Sunday, January 23, 2005

Gunnsi 17

Helgin er búin að vera viðburðarlítil, ég er búin að sofa svakalega mikið, þreytan situr eitthvað í mér eftir síðustu viku. En ég bætti úr því í dag. Vegna þess hvað við erum eitthvað auralítil þessa dagana ákvað ég að nota þau hráefni sem ég átti og baka brauð. Þannig að ég bakaði 2 brauð og 4 pizzabotna til að hafa í frystinum, og fyrst ég var byrjuð þá bakaði ég líka tvær sortir af muffins. Namminamm... Svo klippti ég Jákup, hann var ánægður með að losna við lubbann!
Gunnsi bróðir átti afmæli á fimmtudaginn, hann varð 17 ára! Svona erum við öll að verða gömul. Svo tók hann sig til og fékk grand mal flogakast á föstudaginn og var fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl. Hann missti meðvitund og beit sig í tunguna greyið, og var víst vankaður allan daginn eftir líka. Þannig að það var pantaður tími fyrir hann hjá taugasérfræðingi í vikunni til að skoða þetta mál betur. Vona það besta.

Saturday, January 15, 2005

Við Jákup vorum nú ekki atorkusöm framan af í dag, hann svaf til að verða 12.30 og ég surfaði á netinu á meðan og dinglaðist um í náttfötunum. En svo dröttuðumst við í föt og fórum út í Netto og versluðum inn fyrir helgina. Ég held nefnilega kjaftaklúbb á morgun fyrir íslensku stelpurnar og ætlaði að baka eina köku og ýmislegt annað. Svo skellti ég kökunni í ofninn og fór að kíkja í kringum mig. Það er nefnilega svolítið skondið hvernig maður gengur frá hlutunum fyrst þegar maður flytur í nýja íbúð, og svo fá hlutirnir bara að standa þar af því að maður hættir að hugsa um innréttingar á íbúðinni eftir smá tíma. Nú er eitt og hálft ár síðan við fluttum hingað og prentarinn hefur fengið að liggja á gólfinu þangað til í dag, en þá fluttum við eina kommóðuna til svo að prentarinn gæti staðið þar í staðinn. Svo boraði ÉG göt í veggina og setti upp tvær myndir. Og fyrst við vorum að þessu þá þrifum við aðeins líka....gott mál.
Í gær vorum við boðin heim til Lene og Simon að borða. Við fengum nautalundir og kartöflur sem var rosalega gott. Jákup iðaði alveg hreint, hann langaði svo að fara að djamma og reyndi allt sem hann gat til að lokka okkur hin með sér, en allt kom fyrir ekki. Lene fór inn að sofa kl.23 og við hin horfðum á Blade II í sjónvarpinu (ég sofnaði og Simon geispaði allan tímann). Þannig að minn var mjög glaður þegar Rúni hringdi í dag og bað hann um að koma út að djamma með strákunum í kvöld. Ég ætla hins vegar að njóta þess að fá að slappa af og lesa bók í friði án þess að vera sökuð um að vera anti-social allt kvöldið!:)

Thursday, January 13, 2005

Jæja best að láta aðeins í sér heyra!
Það vóx (vá hvað þetta hlýtur að vera vitlaust orðað!) mér svo í augum þegar ég sá ársyfirlit hjá svo mörgum á blogginu. Ég vissi ekki hvar ég ætti að byrja... En ég ætla að sleppa því, enda engir stórviðburðir á árinu sem leið hjá mér, nema að ég eignaðist lítinn frænda! En það þarf nú ekki að taka það fram eins og ég nefni hann oft:)
Ég er sem sagt löngu komin heim til DK og er eins og er með flensu sem ég smitaðist að sjálfsögðu af í vinnunni! Það er stórhættulegt að hanga allan daginn á spítala og hjá heimilislækni á þessum árstíma! Stór hluti læknanna á deildinni voru veikir þegar ég mætti fyrsta daginn á lyfjadeild. Góð byrjun.
Áramótaheitið mitt: Að yfirdráttarheimildin minnki í ár frekar en hitt. Það hefur nefnilega ekki gerst í nokkur ár..... Ég er að fara að hitta bankaráðgjafann minn as we speek til þess að gera plan til að standa við þetta! hehe