Wednesday, November 26, 2008

Best að fá smá fjarlægð frá þessari nefmynd:D Í staðinn ætla ég að setja hérna inn mynd af vinkonunum Kristinu Ósk og Guðrúnu Margréti. Við fórum að heimsækja Ragnheiði og Finn á sunnudaginn og þær voru svona líka sætar saman stöllurnar!
Það er alveg brjálað prógram næstu daga, og við í einni af stærstu vikum annarinnar. Á morgun er ég í lesgrúppu til 16, þaðan bruna ég beint með fjölskyldunni í 1 árs afmæli, og aftur í lesgrúppu kl.20. Á föstudag er lesgrúppa eftir skóla, og svo jólafrokost með fíló. Á laugardag förum við fjölskyldan til Köben að halda uppá afmælið hennar Annie og komum ekki tilbaka fyrr en á sunnudag eftir dag í tívolí. Þetta verður næstum því síðasta truflun vetrarins, en í næstu viku fer ég í lokamátun á brúðarkjólnum og með Kristinu til eyrnalæknis. Svo er 2ja ára afmælið hennar Kristinu eftir bara rúmar 2 vikur:D Svo er líka jólaball í legestuen á miðvikudag. Það er alltaf eitthvað!
Kristina er búin að vera syngjandi kát síðan ég sótti hana í dag. Hún er búin að hlaupa um og söng fyrir mig á meðan ég eldaði mat. Hún var að uppgötva sólgleraugun sín aftur og bangsarnir skiptast á að fá að máta þau núna:)

Wednesday, November 19, 2008

Why???

Oh my god. Þetta er hryllingur. Hlakka óendanlega til að fá umbúðirnar af á föstudaginn! Er þó ekki með köfnunartilfinningu, en það blæðir í hvert sinn sem ég hreyfi mig, og það var ekki gott múv að hjóla heim í gær;) hehehe Ég laug að hjúkkunum og sagði að það kæmi einhver að sækja mig. Þær voru að hafa áhyggjur af því að ég ætlaði að keyra heim! Ég neitaði líka að bíða í 5klst eftir því að það kæmi læknir að útskrifa mig. Ég sagði hjúkkunni að ég væri að fara heim og ég hitti engan lækni. Ég er versti sjúklingur sögunnar:S Svo kom einhver vesalings nemi og ætlaði að taka æðalegginn af mér, en vissi ekkert hvað hún var að gera, þannig að ég gerði það bara sjálf.

En ég sit sem sagt heima og horfi á sjónvarp að mestu. Reyni að læra inn á milli, en það er erfitt að horfa niður á við, hvað þá einbeita sér. Lina kom við í dag og hló að mér, svo fórum við yfir nokkur case. Stóra spurningin er hvort ég eigi að leggja í að fara í skólann á morgun? Atkvæðagreiðsla takk.

Monday, November 17, 2008

Kristina "tiss"

Kristina fór með mér á klósettið í gær og horfði áhugasöm á mig þegar ég pissaði. Hún reyndi ma að færa mig aðeins til svo hún sæi ofan í klósettið:) Þegar ég var búin að sturta niður benti hún á sjálfa sig og sagði "tiss" og vildi fara á klósettið. Ég tók bleyjuna og setti hana á klósettið (best að halda í þessi kríli svo þau detti ekki ofaní;) og þá kallaði hún á pabba sinn voða stolt og sagði "tiss!". Þegar ég spurði hvort hún væri að pissa þá rembdist hún í smá stund og prumpaði. Þá var mín sátt og mjög stolt, og var búin að tiss:D

Wednesday, November 12, 2008

Hvað er að gerast í baunalandi? Kristina fór í aðgerð á mánudaginn og fékk ný rör í bæði eyrun. Eyrun voru stútfull af seigu slími, og barnið er allt annað í dag. Dagmamman segir mikinn mun á henni, og við erum strax farin að sjá framfarir á öllum sviðum. Hún fór að reyna að segja ný orð, sefur eins og engill og bregst við því þegar kallað er á hana. Greyið var nánast heyrnalaust! Hún er hrikalega mjúk þessa dagana og kyssir og faðmar eins og hún fái borgað fyrir það. Hún er líka farin að sýna mikil viðbrögð þegar við erum að lesa bækur eða horfa á teiknimyndir. Henni brá mikið í gær þegar kisa náði að krækja í litlu músina í bókinni sem við vorum að lesa, og hrópaði á pabba sinn til að segja honum hvað væri að gerast! Áðan vorum við að horfa á Litlu ljótu lirfuna, sem mamma var að senda henni. Hún ákvað strax að lirfan héti Teddi og stóri ormurinn var pabbi hans, "Diddi" (Kiddi):D Þegar kóngulóin náði lirfunni og vafði hana inn í kóngulóarvef, varð henni mikið niðri fyrir og fór næstum að gráta! Hún talar alla myndina, bendir og nafngreinir alla og lifir sig mikið inn í allt. Bara gaman að fylgjast með henni:)
Ég er að fara í aðgerð á miðnesi á þriðjudag og verð því eins og hryllingur í nokkrar vikur! Myndir koma ef ég er ekki verri en hryllingur. Lina lesfélagi ætlar að koma heim að læra með mér á miðvikudag, svo verð ég að harka af mér verkina og fara í skólann á fimmtudag ef ég er ekki þeim mun verr útlítandi:) Þýðir ekkert að missa af kennslu, ég verð bara að útskýra að ég hafi ekki verið í nefaðgerð fyrir brúðkaupið. Hehe. Já by the way. Við erum að fara að gifta okkur 28.janúar:)