Monday, October 25, 2010

Maður lærir allt lífið

Mikið get ég orðið þreytt á því stundum að vera enn að læra á lífið, orðin 30 ára. Ætli ég sitji enn þegar ég er orðin sjötug og nagi mig í handarbakið yfir einhverju sem ég sagði eða gerði?
Í mínu lífi fjallar það yfirleitt um að gjamma of mikið um eitthvað við einhvern. Og fatta það um leið og ég sleppi setningunni að ég hefði betur látið það vera. Það er bara þannig að ég greinilega á erfitt með að gera upp atburði með sjálfri mér fyrr en ég er búin að tala út um það. Og þyrfti stundum að sitja á mér, eiga það við sjálfa mig eða bíða þangað til ég er komin heim að tala við Jákup. Ég er alltof fljótfær, þoli það ekki! Og svo er ég oft of hreinskilin fyrir marga. En það er þeirra vandamál.
Djöfull hlýtur maður að vera orðinn klár um áttrætt! :)

Það er stöðugt verið að gera grín að því í vinnunni að ég sé síétandi. Hjúkkurnar segja að ég sé alltaf gúffandi eitthvað þegar þær sjá mig. Svo sagði ein þeirra í gær og ég hlyti að vera með hraða brennslu fyrst að ég gæti alltaf verið að áti. Ég held í alvöru að það sé í fyrsta sinn á ævinni sem ég heyri að ég hljóti að vera með hraða brennslu! En ég er satt að segja sjálf farin að hafa hálfpartinn áhyggjur af því hvað ég get látið ofan í mig af súkkulaði og ís án þess að það sjáist. Ætli ég sé að skipta alfarið um brennslukerfi á gamals aldri? (og þá meina ég gommuna af súkkulaði og nammi sé ég át í síðustu viku og ekki búin að bæta grammi á mig eftir helgina!) En er samt alveg til í að missa 2-3 kg sko.....Svona eru konur alltaf hálfklikkaðar :D hehe

Ég er bara ansi hress með að hjóla á morgnana þó ég sé búin að væla um annan bíl. í fyrsta lagi er þetta að venjast mjög vel (aftur. Er jú búin að hjóla allt daglega í mörg ár.) og mér finnst bara hressandi núna að mæta sveitt í vinnuna og vera búin að viðra mig aðeins áður en langur dagur byrjar. Í öðru lagi fitna ég ekki :) Í þriðja lagi tæmist hausinn af sjúklingum og hausverk á leiðinni heim! Snilld. Snjórinn má láta bíða eftir sér eins lengi og hægt er.

Eftir tvær og hálfa viku ætlum við Kristina að skella okkur í mæðgnaferð að heimsækja Dóru systur! Júhú!

Monday, October 18, 2010

Kröfur samtímans

Stundum verður mér hugsað að það sé stórfurða að kvenfólk í dag skuli almennt vera við góða geðheilsu. Í dag þarf maður að uppfylla öll hlutverk samtímans á sama tíma. Vera í góðri og krefjandi vinnu, sinna börnunum vel, vera góð eiginkona, líta vel út, stunda líkamsrækt, elda allan mat sjálfur og helst raw food eða amk allt lífrænt ræktað og sykurlaust, eiga góða vini sem maður hittir reglulega, vera virkur í foreldranefndum í skólum og leikskólum, og vera alltaf vel klipptur og vel klæddur!

Týpísk vika lítur svona út hjá okkur:

Mánudagur: Ræs kl.6, hafragrautur, nesti smurt, samningaviðræður við Kristinu um í hvaða föt hún á að fara. Út um dyrnar kl.7, Jákup keyrir Kristinu, ég hjóla með Írisi. Jákup keyrir í 35mín í vinnuna, ég hjóla á 15 mín frá dagmömmunni. Vinna til kl.15, sækja báðar stelpur á hjólinu og heim að fá okkur smá nasl og leika. Jákup kemur heim og ég elda mat, við fóðrum stelpurnar og böðum þær, lesum og háttum og þær fara að sofa á milli kl.18 og 19. Svo þarf að ganga frá þvotti, taka til, henda í uppþvottavél og svo er ýmist búið að slökkva á batteríinu mínu og ég dett út af kl.21, eða ég fer að vinna í rannsóknarvinnu í tölvunni (plús mínus facebook og mail! :)

Þriðjudagur: Jákup fer á næturvakt, á að mæta kl.15. Ég er ein með allan pakkann um kvöldið. Kristina fær að sofna í mínu rúmi. Íris vaknar 4 sinnum yfir nóttina og stelpurnar taka saman allt plássið í hjónarúminu. Ég með samviskubit yfir að hafa þurft að skamma Kristinu tvisvar á þessum tveimur tímum sem við erum saman fyrir háttatíma. Og enn einu sinni komst ég ekkert í ræktina í dag.

Miðvikudagur: Við vöknum saman allar þrjár kl.6, og nú þurfa að vera hraðar hendur til þess að komast af stað tímanlega til að hjóla með báðar stelpurnar fyrir vinnu. Helv... hjólavagninn er með vesen eins og venjulega. Dreymir um að eiga annan bíl! Brjálað að gera í vinnunni, er gjörsamlega heiladauð í lok dags. Var of þreytt til að fara út að hlaupa þegar stelpurnar eru sofnaðar, tímdi því ekki áður.

Fimmtudagur: Íris veik. Hver á að vera heima? Djöfull. Það okkar sem á að vera á vakt í stað stofugangs eða annars fer í vinnuna. Hitt er heima. Innri togstreita metnaðarins og samviskubits gagnvart vinnufélögum annars vegar og tilfinningar foreldris hins vegar berjast inni í okkur. Það er bara notalegt að vera heima með litla strumpinn þegar maður er búinn að losa sig við samviskubitið.

Föstudagur: Ég á kvöld-næturvakt. Gott að eiga rólega morgna inn á milli. Fullkomlega þess virði að vera í vaktavinnu. Jákup keyrir í vinnuna og ég hjóla með stelpurnar seinna en venjulega. Legg mig í 2 tíma og tek til. Sæki þær snemma og tek svo á móti barnapíunni sem kemur að passa þangað til Jákup er kominn heim. Ég hjóla í vinnuna.

Laugardagur: Kem heim kl.9 eftir kvöld-næturvakt, svaf ekkert á vaktinni en tími ekki að sofa á meðan stelpurnar eru vakandi. Leik við þær þangað til Íris þarf að leggja sig og sef á meðan. Hundrað verkefni á heimilinu bíða þess að vera sinnt. Þvottur eftir alla vikuna og þrif. Innkaup og matarplön fyrir vikuna. Samningaviðræður seinnipartinn un hvort foreldrið sé meira þreytt og hvort megi leggja sig. Samviskubit yfir því að hafa ekki verið nógu virk með stelpunum og hafi ekki gert eitthvað brjálæðislega frumlegt og örvandi eins og að fara niður á strönd í skítakulda og tína skeljar.... Fórum út á rólo í hálftíma. Fór heldur ekki út að hlaupa í dag.

Sunnudagur: Er að vinna dagvagt, seinnipartinn er í rólegheitum. Elda eitthvað fljótlegt úr frystinum eða pasta eins og venjulega. Hvert fór hugmyndaríkin í matargerð?? Þyrfti að hlaupa, skrifa verkefni, prjóna kápuna sem ég er að gera fyrir Írisi, sauma jóladagatal fyrir Írisi, setja myndir í albúm, taka til í geymslunni, horfa á kvikmyndina sem ég er búin að geyma í stofunni í margar vikur, lesa bókina sem ég þarf bráðum að skila á bókasafnið, hringja í 5 vinkonur, svara e-mailum, borga reikninga, lita á mér augabrúnirnar, raka á mér lappirnar, borða minna nammi. En ég sofnaði með Kristinu kl.20. Zzzzzzzzzzzzz

Wednesday, October 06, 2010

Októberblogg


Sjáið þetta krútt! Hún er alveg dásamleg :D

Fyrsti mánuðurinn er búinn í vinnunni og þetta er jafn crazy og ég reiknaði með. Mér finnst alltaf allt vera á hvolfi á heimilinu og ég næ aldrei að fara í ræktina. En vinnan er spennandi og ég held að stelpunum verði ekki mein af því að ég sé farin að vinna, og þá skiptir hitt engu máli :) Við Jákup erum að átta okkur á því hvernig best er að haga vöktunum okkar svo þær skarist ekki á. Við verðum að mestu í fríi um jólin og áramót, og reiknum með að foreldrar hans Jákups komi til okkar.

Íris er byrjuð að ganga meira og meira með stuðningi en þorir engan veginn að sleppa sér enn. Og Kristina kemur með gullmola á hverjum degi sem ég gleymi jafnóðum að skrifa niður. Þær eru alveg yndislegar saman, vilja helst alltaf vera nálægt hvorri annarri og hlæja mikið saman. Það er alveg óborganlegt!

Það er alveg að koma að því að ég byrji á tannréttingunum. Ég byrja á því að fá dregnar tvær tennur úr til þess að mynda pláss fyrir nýrri framtönn. Það verður ekki það skemmtilegasta, en ég verð tannlaus í tæpa viku þangað til teinarnir verða settir á. Ég mun telja niður mánuðina ;)

Mig langar í annan bíl! Ég hjóla alla daga í vinnunna (sem ég hef gott af) en er alltaf svo sveitt og í mikilli tímapressu að ná í stelpurnar.... Þegar ég vinn í lottóinu þá verður það það fyrsta sem við gerum :D