Litla snúllan mín sem er alveg hrikalega kvefuð! Hún svaf bara í 45 mín í einu í nótt, af því að hún var komin með hita og náði varla andanum fyrir hori :( Svo var ræs kl.6, þar sem hún var með innþornað hor í öllu andlitinu! Ég veit bara sjálf hvað mér líður illa þegar ég er mikið kvefuð, og vorkenni henni svo mikið.
Ég fór út að hlaupa á þriðjudaginn, tæpa 6km. Það gekk bara ágætlega. Í gær (miðvikudag) fór ég svo í hlaupaklúbbinn og hljóp þar rúma 7 km. Þá er einhver annar að stjórna hraðanum, og ég var nærri dauð í lokin! Mér finnst svo skrítið hvað þolið eykst hægt. Kannski er það svefnleysið. Kannski aldurinn? :/ (ein enn að reyna að sætta sig við það óumflýjanlega....30 ára afmælið nálgast óðum!) Það þarf nánast ekkert að auka hraðann áður en ég finn fyrir því í löppunum. Træls.
Á sunnudaginn er 5 km hlaup í Odense. Takmarkið er að hlaupa á undir 30 mín :)
Ég er komin á dagpeninga og Jákup er bara að vinna dagvinnu, sem gerir það að verkum að við erum að fá mjög lítið útborgað eins og er, og út sumarið. Mér líður eins og við séum að lifa á fátækramörkum! Við erum bara svo góðu vön :) En það er alla veganna ekki mikið eftir þegar öll föstu útgjöldin eru borguð. Þá er gott að við erum búin að kaupa flugmiða heim í sumar :) Við stelpurnar komum heim 23.júlí til 2.ágúst. Jákup fer til Færeyja á meðan á reunion.
