Saturday, March 29, 2008

Kristina á fleygiferð

Hlaupa hlaupa!
Við mæðgurnar fórum í dag í mæðragrúppu á meðan Jákup var að vinna, og skemmtum okkur prýðilega og hún hljóp um allt. Hún stakk m.a. upp í sig hundamat.....ojjjjjjj. Fyrst var hún skíthrædd við hundana hennar Mia, en í lok dagsins var hún búin að venjast þeim og reyndi að klappa þeim. Við fórum í strætó báðar leiðir, og henni fannst það ekki leiðinlegt.
Við Jákup fórum á fimmtudaginn á námskeið í akút læknisfræði, til þess að rifja upp fyrir sumarið, og það heldur áfram á miðvikudaginn. Hörku gott námskeið! Við erum ánægð með þetta framtak hjá félagi læknanema. Halldís snillingur passaði fyrir okkur á meðan.

Thursday, March 27, 2008

Ólafsvík here we come!

Við erum bæði komin með stöðu á Ólafsvík í mánuð í sumar:-D Mamma stóð sig eins og hetja á fundinum fyrir okkur! Þá er eins gott að fara að rifja upp námsefnið, hehehe...

Tuesday, March 25, 2008

Önnum kafin á barnadeild

Ég hitti eina Asta, eina Dora og eina Kaja í dag á barnadeildinni:)
Ég hjálpaði til við að taka á móti barni úr bráðakeisara og blés í það lífi sjálf, skrifaði 2 læknabréf, 3 sjúkraskýrslur, gerði 3 ungbarnaskoðanir sjálf og fylgdist með fullt af öðru. Ég er ansi þreytt og ætla að fara að sofa!
Það er gott að vera komin heim, en mikið rosalega þarf að þrífa hérna, og við erum svo önnum kafin þessa vikuna að það er erfitt að koma því við.
Og svo er ég búin með páskaeggið, sem betur fer. Nú tekur megrun við. Sjæse hvað ég er búin að bæta á mig yfir páskana! Mér líður illa í eigin líkama.

Thursday, March 13, 2008

Löggulíf

Ég var að keyra heim úr vinnunni í morgun og það gekk ansi greiðlega fyrir sig, enda var ég að keyra á 140km/klst:) Þegar ég var komin 2/3 leiðarinnar keyrði ég hins vegar fram á lögreglubíl. Það gerði ég líka síðast þegar ég var að vinna. Það er ansi skondin sjón. Það myndast allt í einu hálfgerður umferðartappi þar sem enginn þorir að taka fram úr löggunni, og í hvert sinn sem löggan tekur framúr vörubíl og skiptir svo aftur um akrein, fylgir honum löng röð af bílum sem haga sér eins. Maður sér m.a. Audi A6 keyra allt í einu á 110, það eru annars bílarnir sem undantekningalaust taka fram úr mér! Svo sér maður bíla koma á fullu í vinstri akrein, bremsa um leið og þeir sjá hvíta bílinn og lauma sér í röðina á bakvið hina. Lögreglunni hlýtur að vera ansi skemmt yfir því að fá alltaf svona líkfylgd á hraðbrautinni:-D

Ég er alveg að verða vitlaus á öllum þeim e-mail adressum sem ég er með á sama fólkið. Ég veit aldrei hvað ég á að nota. Hættið að skipta um vinnu og nettengingar! Eruð þið svo væn gott fólk að kommenta með þeirri adressu sem þið notið? Og þetta gildir ekki minnst mína ástkæru fjölskyldu! Og Ásdísi og Arndísi, ef þið lesið þetta:)

Wednesday, March 12, 2008

Dagur daganna!

Búid ykkur undir væl.
Thegar ég vaknadi kl.5 í morgun var Kristina komin med 38,5 stiga hita aftur og hóstadi látlaust, og ég ad fara ad vinna í sólarhring. Ekki gaman ad fara frá henni greyinu í thessu ástandi. Og greyid Jákup vard ad vera heima med henni og missa enn einn daginn í klinik. Hann fór svo med hana til læknis ádan, af thví ad honum fannst hún hósta svo illa og ekki bera sig nógu vel. Læknirinn gaf henni sýklalyf vid lungnabólgu og púst til ad audvelda andardrátt.
Vid thurfum ad skiptast á í klinik restina af vikunni. Ég verd ad fara á kvøldin og fylgja forvaktinni svo Jákup komist á daginn, thví hann er hjá heimilislækni.
Thad er ekki búid ad vera svo mikid ad gera í vinnunni í dag, thannig ad ég settist og fór ad vinna í verkefninu mínu eftir langa pásu. Nú áttu sko ad rumpa restinni af! Nema ad allt í einu vildi tølvan ekki geyma sídustu breytingar, og skjalid hvarf! Ég finn thad hvergi! Ég er svo mikill hálfviti ad ég var ekki búin ad geyma verkefnid annars stadar en á usb lyklinum mínum í nokkurn tíma, thannig ad thad vantar margra daga vinnu á thá útgáfu sem ég á eftir í tølvunni. Ég gæti grenjad. Hvernig er hægt ad vera svona óheppin???

Friday, March 07, 2008

Fyrsta vikan

Fyrsta vikan í klinik liðin og Kristina búin að vera veik í 3 daga. Ég var heima á miðvikudaginn, Jákup í gær, og í dag bjargaði Annie okkur algjörlega, eða mér, því Jákup var að vinna. Þannig að ég missti bara einn dag á barnadeildinni. Það er mjög gaman og spennandi á deildinni og ég sé svo margt nýtt á hverjum degi. Í dag fékk ég að skoða tvö nýfædd börn, hlusta þau og skera úr um hvort allt sé eins og það á að vera. Það ískraði í eggjastokkunum!!!:-D Á mánudaginn fer ég á krabbameinsdeild fyrir börn, og á eflaust eftir að finnast það svolítið erfitt:(
Við erum að venjast því að vera í fullri vinnu, og þreytan að lagast. Við Jákup nýttum tækifærið í gærkveldi og fórum út að hlaupa á meðan Annie passaði fyrir okkur. Það var hressandi þrátt fyrir að kvöldmaturinn hafi verið eins og grjót í maganum á mér! Ég fór nefnilega út að borða með Lene og fékk mér nachos með kjúkling. Mæli ekki með því rétt fyrir hlaup.
Stefnan er tekin á ýmis kvennahlaup í vor, þannig að það er um að gera að koma sér í form og losa sig við smá aukakíló:)
Ísland eftir viku! Hlakka mikið til! Það verður eflaust jafn brjálað og venjulega með heimsóknir og hittinga, því manni finnst í hvert einasta skipti að maður verði að ná að hitta alla. En það er bara ekki hægt. Við erum sem betur fer að fara í fermingu, þannig að ég næ að hitta aðra fjölskylduna á einu bretti þar:) En það verður gott að sjá fjölskylduna, við erum ekki búin að koma heim síðan í október.

Wednesday, March 05, 2008

Veikindi og pössun

Ég sagði það í síðustu viku, og það stóðst! Kristina er búin að vera svo hraust í svo marga mánuði, akkurat á meðan við vorum heima að skrifa verkefni og hún vel getið verið heima. Hún er búin að vera kvefuð 2-3 sinnum og fékk í augun og niðurgang eina vikuna, en ég tel það ekki mikið, þar sem hún var bara heima einn dag. En ég sagði í síðustu viku að það væri klassískt ef það kæmi holskefla af veikindum núna þegar við erum byrjuð í praktík bæði tvö. Og hvað gerist? Kristina hóstaði bókstaflega í alla nótt og var með hita, þannig að ég varð að vera heima með hana í dag. Hún er að vísu nokkuð brött núna, er að leika sér á fullu, og er búin að borða stöðugt, þannig að það er ekki alvarlegt. Vonandi get ég farið með hana til dagmömmunnar á morgun eða í síðasta lagi á föstudaginn.
Þá er best að nýta daginn í eitthvað nytsamlegt! Við erum búnar að fara í búðina og kaupa fullt af hollum mat, og Kristina fékk að passa vínberin á leiðinni heim. Pakkinn var fljótlega opnaður og vínber út um alla kerru:) Svo erum við búnar að henda sængunum út til viðrings og þvo eldhúsgólfið. Ekki amalegt.
Við vorum með lítinn snáða í pössun í gær fram á kvöld. Mamma hans er í læknisfræðinni og þurfti að vera á vakt fram á kvöld, og pabbinn að keppa í borðtennis. Það gekk vonum framar. Hann fékk fisk með okkur í kvöldmatinn, og svo léku þau sér þangað til þau áttu að fara að sofa. Þá kom smá frekjugen fram í minni, hann mátti ekki leika sér með hvað sem er! En við reyndum að stoppa það af. Þau voru svo sett í sitthvort herbergið, og héldu vöku fyrir hverju öðru í hálftíma, því þau grenjuðu til skiptis. En svo sofnaði Kristina og Andreas sofnaði nokkru seinna eftir mikið brölt. Ég var steinsofnuð þegar pabbi hans kom að sækja hann, Jákup sá um afhendinguna, og í morgun kom í ljós að tveir pabbar eru gleymnari en ein mamma. Skórnir hans, úlpan og húfan urðu hérna eftir! Vonandi náði Kristina ekki að smita hann af einhverru flensu:)

Tuesday, March 04, 2008

Þreytt þreytt

Hvernig er hægt að vera svona þreyttur þegar maður er í praktík? Við Jákup erum að leka niður á kvöldin og ég er farin að sofa um kl.21! Alveg ótrúlega orkulaus.
Ég hlakka s.s. ekki til þegar þetta verður hversdagsveruleikinn, við bæði í fullri vinnu og allir að vakna kl.6.30 alla daga! Það var svo nice í jan og feb að geta alltaf lagt sig aftur ef maður var þreyttur, af því að við vorum heima að skrifa verkefni:)
Ég er á barnadeild næsta mánuðinn og Jákup er hjá heimilislækni næstu tvær vikurnar, og á geðdeild í 2 vikur eftir það. Mjög gaman og spennandi, en erfitt að vera alltaf svona þreyttur. Ég fór samt út að hlaupa í dag:) *Mont mont!*