Saturday, January 28, 2006

Jibbíííí....

........nú erum við bæði búin að fá vinnu í sumar!! Ég á geðdeild sem aðstoðarlæknir, og Jákup sem hjúkrunarfræðingur á Eir !! Nú verð ég bara að tala íslensku við J allan daginn til að gera hann klárann;) Við erum mega spennt! Við komum fyrstu helgina í júlí og byrjum að vinna á mánudeginum. Hann verður út ágúst og ég til 15.sept. Nú vantar okkur bara íbúð eða herbergi! Ef einhver er að fara til útlanda og vantar að láta passa íbúð.....þá erum við til í slaginn;-)
Yfir og út!

Wednesday, January 25, 2006

Brrrrrrrrrrrr

Ég fór út að borða í gær með 30 manna hóp. Það voru 5 læknanemar að klára námið á dögunum, og þetta var kveðjukvöldverður, því þau eru öll að flytja heim núna næstu daga. Skrítið þetta líf. Og tíminn líður svo hratt. Ég man þegar ég byrjaði í læknanáminu, hvað mér fannst þau vera komin svakalega langt. Þá voru þau á 5.önn. Nú er ég að byrja á 9.önn og þau eru að klára! Jedúddamía hvað maður er orðinn fullorðinn! Kannski maður fylgist með útskriftinni á föstudaginn til að fá smá smjörþef af því sem er í vændum handan við hornið:) Ég hlakka til að klára. Ég hlakka hins vegar ekki til embættisprófsins!
Það var nú það. Og hendurnar á mér eru gaddfreðnar, og ég er heima hjá mér! Alveg er ég komin með nóg af -7 stiga hita og hálku! Ég er komin í gammósíur undir gallabuxurnar. Ef einhver vildi vita það. Best að fara að hunskast í skólann að gera eitthvað af viti. Þori varla út í kuldann samt. Gírarnir á hjólinu frjósa bara. Það er svo pirrandi.

Sunday, January 22, 2006

Brúðkaup

Ég fór að vinna í morgun kl.06.45 eftir 5 tíma svefn af því að nágrannar okkar héldu partý! Einhvern veginn passar það alltaf, að þegar ég á dagvakt daginn eftir þá halda þau partý:( Aðrir nágrannar okkar giftu sig í gær og það var rosalega rómantískt. Vinir þeirra voru búin að skreyta húsið að utan með æðislegum blómum og borða. Svo sáum við brúðina fara af stað í kirkjuna (í hvítum limmó) og kjóllinn var æði! Þegar þau komu heim í nótt var svo búið að kveikja á kertum um alla íbúð, strá rósablöðum um allt og setja kampavín á klaka. Svo rómó.....

Við J vorum annars dugleg í dag. Hann kom upp á spítala og hitti mig eftir vinnu og svo fórum við að æfa og tókum vel á því. Við erum svo rétt í þessu að fara að borða heimatilbúið Mousaka:D Mmmmmmmm.......

Saturday, January 21, 2006

Sumarvinna

Laugardagur í leti. Svoleiðis á það að vera. Prinsinn var skírður núna um hádegið og heitir Christian Waldimar André John. Ég sá það í sjónvarpinu á meðan ég hélt á öðrum litlum prinsi, honum Hjalte.
Ég er komin með vinnu heima í sumar! Ég hlakka mikið til, og við bæði (held ég, hehe). Ég ætla að vinna frá 1.júlí til 15.sept ca. Það verður gott að vera heima í smá tíma svona einu sinni! Ég er byrjuð að sakna Íslands meira og meira:( Og það verður gott að vera með smá pening á milli handanna! En við Jákup ætlum að reyna að finna íbúð sem við getum leigt yfir sumarið, þannig að ef einhver ykkar, kæru lesendur, vitið um íbúð á þessu tímabili, helst með húsgögnum, þá endilega látið mig vita! Það þarf ekki að vera neinn geimur:Þ

Saturday, January 14, 2006

Settlers!

Ég er búin að ná ansi mörgu í dag og samt ekki. Ég vaknaði kl.5.30 í morgun og missti mig í dugnaði af því að ég gat ekki sofið. Það skilaði sér svo í því að ég var að leka niður úr þreytu kl.20 og var alveg við það að fara bara að sofa, en núna er ég búin að skrifa alla pistlana sem ég skuldaði á síðustu færslu og er glaðvöknuð:)
Ég fór í bókabúð um daginn og keypti mér Settlers (Catan á Íslandi) plús sæfaraviðbótina. Nú á aldeilis að spila á þessu heimili! Ég smitaðist af bakteríunni heima af honum Kristni;) Verst að Jákup er ekki alveg jafn æstur í að spila og ég:Þ En ég píndi hann til að spila við mig í kvöld og á morgun ætla Stine og David að koma. Við ætlum í bíó seinnipartinn, borða saman og svo spila um kvöldið. Jeiiiii.

Sunday, January 08, 2006

Gleðilegt nýtt ár!

Ég skrifaði pistil um daginn en tölvan át hann, skömmin hafi það, þannig að ég hef ekki nennt að skrifa það aftur! En ég átti frábær áramót með henni Sigrúnu og æðisleg jól með fjölskyldunni og er nú komin heim til Odinsvé í kuldann og næturvaktirnar. Við höfum það samt gott, venjulega lífið byrjar á morgun og við erum að byrja í átaki eftir jólin;)
Ég verð að henda þessu inn, ég er svo samviskusöm, er búin að taka þátt á fleiri síðum og það er komið að mér:

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og...:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.