Wednesday, November 28, 2007

Annabell og lyfjadeild

Flotta nýja Annabell!
Hérna var hún nýbúin að æla kl.3 um nótt, og ég að skipta á öllum fötunum hennar. Þá var gott að vera með svona huggun. Hún sofnaði strax aftur.
Mæðgurnar eitthvað ekki jafnhrifnar af myndatökunni:)


Kristina er hætt að æla og er byrjuð að óþekktast aftur. Allt að verða normal sem sagt:)

Jákup er alltaf að verða skipulagðari pabbi, man að spyrja hvernig hún svaf og borðaði hjá dagmömmunni t.d. Það er ótrúlegt hvað hún getur verið óþekk við foreldra sína þegar hún hagar sér eins og engill annars staðar. En það er víst mjög eðlilegt.

Kristina fékk fyrstu dúkkuna sína frá Ósk ömmu um helgina, og er ótrúlega ánægð með hana Annabell sína! Hún faðmar hana og notar hana sem kodda, og reynir að troða puttanum sínum upp í nefið á henni eins og á öllum öðrum. Já, dóttir mín er með neffetish! Hún reyndi að troða bíllyklinum mínum upp í nefið á mér í dag. Ég veit ekki hvaðan hún hefur þetta barnið, en henni finnst nasir afar athyglisverðar!

Mér er farið að lítast ágætlega á lyfjadeild og er að komast inn í hlutina. Ég þurfti að vísu að lesa slatta í gær, vegna þess að ég var spurð að svo mörgu á mánudaginn sem ég gat ekki svarað að mér leist ekkert á blikuna. Óþægilegt að vera tekinn svona með buxurnar um hælana! Auðvitað á maður að vera búinn að undirbúa sig smá:)

Og svo er skiptineminn að fara í fyrramálið. Mikið verður notalegt að geta aftur horft á sjónvarpið í eigin stofu, og pissað með opna hurð!

Friday, November 23, 2007

Mømmuhjarta?

Ádur en ég vard mamma var ég búin ad ímynda mér ad ég yrdi eins og mamma mín á nóttinni. Mamma mín var nefnilega súpermamma, og kom hlaupandi á nóttinni ef madur bara hvísladi á hana hinum megin úr íbúdinni! Thad er mér eitt atvik alveg sérstaklega eftirminnilegt. Ég var 12 ára og vaknadi um midja nótt, dróg ad mér andann dýpra, eins og madur gerir thegar madur vaknar, og fékk strax rosalega køfnunnartilfinningu. Ég var med barkabólgu og thad threngdi ad øndunarveginum. Mikid rosalega var thetta óthægileg tilfinning. Ég gat heldur ekki kallad, bara hálfhvíslad. En thad skipti ekki togum, mamma kom hlaupandi eins og hún finndi thetta á sér!

Thegar ég var nýbúin ad eiga Kristinu, vaknadi ég vid thad ad hún hreyfdi sig! Thetta var nú einum of fínstillt hjá mér, thví ég svaf thar af leidandi nánast ekkert! Thannig ad núna sef ég eins og steinn:S Ég er búin ad upplifa thad nokkrum sinnum ad ég heyri í Kristinu í svefni vera ad kvarta, oft í dágóda stund ádur en ég ranka vid mér. Í fyrradag var mig búid ad dreyma hana vera ad kalla á okkur, svo átta ég mig á thví ad hún er ad thví, og thegar ég loksins opna augun, situr litla greyid í rúminu sínu og snýr í áttina ad okkur og kvartar. Thá var ég nú ekki lengi ad kippa henni uppí og kúra saman:) En thad sem verra er, er ad Jákup heldur thví fram ad hann sé stundum ad sinna henni á nóttinni án thess ad ég verdi thess vør! Módurhjartad mitt á erfitt med ad trúa thví:( En thad er ekki ósennilegt ad streitan sem er ad herja á mér thessa dagana valdi thessu, ég er amk threyttari en ég hef nokkru sinni verid.....

Í nótt hringdi sími. Ég var í vinnunni (og er, er ad fara heim eftir smá) og var med 3 síma liggjandi; minn eiginn, vaktlæknasímann og innanhússímann. Kl.2 hringdi s.s. einn síminn, ég var alveg kolruglud og steinrotud (var búin ad vera á fullu í vinnunni í 14 tíma ádur en ég komst í rúmid) og svaradi "Forvagt geddeild Ásta" med svefndrukkinni røddu. Thá var thetta minn gsm, ekki vinnan, og Jákup var ad segja mér ad Kristina væri búin ad æla eins og múkki allt kvøldid. Svo vard hann ad thjóta af thví ad hún var ad fara ad æla aftur. Greyid litla stelpan mín! Ég gat audvitad ekkert annad gert en ad reyna ad sofa áfram, thví thad væri gott ef ég væri amk nokkurn veginn úthvíld thegar ég kem heim til ad leysa Jákup af. Nema hvad, ég er búin ad vera med einhvern stresshnút í maganum í alla nótt og lídur eins og ég sé ekki búin ad sofa neitt! Mér lídur eins og ég sé ad fara í próf eda eitthvad. Undarlegt hvad svona stressfaktor eins og vakning vid símahringingu um midja nótt getur komid manni úr jafnvægi.

Thursday, November 22, 2007

Náttblind?

Mér finnst ógedslega erfitt ad keyra í nidamyrkri og thoku á óupplýstri hradbrautinni. Í morgun thurfti ég ad keyra af stad kl.6.45 til thess ad mæta í vinnuna kl.8.15. Ég kom 2mín of seint eftir ad hafa setid øll uppspennt alla leidina, af thví ad thad var svo erfitt ad sjá almennilega. Ég beid spennt eftir thví ad thad færi ad birta, en thegar thad loksins gerdist var svo mikil thoka ad thad hjálpadi ekki mikid. Thad var ekki til bóta ad vera threytt, en Kristina ákvad ad thad væri gód hugmynd ad fara á fætur kl.03!:S
Amma mín átti afmæli í gær. Til hamingju med thad amma!

Monday, November 19, 2007

Frunsur og jólin

Ég er með frunsu á bæði efri og neðri vör. Fyrir hvað er verið að refsa mér??!? Ég er ekki enn búin að missa "yfirvigtina" eftir Íslandsferðina og þarf að fara í klippingu og litun. Er hægt að vera með meiri ljótuveiki?

En ég er búin að kaupa jólakjól á dóttur mína. Þá er það mikilvægasta líka búið, ekki satt?:)

Saturday, November 17, 2007

Barnaland

Ég hef orðið vör við að amk einu sinni hefur mér verið sendur póstur með ósk um aðgangsorð að barnalandi, og ég hef ekki fengið það. Ég hef svarað þeim mailum sem ég hef fengið. Ef einhver er búinn að senda mail til mín og ekki fengið svar, er það af því að ég hef ekki fengið það, og ekki af því að þið megið ekki fá aðgang! Sendið mail beint á astasys@hotmail.com og ég sendi ykkur aðgangsorð!;-)

Tuesday, November 13, 2007

Gullhömrunum heldur áfram að rigna

Í dag hélt einn sjúklingurinn að ég væri ca.21 árs og að ég væri nýbyrjuð í læknisfræðinni. Gullhamrar eða hvað?? Undir mörgum kringumstæðum yrði ég ánægð, en mér finnst leiðinlegt að vera vanmetin:(

Ég var lengi í dag og kom heim kl.17. Þá urðum við að elda strax og baða kartöfluna og beint í rúmið. Ég sé hana ekki mikið þessa dagana:-( Jákup keyrir hana á morgnana, og fær því lengri tíma með henni, og nær í hana aftur seinnipartinn. Hún fer bráðum að gleyma hver ég er! En hún vill þó ennþá bara vera hjá mér á nóttinni þegar henni er illt. Einhvern veginn finnst mér það samt vera verri hlutskipti....þá getur Jákup alltaf sofið en ekki ég....en það er samt svolítið notalegt.

Verkefnið gengur mjög vel, ég hitti leiðbeinandann í gær (og kom þess vegna líka seint heim, 16.30) og þetta er allt að koma:-) Ég er mjög hamingjusöm með þá þróun! Það er samt brjálað að gera næstu daga, gestagangur, matarboð, afmæli, mæðragrúppa og svo er ég á sólarhringsvakt á sunnudaginn og fimmtudaginn. Einhvers staðar þarna á milli þarf ég að halda áfram með verkefnið, því ég þarf að hitta leiðbeinandann aftur í næstu viku. Það er gott að maður fær nætursvefninn sinn! NOT:-S

Saturday, November 10, 2007

Slysó

Gleymdi að segja frá því að ég var í praktík á slysó á fimmtudaginn og fékk að sauma fjóra sjúklinga og vera með í að setja bæði fingur og olnboga á sinn stað eftir að þeir voru farnir úr lið, auk margs annars. En það var svo sem ekki í frásögur færandi, nema að einn þeirra sem ég saumaði var fyllibytta og hafði verið laminn í hausinn með flösku. Hann byrjaði, um leið og ég var komin inn, að klappa á rassinn á mér og kalla mig "søde" og "smukke"! Djöfull varð ég fjúríus! Þá vildi ég óska að ég væri karlmaður, 1.90m á hæð og valdsmannsleg. Ég venst þessu kannski. Kannski ætti maður að vera ánægður á meðan það varir, þeir halda því örugglega ekki áfram næstu 20 árin;-)

Skiptineminn okkar

Ég er öll að koma til í að skilja ensku talaða með Ghanöskum hreim:-) Hann er ekkert að kippa sér upp við að við stundum skiljum ekki boffs, hann endurtekur sig bara án þess að breyta neinu! En það gerist sjaldnar núna að við glápum tómeygð á hann.
Fyndinn þessi menningarmunur. Hann er vanur því að þurfa ekkert að gera sjálfur, sem eini strákurinn af 4 systkinum. Þegar við ætluðum að sýna honum þvottavélina svo hann gæti þvegið af sér þessar 3 vikur sem hann er hérna, þá vildi hann ekki sjá hana, því hann kann ekki að þvo! Hann segist vera með nóg föt fyrir þessar þrjár vikur, það sé svo kalt að hann svitni ekki;) Hann er mjög upptekinn af því að ætla að höstla einhverjar stelpur, og hugsar því stöðugt um það hvernig hann komist á djammið og með hverjum. Hann segir að læknar í Ghana séu guðir, og hann vill bara giftast lækni eða bankastarfsmanni svo að börnin hans verði ekki vitlaus... hehe

Kristina sagði ekki orð fyrstu klukkutímana með honum, hún var svo hissa. Hún hefur aldrei séð svona þeldökkan mann áður, en er búin að venjast honum núna. Ég er búin að setja inn nokkur ný video af henni á barnaland. Það er komið lykilorð, ekki vera feimin við að biðja um það!

Wednesday, November 07, 2007

Blautur koss

Ég bað dóttur mína um koss áðan, og aldrei þessu vant varð hún við beiðninni. Ég fékk þvílíkt blautan koss og sá innihélt slef, hor og allan pakkann! *smmmack* mamma mín! Segiði svo að það sé ekki gefandi að eiga börn;-)

Tuesday, November 06, 2007

Einn lítill negrastrákur

Ég má til með að nota þessa fyrirsögn eins og margir aðrir þessa dagana:) Ég styð þá umræðu by the way heilshugar, þeas þá sem er á móti bókinni!
En tilefni fyrirsagnarinnar er að við erum að fá strák frá Ghana til okkar á fimmtudaginn, og sá á að búa hjá okkur í mánuð. Hann heitir Jakob (mamma hans Jákups sagði að það héti enginn frá Ghana, lol) og er læknanemi. Hann er að fara í klinik á spítalanum. Við getum fylgst að á morgnana, hehe;) Það verður spennandi að sjá hvernig sambúðin verður, en vonandi verður þetta bara gaman, að kynnast öðrum venjum og háttum! -Ef ekki verður þetta langur mánuður....

Kristina fékk rör í eyrun í gær, og gekk það öllum vonum framar. Hún vaknaði bara eftir svæfinguna, skreið í fangið á mér og fór að rétta út hendurnar til hinna barnanna. Hún grét ekkert fyrr en hún áttaði sig á því hvað hún var svöng, eftir 5klst föstu. En í nótt fór hún aftur að gráta þegar kl fór að nálgast 5 og hætti ekki fyrr en við fórum á fætur, og þá sáum við að það blæddi í öðru eyranu. Okkur var sagt að það væri eðlilegt, en kannski er rörið samt storknað til. Við förum aftur til læknisins á mánudaginn í endurskoðun. Ég held að maður eigi að passa sig á að vona að svona aðgerðir gjörbreyti öllu og að barnið fari allt í einu að sofa eins og steinn. Eða alla veganna í okkar tilfelli! Hún hefur aldrei sofið vel, og fer varla að breytast á einni nóttu héðan af.

Já, og svo byrjaði ég loksins aftur á verkefninu mínu í gær!! Undur og stórmerki! Ég ætti auðvitað að sitja og vinna við það núna, en kvíði því hálfpartinn að þurfa að vakna kl.5 í fyrramálið til þess að fara með Kristinu í strætó til dagmömmunnar, svo ég geti verið mætt á spítalann kl.7.50. Jákup er að vinna næstu 3 dagana. Svona venst maður því vel að vera á bíl;-)

Saturday, November 03, 2007

Party!

Ég fór út að borða í gær með mæðragrúppunni minni. Það var J dagur í gær, fyrsti dagur jólabjórsins á ári hverju, og við fengum nokkra ókeypis bjóra. Það var rosalega gaman hjá okkur, við fórum að dansa og drukkum eins og við gátum í okkur látið:) Kl.24 vorum við búnar að vera að í 6 tíma þannig að ég hélt að klukkan væri miklu meira! Mæðragrúppan fór heim fljótlega eftir það, en ég hitti fullt af dönskum, sænskum og íslenskum læknanemum og djammaði áfram;-) Keypti mér McD á leiðinni heim og hjólaði svo heim á leið og......hengdi upp þvott kl.4 áður en ég fór upp..... Hversu mikil húsmóðir er maður ekki þá????!
Ég er ekkert þunn í dag, bara þreytt, og ég er viss um að það er reykleysið sem veldur því! Guð blessi reykingarbannið á skemmtistöðum!