Monday, August 28, 2006

Teddi litli strumpur átti afmæli í gær, varð tveggja ára. Það var gaman að geta verið viðstödd amk einu sinni! Hann var þó ekkert hrifinn af þessu stússi, vildi helst ekki láta syngja fyrir og þóttist bara heita Gummi;) Við erum svo flutt heim til Kristins bróður þangað til við förum heim. Það verður þröngt á þingi í smá tíma, en við lifum það öll af. Við getum spilað Buzz á meðan:-)
Bumban heldur áfram að stækka og stelpan að sprikla. Hún lætur hressilega vita af sér þegar ég er að reyna að sofna á kvöldin, en það er ekki hægt að kvarta undan því, bara gaman að finna fyrir henni! Ég er búin að vera með stöðugan verk í hægri síðu í nokkra daga, held að hún sé að reyna að bora hausnum út... Ég gekk í vinnuna í morgun og fékk samdrætti áður en ég var hálfnuð. Ég er orðin meiri auminginn!
Mamma og pabi fóru til London um daginn og keyptu ýmislegt á litla stelpu, nú vantar okkur bara stóru hlutina! Ég held að þau hafi haft mjög gaman af:-)

Saturday, August 19, 2006

Ég er um það bil að ljúka rólegri vakt á Kleppi þar sem ég svaf á mínum græna meirihluta nætur. Ekki slæmt að fá laun fyrir það! Eftir það liggur leið mín heim til Kidda bróður að sækja hann og litla strump. Við ætlum svo að kíkja í heimsókn til mömmu og pabba og líta á afrakstur innkaupa- og skemmtiferðar til London. Mér skilst að þar leynist ýmislegt á litla prinsessu:)
Við erum búin að panta okkur miða heim til DK. Jákup fer 9.sept og ég 17.sept. Þetta er lengsta dvöl mín á Íslandi í 5 og hálft ár. Hvenær ætli þetta verði toppað?? Ég er nú samt að verða spennt fyrir því að koma aftur heim og byrja að undirbúa allt fyrir litlu manneskjuna. Og klára nokkur fög í viðbót. Krílið er officially orðið barn á dönskum mælikvarða, þeas hún á góða möguleika á að lifa héðan í frá ef ég skyldi eiga fyrir tímann:) Hún er ótrúlega spræk, er búin að sprikla mest alla vaktina í nótt.

Friday, August 11, 2006

Smá röfl

Ég er í vinnunni og hef nánast ekkert að gera! Tel niður mínúturnar þangað til ég er komin í langþráð helgarfrí:)
Mikið er leiðinlegt að reyna að ganga frá pappírsmálum!! Við Jákup erum búin að eyða stórum hluta sumars í að keyra á milli stofnanna og sækja um allt mögulegt, og alltaf fær maður mismunandi svör. Dæmi:
-Við sóttum um kennitölu fyrir Jákup og fengum að vita að það tæki 2 vikur. 6 launalausum vikum seinna kom kennitalan.
-Jákup fór í bankann að stofna launareikning um leið og kennitalan var komin. Þá var honum sagt að koma daginn eftir, kennitalan virkaði ekki. Daginn eftir kemur hann, þá eru nýjar reglur um stofnun reiknings, teknar í gildi þennan sama dag, sem þýðir að það tekur nokkrar vikur að fá reikning.... Ætli hann fái nokkur laun fyrr en á næsta ári?
-Ég fór í sónar og borgaði fullt gjald fyrir. Fór svo í tryggingastofnun til að fá endurgreiðslu, en var neitað og vísað til DK með íslenskan reikning. Þó stendur á heimasíðu LSH að norðurlandabúar eigi að borga niðurgreitt, og að TR sjái um að rukka heimaland.
-Ég fór í TR til að sækja um fæðingarstyrk. Strákurinn sem afgreiddi mig sagði mér að ég hefði ekki rétt á því. Ég las upp fyrir hann útprentaðar reglurnar af netinu. Hann skipti um skoðun. Hann vildi þá fá bunka af pappírum, sem ég og skilaði. Kvittunin frá 20vikna sónar var þó ekki nóg til að segja til um væntanlegan fæðingardag, heldur vildi hann fá staðlað blað frá ljósmóður. Ég fékk frænku mína, ljósmóður, til að redda mér slíku blaði, dagsetningin var lesin af sónarkvittuninni. Engin glóra.
-Ég er að vinna í að fá skattalegan heimilisfesti. Er búin að skila einni umsókn, fékk önnur svör frá öðrum starfsmanni sem segir þá umsókn ekki vera rétta og þarf því að endurtaka ferlið.

Þetta er nú meira ruglið. Ég vona að þetta sé að verða búið! Ég er með stakk af alls kyns kvittunum sem eiga eftir að rata á rétta staði, en verð að gera það á mánudaginn þegar ég er ekki að vinna á dagtíma. Þegar krakkinn fæðist tekur við önnur eins vitleysa til þess að fá rétt föðurnafn. jibbí!

Saturday, August 05, 2006

Sko mín dugleg, búin að bæta við linkum;) Ég er ss búin að búa til barnalandssíðu fyrir litla baunann (hún er auðvitað hálfur bauni, en leit líka út eins og lítil baun þegar við sáum hana fyrst)! Þar er að sjá einhverjar örfáar myndir, við skulum vera dugleg við að bæta við.
Eins og er er ég stödd á vakt á Kleppi, búin eftir klst. Jákup kom með mat handa mér og er sofnaður í rúminu...gaman að fá félagsskap, ha!
Við fórum og borðuðum sushi í gær með Kristni og Pálínu, bragðaðist með endæmum vel. Ég fékk mér að sjálfsögðu bara eitthvað sem ég má borða:) Svo röltum við í bókabúðir, ég var að leita að söngbók með íslenskum barnalögum. Ég er búin að gleyma öllum lögum! Eitthvað verður krílið að fá að heyra af fallegum söng frá móður sinni..:S En mér var tjáð að ný útgáfa af vísnabókinni væri í prentun, við bíðum spennt. Ég keypti hins vegar 2 gamlar Einar Áskels bækur, nostalgían í algleymingi. Ætli það sé ekki nokkuð langt þangað til þær bækur komast í notkun:)
Það er nokkuð tómlegt í Reykjavík þessa helgi og rólegt í vinnunni, en það er bara betra!

Wednesday, August 02, 2006

Ég er að passa hann Tedda litla strump á meðan mamma hans og pabbi eru í bíó. Við erum búin að lesa saman "Dimma dimma höllin" 5 sinnum og hinar ýmsu bækur aðrar. Svo lagði ég hann í rúmið með pela eins og hann er vanur og fór fram. Eftir smá stund fór hins vegar að renna upp fyrir mér að hann var alls ekkert að sofna og virtist verða hressari og hressari, þannig að ég leit inn til hans. Haldiði að hann hafi þá ekki verið búinn að hvolfa úr pelanum í rúmið og lá rennblautur í rúminu. Þá var ekki annað að gera en að skipta á öllu og lesa "Dimmu dimmu höllina" aftur!:) Ég held að hann sé sofnaður núna....
Ég þarf að taka nýja bumbumynd, hún er að stækka svo mikið þessa dagana. Og litla krílið virðist ætla að vera B-manneskja eins og pabbinn því það lifnar yfir henni á kvöldin og hún sparkar eins og óð sé frá kvöldmat þangað til ég fer að sofa:Þ
Jákup er á kvöldvöktum þessa dagana og ég á dagvöktum. Við sjáumst fyrst almennilega á fimmtudag eftir vinnu. Það eina sem hann sér af mér er þegar ég er að bulla í svefni þegar hann horfir á sjónvarpið eftir vinnu, og ég sé hann ekki nema hrjótandi þegar ég er að fara af stað á morgnana;-) Ég lifi greinilega í vinnunni í vöku og draumum, því ég var að tala upp úr svefni við einhvern hjúkrunarfræðing....á dönsku svo jákup skildi mig:-S
Annað sem ég hef verið að taka mér fyrir hendur er: Á föstudaginn fórum við Jákup út að borða með Súsönnu og Rodrigo, og ætluðum í bíó eftir það, en það var uppselt alls staðar. Við enduðum því heima hjá Kristni og Guðrúnu í bjór og spjall. Ég var með í að gæsa Helgu vinkonu á laugardaginn, sem var mjög gaman. Hún stóð sig eins og hetja. Við fórum m.a. í magadans og súludans. Mér fannst eitthvað vanta upp á þokkafullar hreyfingarnar hjá fílnum mér:) Á sunnudaginn fórum við í bíltúr að skoða Gullfoss í rigningu og miklu roki, og eftir það í mat til mömmu og pabba. Lambalæri klikka aldrei! Svona fjölskyldumatarboð klikka heldur aldrei, sérstaklega þegar kominn er svona lítill gaur eins og Teddi sem endalaust er hægt að hlæja að. Hann kemur á óvart á hverjum degi og er alltaf glaður!
Verslunarmannahelgi framundan. Við erum að vinna. En helgina á eftir erum við að fara í brúðkaup Helgu og Jóa, og ætlum að tjalda í Skorradal og gista þar eftir veisluna. Þá helgi er líka Simon félagi okkar frá Odense að koma á ráðstefnu til Reykjavíkur, og við stefnum á að gera eitthvað skemmtilegt með honum á sunnudeginum.
Þetta var nú ágætis pistill!