Thirtysomething


Jahá! Maður ætti að eiga stórafmæli amk tvisvar á ári ;) Þetta var rosalega góður dagur, sem byrjaði á afmælissöng kl.5.30 um morguninn. Jákup þarf að keyra í vinnuna kl.7, svo hann varð að byrja snemma ef hann ætlaði að ná að vera með okkur aðeins :) Við fengum köku í morgunmat sem Jákup bakaði kvöldið áður. Og svo fékk ég Garmin forerunner 405 HR hlaupaúr frá elskunni minni!
Kristinn bróðir og Pálína gáfu okkur saman tvö bindi af Ísland í aldanna rás, sem er svakalega flott bókasería og gaman að eiga :D Tengdó gáfu mér færeyskt ullarsjal og mamma og pabbi ætla að gefa mér hring sem ég vel mér þegar ég kem heim.
Við héldum upp á afmælið daginn eftur, 3.júlí, og fengum 40 manns í mat. Það heppnaðist rosalega vel og var dagurinn fullkominn í alla staði. Það var 30 stiga hiti og fólk sat úti langt fram á kvöld, og börnin hlupu um léttklædd (sumir, lesist Kristina, hlupu um í bikini með hjálm á hausnum á milli þess sem hún hjólaði um allt :). Við héldum fjörinu áfram til kl.4.30 um morguninn og var ég því frekar framlág þegar Íris vaknaði kl.6! Við erum búin að vera alla vikuna að jafna okkur :) Svona finnur maður fyrir aldrinum!
Annað merki um ellimerki kom þegar ég og Jákup fórum út að hlaupa um morguninn fyrir afmælisveisluna. Það var amk 22 stiga hiti og mikill raki, þótt klukkan væri ekki nema 8.30 um morguninn. Við vorum alveg að kafna úr hita, en þrjóskuðumst áfram þótt hægt fórum yfir. En eftir ca.2km fékk ég illt í hæ mjöðm sem leiddi niður í lærið. Ég vildi þó ekki stoppa, og hljóp í allt 8km, en um leið og fína úrið pípti að það væru komnir 8km, stoppaði ég og haltraði svo alla leið heim :( Ég er ekki búin að hlaupa síðan, því ég er búin að haltra alla vikuna. En ég held að þetta sé að verða búið núna, og ætla að reyna í dag. Það er því um að gera að setja sig inn í alla fídúsa í úrinu núna :)
Við fáum frænku hans Jákups og fjölskyldu í heimsókn um helgina, og ætlum að fara með þeim í legoland í 30 stiga hita. Svo er vika eftir af dagmömmu og leikskóla áður en stelpurnar eru komnar í 2ja vikna sumarfrí. Og þá fer alveg að koma að Íslandsferð :) Við getum ekki beðið!

1 Comments:
Hafið það gott á klakanum - hvað verðiði lengi? Náum við að sjá ykkur smástund?
Helga Dröfn
Post a Comment
<< Home