Saturday, June 24, 2006

Nú erum við ein í kotinu aftur. Kristinn, Pálína og Teddi voru hjá okkur í 5 daga og við erum búin að hafa það svo huggulegt. Borða mikið, tala mikið, labba mikið, versla mikið, hlæja mikið og spila:) Mikið er ég búin að hlæja að honum Tedda! Hann er algjör snillingur, talar og talar og er mikill húmoristi. Í gær fórum við svo saman til Köben í 30 afmæli hjá Hauk á Kagså kollegíinu. Það var rosalega gaman að sjá þau hjúin, Hauk og Írisi. Við fengum dýrindis lambalæri grilluð í holu og meðlæti og svo var djammað fram á nótt (nema ég og Teddi, ég var úrvinda eftir vikuna og skreið bara uppí:(...)
Svo þurfti ég að kveðja Kristinn og co á hlaupum af því að þau þurftu að ná lest. En það var ekki jafn sorglegt og venjulega, því ég sé þau aftur eftir viku!:-)

En nú tekur við smá lestrartörn fyrir síðasta prófið, og miklar pökkunarpælingar. Þetta er ansi langur tími og ég á eftir að breytast mikið í laginu á þessum tíma:S Bumban er óðum að koma í ljós og sumar buxur alveg á síðasta snúningi.
Best að njóta líka veðurblíðunnar þessa daga áður en við byrjum vinnutörn!

Friday, June 16, 2006

Lærdómsgenið hjá mér er eitthvað alvarlega gallað þessa dagana! Ég á svo erfitt með að setjast niður og einbeita mér, en þvinga sjálfa mig öðru hverju. Þetta hefst allt saman!
Við fórum í bæinn í dag og skoðuðum barnavagna og rúm og slíkt, til að mynda okkur skoðun á því hvað við viljum. Þegar við komum tilbaka í haust verður mikið að gera í bæði skóla og vinnu (til að vinna mér inn réttinn til að fá dagpeninga!) þannig að það er ágætt að vita nokkurn veginn hvað við viljum. Svo væri ekki slæmt að bera saman við úrvalið á Íslandi og verðið:)
Ég bíð spennt frétta af einni vinkonunni sem er komin á steypirinn. Hún er sett 17.júní en er búin að vera með samdrætti síðustu daga og aflýsti hádegismat með okkur vinkonunum í gær vegna spítalaferðar. Það verður gaman að fá að sjá eitt svona glænýtt:-) Maður verður alltaf hissa á því hvað þessi kríli eru lítil fyrstu dagana -NEMA þegar ég var viðstödd fæðingar á fæðingadeildinni í vetur! Þá var ég alltaf í sjokki yfir því hversu stór börnin voru sem komu út um þetta litla op!!!:-S Það fer allt eftir samhenginu sjáiði til;)

Monday, June 12, 2006

Við hjúin áttum yndislegan dag:) Fyrst sváfum við yfir okkur, eða aðallega ég, eftir svefnlausa nóttu. (ég var búin að gleyma því hversu erfitt er að venjast hitanum á nóttinni þegar það byrjar að hitna hérna fyrir alvöru!) Þá nennti ég ekki að druslast í skólann því það var bara einn fyrirlestur eftir. Við ákváðum bara að vera heima og læra. Ég skrapp til læknis og lét athuga blóðþrýstinginn og blóðprósentuna aftur, áður en haldið er utan, og það leit allt vel út. Þegar ég kom tilbaka var haugurinn ekki enn farinn að læra, þannig að við skruppum í göngutúr, borðuðum hádegismat á kaffihúsi hérna nálægt og versluðum í matinn á leiðinni heim. Við fórum líka til grænmetissalans og keyptum ananas, jarðaber og kirsuber! Mmmmm... Svo pöntuðum við miða í sirkus næsta þriðjudag fyrir okkur, Kristinn, Pálínu og Tedda og fórum svo út í garð í sólbað/lestur. Ég er búin að biðja Jákup um að fara með mér í sirkus síðan við kynntumst, og er rosa spennt!:)
Jákup heldur að það sé Ronaldinho í mallanum á mér, þannig að hann heimtar að þjálfunin byrji nú þegar og krefst þess að ég sparki fótbolta á milli í hvert sinn sem hann verður eirðarlaus. Ég lærði að skalla bolta eins og karlmaður í gær:) Í dag reyndi ég að læra að halda bolta á lofti meira en tvisvar, berfætt. Þjálfunin heldur áfram á morgun..;) Ég er samt búin að segja honum að það er verið að vinna í 3 bleikum peysum handa fótboltastráknum hans. Hann segir að þetta sé eintóm herferð á móti honum.
Svo kom Maríanna til okkar og við grilluðum úti í garði og fengum ávexti í eftirrétt. Við sáum einnig "White noise" -endemis vitleysa!
Og já, var ég búin að segja að það er 28 stiga hiti þessa dagana??:-D

Sunday, June 11, 2006

Ohhh, ég er að verða svo sólbrennd! Það er að koma sólgleraugnafar, og það liggur við að það sé far eftir bókina....:)
Allt húsið er búið að keppast við að liggja úti í garði og læra fyrir próf. Jákup leikur sér með fótbolta, eirðarleysin uppmáluð og vill að ég leiki við hann:-D
Mamma hans og pabbi komu í heimsókn í gær og við grilluðum úti í blíðunni. Góður matur, mmmmm...
Og svo eru bara 6 dagar í Kristinn og Pálínu og litla strákinn á tröppunni! Við hlökkum mikið til að fá þau og krossum fingur fyrir því að góða veðrið endist þangað til. Það lítur vel út í næstu viku amk:)

Wednesday, June 07, 2006

Við fórum í fyrsta sinn til ljósmóður í morgun og fengum að heyra skýran og hraðan hjartslátt:) Hún mældi líka blóðþrýstinginn hjá mér sem var 91/50! Ekki skrítið að mig skuli svima öðru hverju:-S
Ég er svo einbeitingarlaus þessa dagana að ég kem litlum sem engum lestri í verk. Ég stend mig að því að sitja og dreyma dagdrauma í staðinn fyrir að lesa um lifrarsjúkdóma. Svona hlakkar mig til að koma heim, byrja að vinna og hitta alla! Og svo finnst mér þessi meðganga líða voða hægt! Ég er orðin hundleið á að heyra að þetta eigi eftir að ganga svo hratt. Kristinn hitti höfuðið á naglann í fyndnu myndaseríunni sinni. KOMA SVO, vaxa og dafna!

Tuesday, June 06, 2006

Við erum komin með íbúð fyrir sumarið! Jibbý! Og gæti ekki verið hentugra eða á betri stað:) Íbúðin er á Eggertsgötu, og ég get labbað í vinnuna. Svo erum við rétt hjá bænum og honum Tedda mínum og mömmu hans og pabba:-D
Það er að styttast í allt. Heimsókn frá mömmu hans Jákups og pabba, Kristins og co, og svo heimkomu! Nú er ég sko spennt!
Fyrsta skoðun hjá ljósmóður er á morgun, spennó. Jákup var að hjóla af stað á næturvakt, þannig að hann verður ferskur kl.9 á morgun hjá ljósmóðurinni;) hehehe En hann vill auðvitað ekki missa af neinu, superdaddy;)

Monday, June 05, 2006

Hvítasunnan

Hér er svo fyrsta bumbumyndin, 13v 4 dagar. Þetta var fyrsti dagurinn sem ég fór virkilega að finna fyrir auknu umfangi:) En eins og Pálína segir við síðustu færslu, þá vakna ég yfirleitt með sama sem enga bumbu og svo vex hún fram á kvöld:) Ég þarf að finna teygju á töluna á buxnum mínum. Þær eru reyndar alveg í henglum, og J segir í hvert sinn sem ég fer í þær að ég eigi að henda þeim...

Annars var svo gott veður i gær, að við Jákup og Ívar skruppum í bíltúr til Kerteminde og borðuðum ís og spiluðum minigolf. Jákup var hinn stolti sigurvegari:

Svo fóru þeir í smá fótbolta á ströndinni eftir það:

Og pössunin gekk eins og í sögu. Tvíburarnir sváfu næstum því allan tímann og leyfðu okkur að horfa á Prison Break í ró og friði;)

Sunday, June 04, 2006

Í gær fórum við út að borða á stað sem heitir Olivia með Ívari og Stínu. Eftir það fórum við á Sharks að spila pool og svo á Casino að freista gæfunnar! Við vorum reyndar öll mjög skynsöm og komum út aftur með sömu upphæð og við fórum með inn. En það var mjög gaman að prófa að spila blackjack;) Svo dreymdi mig að ég væri að spila í nótt. Það kannski leynist lítill spilafíkill þarna inni? Nei, held ekki:) Kvöldið var hins vegar virkilega skemmtilegt!
Ég átti í fyrsta skipti í erfiðleikum með að vera í gallabuxunum mínum. Það er komin bumba yfir nótt, að mér finnst! Það hjálpaði að sjálfsögðu heldur ekki að borða yfir sig af góðum mat;)

Kvöldið í kvöld á bara að vera í rólegheitunum. Eða kannski ekki. Góð spurning. Við erum nefnilega að fara að passa tvíburana Hjalte og Tobias, á meðan mamman og pabbinn fara út að borða og í bíó. Þetta verður spennandi! Við höfum oft passað þá í klst í einu, og hjálpað Lene að fóðra þá og koma í rúmið, en aldrei verið með þá ein svona lengi. Þeir þekkja okkur mjög vel, þannig að þetta hlýtur að ganga:)

Svo er bara frí á mánudaginn. Algjör lúxus. mmmmm

Thursday, June 01, 2006

13 vikna sónar

Fyrir ömmurnar og afana:)