Wednesday, May 30, 2007

Nýja barnið mitt

Er hann ekki sætur, litli hnoðrinn? Þetta er sonur David og Stine, vina okkar, sem komu með okkur til Íslands fyrir 2 árum. Hann fæddist 3 vikum fyrir áætlun. Ég er að hugsa um að ættleiða hann. Veitir ekki af, ég hef ekkert að gera:)
Hér er allt með kyrrum kjörum. Helstu fréttir eru þær að ég er búin að losa mig við 5,5kg og er afar stolt af, og að Kristina Ósk ældi upp í mig í gær. Ég lyfti henni upp yfir höfuðið á mér og brosti sólheimaglotti og fékk þá þessa heitu gusu upp í mig, alveg niður í kok. Mæli ekki með því, það er ógeð. Ég þurfti að skola munninn og fá mér eitthvað að borða og drekka til þess að bæta ekki við æluna!
Á morgun kemur Dóra systir, hún ætlar að vinna hérna í Odense í sumar og fær lánaða íbúðina hennar Halldísar á meðan. Það verður nú notalegt að hafa litlu sys hjá okkur í allt sumar, og að þær frænkur geti kynnst nánar. Ég hlakka mikið til að fá barnapíu svo ég komist meira út að hlaupa;-)
Mánuður í heimkomu! Stopp í viku. Bókanir hér að neðan í kommentum:)