Heimferð
Við lendum í Keflavík kl.14 á morgun. Búumst við móttökunefnd með blómvendi og fána:)
Mikið verður gott að sjá mömmu og Gunnsa og Teddington og Kristinn og Pálínu!
Verð í síma 5874454 til 3.júlí:)
Tútillú
húsmóðir í Rødekro
Við lendum í Keflavík kl.14 á morgun. Búumst við móttökunefnd með blómvendi og fána:)
Það var svo mikil rigning, þrumur og eldingar, að hátíðarhöldum var frestað fram á næsta sunnudag! Er það ekki týpískt 17.júní veður?:) Við keyptum bara íslenskt nammi og fórum aftur heim.

Trúiði þessu?? Hvernig getur tíminn verið svona fljótur að líða?Ég er búin að vera í nokkra daga að reyna að koma þessu í orð. Ég átti að eignast litla bróðurdóttur. Litla frænka mín fékk ekki að lifa. Hún fékk nafnið Emma, sem mér þykir afskaplega fallegt. Ég er svo glöð að vera til á þessum tíma, þar sem allt er mögulegt, og ég gat fengið sendar myndir af henni þótt að ég sé hinum megin Atlantshafsins. Hún var alveg ótrúlega fullkomin og svakalega lík stóra bróður sínum. Fallega litla stelpan sem við hefðum elskað svo mikið. En við gleymum henni aldrei. Elsku bróðir minn, Guðrún og Teddi, þetta er harður heimur.

Hér er svo heitt að það er engu laginu líkt! Í dag var yfir 30 stiga hiti:) Ég fagnaði í undirmeðvitundinni, enda svo djúpt gróið í mann að því heitara því betra! En meðvitundin bölvaði hitanum af því að litli strumpurinn minn skilur ekkert í þessu og getur varla sofið né borðað:( Auk þess get ég ekkert legið í sólbaði með hana með mér, þannig að við erum bara í skugganum úti í garði saman. Í gær var allur mannskapurinn í húsinu okkar saman kominn úti í garði þar sem við borðuðum saman hádegis- og kvöldmat, spiluðum og lágum í hengirúmum. Voða kósý. Það er samt altaf auðveldara að fá krílin til að sofa í garðinum þegar hann er tómur, þannig að við fögnuðum því að kominn væri virkur dagur í dag! Við Jákup fylltum lítinn bala af volgu vatni í gær og leyfðum Kristinu að busla í honum. Okkur fannst við voða sniðug, en hún nennti því ekki til lengdar, vildi bara brjóst. Þau eru í miklu uppáhaldi hjá henni. Ég sé fram á að vera með hana á spena til þrítugs:-o Hún vill helst liggja á brjósti 6 sinnum á nóttu, og skynsemin segir mér að fara að stoppa þetta, en þegar maður er að leka niður úr þreytu mörgum sinnum á nóttu, gerir maður hvað sem er til þess að fá að sofna aftur.....