Thursday, July 24, 2008

Það fæddist lítil stelpa í vinnunni í dag. Ég og ljósmóðirin tókum á móti henni. Alltaf fjör og gaman í sveitinni:)
Annars er vaktsíminn eiginlega ekkert búinn að hringja síðustu 3 dagana, og ég tek við vaktinni á morgun. Það eru allir sammála um það að það sé alltaf logn á undan storminum...hmmmm.

Jákup ætlar að skreppa í stórborgina á morgun að redda banka og skattamálum. Ég væri sko til í að vera að fara, og komast í klippingu og litun. Ég er eins og fuglahræða um hausinn!:(

Thursday, July 17, 2008

Það er öðru hverju verið að spyrja mig hvort mér lítist ekki bara vel á bæinn. Ég get litlu svarað um það. Ég fór í búð á laugardaginn, á leiðinni út úr búðinni hríngdi síminn. Á sunnudaginn fór ég á róló með Kristinu í 20mín, þá hringdi síminn. Í gær, miðvikudag, fór ég í sjoppuna með mömmu, Kristinu, Tedda, Guðrúnu, Kristni og Kötlu að kaupa ís. Annars hef ég verið hér á heilsugæslustöðinni eða heima að borða og sofa! Alltaf að vinna. En kvöldið í gær var frekar rólegt, í fyrsta sinn sem ég kom. En ég er nú þegar búin að læra alveg heilan helling:)
Jákup kemur í kvöld. Ég og Kristina hlökkum til, en hann er alveg að fríka út! Ég er sem betur fer búin að hafa hana hjá mér allan tímann, en hann greyið einn. Það verður gott að fá hann, og verða laus við vaktina í nokkra daga;) hihi

Það er gaman að hafa heimsókn, þótt við mamma og Kristina höfum haft það gott. En það jafnast ekkert á við að fá að knúsa lítið kríli með ungbarnalykt:-)

Friday, July 11, 2008

Ólafsvík

Komin til Ólafsvíkur. Númerið er 8411028.
Ég er ein á vaktinni hérna þangað til Jákup kemur á föstudaginn. Spennó!
Hér er manni sko hent út í djúpu laugina.... ég á að gera allt sjálf, röntgen, blóðprufur, skurðaðgerðir og fæðingar. Jedúddamía.
Bíllinn var svo troðinn á leiðinni hingað í gær, að við gátum ekki verslað í matinn í bónus nema það allra nauðsynlegasta fyrir daginn í dag. Það er klst akstur í bónus héðan og ég má ekkert fara. Þannig að við verðum að gera okkur okrið að góðu og versla hjá kaupmanninum. Ég er að fara að drífa mig "heim" að ná í mömmu og Kristinu og ákveða hvað á að vera í matinn. Það er gott að það er helgi framundan svo ég nái að melta allt sem ég er búin að heyra í dag, og lesa rest, og svo krossa ég fingur að það gerist engin stórslysin næsta mánuðinn;)

Takk fyrir allar kveðjurnar! Ég veit ekkert hvenær ég kemst í bæinn, en ég hringi í ykkur þegar svo verður og mæli mér mót.

Tuesday, July 08, 2008

París

Ég ætti að vera að pakka eða þrífa eða....en þá sest maður alltaf við tölvuna samt, og þá get ég alveg eins bloggað aðeins:)
Ferðin var vel heppnuð í flesta staði og við erum alsæl. Það var rigning og glampandi sól til skiptis. Grenjandi rigning á afmælisdaginn minn, akkurat þegar við vorum að hefja gönguna upp í Effelturninn. Við gengum alla leið, og Jákup bar Kristinu, bakpokann og regnhlíf. Ég bar regnhlíf:) Ég skildi ekkert í því hvað hann var ákveðinn í að fara alla leið upp, þrátt fyrir endalausar raðir og rigningu, þangað til ég sneri mér við á efstu hæðinni og hann og Kristina krupu á hnjám með hring. Hann lét Kristinu gefa mér hringinn sem hann var búinn að fela fyrir mér í marga daga. Ég sagði að sjálfsögðu já;)

*Tveir dagar í Disneylandi hefði verið nóg.
*Frakkar éta baquette brauð í morgunmat, hádegismat og kvöldmat. Ég fékk nóg af því.
*Þjóðverjar kunna að bera fram góðan morgunmat en ömurlegan kvöldmat, Frakkar öfugt.
*Frakkar eru óóóótrúlega svifaseinir í þjónustu, þolinmæðin greinilega meiri en hjá Íslendingum.
*Djöfull er ég léleg í þýsku! Ég keypti mér OK á þýsku, og það er gott að ég kann nöfnin á fræga fólkinu, því það var umþaðbil það sem ég skildi eftir lesturinn.
*Ég komst í tölvu á hótelinu í Þýskalandi, og var heillengi að finna y á lyklaborðinu. Þeir nota greinilega z meira en við, vegna þess að þeir býtta y og z.

Það eru myndir á barnalandi.