Tvífarar?

Kristina dúllurass
Vinkona hennar Helgu vinkonu minnar átti stelpu í Svíþjóð 17.des, daginn eftir að Kristina fæddist. Hún var þó ekki sett fyrr en 12 dögum seinna eða svo, og ég átti 11 dögum eftir settan dag, þannig að það er smá stærðarmunur á þeim. En ég rakst á síðuna þeirra fyrir nokkrum dögum síðan og fannst alveg sláandi mikill svipur með þeim! Það er reyndar erfitt að finna myndir sem sýna það, en við foreldrarnir þekkjum svipina þeirra og erum sammála um að um tvífara er að ræða:-) Svo eiga þær næstum því sama afmælisdag. Það er ekki sólarhringur á milli þeirra. Þær eiga kannski eftir að vera saman í bekk einhvern tímann í framtíðinni? Stokkhólmsprinsessan á eftir að fá nafn, og bíð ég spennt eftir að heyra hvað hún á að heita...ég veðja á Kristín!:)

