Saturday, October 22, 2005

Heimsóknir

Ég er svo montin! Ég stytti alveg sjálf í fyrsta skipti gallabuxur á sjálfa mig! Jei!! Þá get ég loksins réttmætt tilveru saumavélarinnar minnar:) Venjulega bíð ég þangað til ég fer heim næst og læt mömmu um það, en núna nennti ég ekki að bíða....haha

Haustfríið er að verða búið og ég er að byrja á leiðinlegustu blokk í heimi á mánudaginn:( Forskningsmetodologi! Ulllllllabjakk. 3 vikur í helvíti. En fríið er hins vegar búið að vera yndislegt! Mamma og pabbi komu í heimsókn í 5 daga og leigðu bílaleigubíl. Við skruppum m.a. til Þýskalands og keyptum ódýrt pepsi max og bjór og kíktum á Flensburg. Við keyrðum líka til Aabenraa á leiðinni heim og skoðuðum bæinn. Svo eldaði pabbi snilldarmat, t.d. vínarsnitzel í tilefni af Þýskalandsferðinni, og kókóskjúkling og ég eldaði fisk sem þau komu með handa mér. Ég vill hafa þau hjá mér alltaf:( Það er svo gott þegar dekrað er við mann:-)

Á morgun kemur uppáhaldsfrændi Lalli og kærastan hans, hún Helga Dröfn, í heimsókn alla leiðina frá Svíþjóð! Það verður æðislega gaman að sjá þau. Ég er búin að tala svo mikla íslensku þessa vikuna að það er engu laginu líkt:) Alltaf gott að æfa sig!

Svo var ég að hlusta á þetta í gær:
http://www.fm957.is/uploads/FileGallery/Files/Zuuber/Hornid/Horumamma.wmv
Djísús.....vandræðalegt!!

Wednesday, October 12, 2005

Mamma og pabbi koma til mín á morgun!! Ég get ekki beðið!

Letin er að drepa mig. Ég nenni ekki að læra meira fyrir prófið á föstudaginn:( Tek smá skorpu á morgun. Svo ætlum við út að borða annað kvöld. Jei! Þá er bara komið haustfrí, og ekki veitir af!!

Ég lék lækni í skólanum í dag. Sjúklingurinn var ung stelpa sem var í krísu af því að kærastinn hætti með henni og hún vildi fá svefnlyf til að sofa. Það kom leikkona og lék sjúklinginn, og hún lék hana svo vel að ég var alveg mállaus, og vissi ekkert hvað ég átti að segja! Hún hágrét með tárin lekandi niður kinnarnar! Þetta gekk svo sem en dj.... er óþægilegt að vera í þessari aðstöðu. Bekkjarfélagar mínir voru sammála um að þetta hefði verið langerfiðasti sjúklingurinn, af því að maður þarf að fá hana til að horfast í augu við að sambandið hafi kannski ekki verið það gott fyrir, og að hún komist alveg örugglega í gegnum þetta án þess að fremja sjálfsmorð osfrv. Og sjá til þess að hún hafi einhvern að tala við. Það er greinilegt að við erum engir leikarar, við erum alltaf eins og asnar þegar við eigum að leika. Það er svo erfitt að setja sig inn í aðstöðuna þegar það er fullt af fólki að horfa á þig og verið er að taka þetta upp á video!

Chiao!

Tuesday, October 04, 2005

Lasin í lopapeysu

Ég var búin að skrifa langt blogg, og svo hvarf það! Urrrrrr

Alla veganna, það fjallaði bara um nýja æðislega sófann okkar, nýja ruggustólinn okkar, hvernig ég nenni ekki í skólann og að ég vil helst bara sitja heima í stofunni. Verst að ég les ekki sérlega mikið heima hjá mér:S

Ég er lasin, með hita og kvef, og er farin upp í rúm að rifja upp fyrir morgundaginn. Það kemur leikari í skólann að leika manío-depressivan sjúkling og við eigum að leika lækni. Alltaf gaman að sýna leiktilburði fyrir framan allan bekkinn! NOT. En við lærum af þessu...

Lasin í lopapeysu

Sófinn er kominn! Æði.... Og við keyptum okkur tréruggustól í genbrugsforretning. Nú er bráðum ekki pláss fyrir fleiri húsgögn!:) Enda hef ég ekki nennt í skólann að lesa upp á síðkastið! Ég vil bara sitja í stofunni minni;)

Ég er lasin. Er kvefuð og með hita. Fór út að hlaupa með Jákup í gær eftir blakæfingu. Það var kannski aðeins of mikið af því góða eftir letikastið um helgina! Það var líka fjarlægður úr mér endajaxl í gær í efri góm. Nú er ég með holu og engar tennur, að mér finnst. Stoppar mig samt ekki í nammiátinu í kvöld!:) hehe

Árshátíð á föstudaginn. Ég er ekki búin að ákveða í hverju ég ætla að fara. Ég fór í partý á föstudaginn og þar voru stelpurnar búnar að ákveða hvaða förðun þær ætluðu að nota, hvaða skó, hvaða kjól, hvernig hárið á að vera..... Scheise!! Ég lét mig hverfa! Bókstaflega. Var ansi þreytt eftir 3 næturvaktir og skóla, og fór heim að sofa. Mér fannst þetta hvort eð er ekki vera sérstaklega uppliftandi umræðuefni:S

Mamma og pabbi koma í heimsókn eftir viku! Með ss pylsur og frosna ýsu! Jeyyyyy!!