Gleraugu og vegabréf
Búin að kaupa tvenn gleraugu! Ég byrjaði á því að fara í 2 dýrar verslanir og fann ein gleraugu sem komu til greina í hvorri búð. Önnur kostuðu ca.5000 og hin 3500kr á tilboði. Svo fór ég í gær í þriðju búðina, þar sem var tilboð, 2 fyrir 1. Ég fékk tvenn gleraugu fyrir 2600kr:-D Fór í sjónmælingu í dag, og nú bíð ég bara spennt eftir sms sem segja að gleraugun séu tilbúin! Jákup var ekki alltof hrifinn af öðrum gleraugunum, en ég og konan í búðinni vorum sammála um að ég yrði að fá þau! Þegar maður fær svona gott tilboð, þá er hægt að kaupa ein svolítið flippuð, ekki satt? Ég set þau þá bara upp þegar ég vill ekki að hann kyssi mig:-)
Við erum einnig búin að panta vegabréf handa Kristinu. Ég var spurð að því hvenær tengdaforeldrar mínir eiga afmæli til þess að sanna að hún sé dóttir mín. Ég varð nánast stressuð yfir því að geta kannski ekki svarað! (Fyrir tilviljun átti tengdapabbi afmæli í gær, og ég er nýbúin að heyra kennitöluna hennar tengdamömmu, hehe.) Konan leit líka niður í vagninn til þess að bera hana saman við passamyndina. Persónulega finndist mér erfitt að gera það þegar barnið sefur í vagninum! Börn á þessum aldri líta öll eins út í annarra manna augum þegar þau liggja og sofa. Skrítinn þessi heimur, þegar maður þarf að gera svona ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að fólk ræni annarra manna börnum, eða sínum eigin!
Ég er búin að skrá mig á yoga námskeið fyrir konur eftir fæðingu, og skrá Kristinu í ungbarnasund. Það er þó smá biðlisti í sundið, þannig að ég veit ekki hvenær það losnar pláss.
Svo missti ég mig svolítið með visakortið í netbúðum með barnaföt. Það var janúarútsala:)
Hehehe, nóg að gera í að eyða peningum þegar maður er heimavinnandi!!:-D

