum, sem hún var búin að róta fram...

 

Post a Comment

<< Home