Monday, June 28, 2010

Going thirty!


Elska þessa mynd! Íris er svo stolt :)

Þrítugsafmælið nálgast óðum, bara 4 dagar í stóra daginn! Jæks... Er það kannski ástæðan fyrir hreyfingarflippinu sem ég er að ganga í gegnum?? Er ég að reyna að snúa klukkunni við ómeðvitað? :) Ég er byrjuð að æfa fyrir hálfmarathon, sem við Mette ætlum að hlaupa annað hvort 4.sept í Tönder, eða 19.sept í Odense. Á laugardaginn hljóp ég í fyrsta sinn 10,2 km, en það lengsta sem ég hafði annars hlaupið í ár voru 9 km. Þetta gekk eins og í sögu, og ég svitnaði varla. Ég held að ég verði að fara að drekka meira vatn (og minna pepsi max kannski? humhum!), það er ekki eðlilegt hvað ég svitna lítið. Í gær skellti ég mér í spinning í súpertíma, náði maxpúls 92% af hámarki og meðalpúls var 80% af hámarki. Svitnaði ágætlega þar ;)
Tók svo fram málbandið í gær og mældi 4 staði (mitti, mjaðmir og bæði læri) og er búin að missa 20cm síðan í nóvember :D Í dag eru það 6 eða 7 km, en það verður að bíða þangað til það fer að kólna aðeins, því það er 25 stiga hiti!
Það er spáð góðu veðri alla vikuna og það á að toppa á laugardaginn, þegar við Jákup höldum veislu :) Við hlökkum mikið til! En það er nóg að gera þangað til....ég verð að fara að skipuleggja innkaup fyrir matinn. Við skruppum til Þýskalands í gær að versla gos og bjór fyrir afmælið og fylltum bílinn! :)

Íris er byrjuð hjá dagmömmu og það gengur betur og betur með hverjum deginum. Ég hlakka samt til lok júlí, því þá verðum við mæðgur í fríi í 2 vikur saman, allar þrjár. Þá er lokað í leikskólanum og hjá dagmömmunni og ég sakna þess að hafa þær hjá mér allan daginn. Þá verðum við heima í viku, og svo skreppum við til Íslands í 10 daga. Ég neita því þó ekki, að það er búið að vera ágætt að hafa morgnana til að leggja sig aðeins og hlaða batteríin. En ég sakna Írisar þó hún sé bara hjá dagmömmunni í 2-3 tíma enn sem komið er, og er svo hrædd um að missa af svo miklu. En þetta er óhjákvæmilegt. Ég verð bráðum að fara að vinna, og ég vill frekar gera þetta svona hægt og rólega, og leyfa henni að aðlagast á mörgum vikum, en að þurfa að henda henni í pössun frá 8-16 þegar ég byrja að vinna eftir stutta aðlögun. Vikuna áður en ég byrja að vinna erum við að fara í sumarbústað, þannig að þá verður líka gott að hún er búin að venjast, og verður ekki alveg kexrugluð.

Úff...ég trúi því ekki að fæðingarorlofið sé að verða búið :( Ég er að hugsa um að eignast 10 börn svo ég geti fengið sem mestan tíma heima ;) Ég má eiginlega ekki vera að því að fara að vinna! Ég er að prjóna, sauma, lesa bækur, hlaupa, púsla, horfa á fullt af kvikmyndum og þáttum sem við eigum eftir að sjá, framkalla myndir og setja í albúm og ramma, elda, þrífa, leika og knúsast í stelpunum. Full vinna skal ég ykkur segja ;)

11 Comments:

At 9:00 PM, Anonymous Anonymous said...

flott hjá þér skvísa,ekkert smá dugleg að hlaupa.Ég er svo sammála þér með að langa vera heima,væri sko alveg til í að vera bara heima í svona 4-5 ár, það er alveg full time djobb að vera með 3 börn,þú verður bara að koma með annað:-)þá getur þú verið heima.

Knús í hús og vonandi verður stórafmælisdagurinn frábær.

Þóra Kolla

 
At 7:51 AM, Blogger Ásta said...

Takk Þóra!
Ég trúi því vel að það sé nóg að gera með 3 krílí :) Ég drífi í þessu eftir 2-3 ár ;)

 
At 3:48 PM, Anonymous Pálína said...

Já, það er sko full vinna að vera heima í fæðingarorlofi - eitthvað sem maður áttar sig engan veginn á fyrr en maður prófar það sjálfur :)

Þú ert ekkert smá dugleg að hreyfa þig, og gaman að prófa að hlaupa hálfmaraþon. Ég set stefnuna á 10 km hlaup í ágúst og finnst það alveg nóg úff púff ;) Ertu að nota hlaupaúr í undirbúningnum?

Vonandi verður helgin ógleymanlega frábær, ég vildi bara að við gætum skellt okkur í heimsókn til ykkar yfir helgina, það væri gaman að komast í gott partý :)

 
At 6:28 PM, Blogger Ásta said...

Takk! Nei, púlsúrið mitt er dáið. En ég er með Garmin gps hlaupaúr efst á óskalista (og er nokkuð viss um að fá það frá Jákupi ;).
Hey! Þá getum við tekið einhverja hringi saman í sumar ;) Ég held áfram að fylgja prógramminu mínu, sem er þrisvar í viku. Tveir af túrunum eru stuttir, ekki nema 6-7km og svo 4 km. Sá þriðji lengist svo meira og meira yfir sumarið upp í 18 km:)
Flott hjá þér að skella þér í 10km. Það er nú ekki það langt síðan þú áttir! Ég gat ekki byrjað að hlaupa fyrr en 4 mánuðum eftir fæðingu, mér var svo illt í grindinni ennþá.

Það hefði sko aldeilis verið gaman að fá ykkur í veisluna um helgina! En svona er staðan jú, ekki mikið um flæking út fyrir landamærin með litla stubba og matadorpeninga :)

 
At 11:21 PM, Anonymous Pálína said...

Ég byrjaði að labba viku eftir að hann fæddist og þegar hann varð 6 vikna fór ég að skokka og labba til skiptis. Ég er búin að fara í tvö 5k hlaup núna síðustu vikur en mig hefur langað í 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu í mörg ár, stefndi að því í fyrra en varð þá óvænt ólétt mánuði fyrir hlaupið og ógleðin gerði útaf við öll áform - en núna þegar maður á svona stórafmæli framundan er tími til að taka af skarið og framkvæma svoleiðis drauma :D

Við getum samt huggað okkur við að 40 is the new 30, við erum ekki alveg orðnar ellismellir ennþá - en samt, um að gera að nýta þennan áfanga til að gera eitthvað fyrir sjálfan sig :)

Hvaða týpu af hlaupaúri myndi þig langa í? Mig langar einmitt svo í garmin úr, er búin að vera að skoða það sem er til hérna og lesa mér til og mér sýnist á öllu að það séu bestu hlaupaúrin. Ég er eiginlega búin að ákveða að gefa sjálfri mér svona úr, finnst ég bara alveg eiga það inni ;) en það verður þá ekki allra dýrasta týpan, heldur 305 sem er víst vinsælasta týpan hingað til.

 
At 8:12 AM, Blogger Ásta said...

Mig langar mest í garmin 405CX, en það er mun dýrara en 305 :( Það er með kaloríuútreiknun út frá púlsi í staðinn fyrir hlaupavegalengd, þannig að ég gæti notað það í spinning líka. Og svo er það aðeins nettara á hendi. Kostar 2300kr hérna!

Mér finnst þú líka eiga það skilið ;) Og þú getur eiginlega ekki beðið fram að afmælinu þínu, því þú þarft að nota það í sumar :) Go go! Það kostar 1150 kr hér á útsölu þessa dagana.... á ég að kaupa það fyrir þig? Hvað kostar það heima?

 
At 11:03 AM, Anonymous Pálína said...

hehe já, ég vissi að ég gæti treyst á þig að bakka mig upp :D

Mér sýnist samt á öllu að verðið úti hjá þér sé svipað og hérna heima, ég sá 405 á 46 þús sem eru tæplega 2200 danskar krónur, og 305 á að fara á útsölu næstu daga svo ég er að vonast til að fá það á sæmilegu verði :)


Hefuru samt skoðað eitthvað 110 úrið? Það er náttúrulega dýrt, amk er það á sama verði og 405 hérna, en það er einfaldara og mun nettara á hendi... Annars veit ég ekkert af hverju ég er enn að velta þessu fyrir mér, þessar dýrari týpur eru utan fjárlaga þetta sumarið ;)

 
At 11:47 PM, Blogger Ásta said...

Já er það ekki? :=)

Nei, ég hef ekkert skoðað 110, en fletti því upp og sé að það er mjög nett og fínt. Það er á svipuðu verði og 405 en ódýrara en 405cx.
Annars held ég að þetta sé eins og með gsm símana, maður þarf ekkert á öllum þessum fídusum að halda. Hljómar vel að geta allt mögulegt, en svo notar maður bara þetta einfaldasta og fljótasta :)

 
At 2:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Oj poj hvað það er svekkjandi að komast ekki í afmælið! Alltaf þarf allt að gerast sömu helgina!
Við erum líka að fljúga 2. ágúst til DK, ertu að fara með air eða express?

Valdís

 
At 12:25 AM, Anonymous Anonymous said...

Vá þú ert alltaf svo dugleg.

Þú hefðir betur sleppt þessu læknanámi og verið bara heimavinnandi húsmóðir HAHAHAHa..
Það verður þó væntanlega gott að komast aðeins út líka. Kannski framtíðarplan að vinna 50-70%? :)

Ammliskveðja Helga Dröfn

 
At 7:24 AM, Blogger Ásta said...

Takk!
Hehe, já af hverju var ég að þessu?? En ég held að þegar ég fyrst er komin af stað í vinnu aftur, þá sé ekki aftur snúið :) Elska vinnuna mína!

 

Post a Comment

<< Home