Friday, January 11, 2008

Ræktin

Vá hvad ég var búin ad gleyma hversu threyttur madur er thegar madur er nýbyrjadur ad taka á thví aftur í ræktinni! Ég fór í spinning á sunnudaginn, hljóp og fleira á thridjudaginn og fór í Pilates í gærkveldi. Og ég er búin ad vera óvenjulega threytt, en veit líka ad vellídan tekur fljótlega vid;) Kvídi samt mest hardsperrunum í magavødvunum sem koma á morgun eftir pilates tímann. Jesús pétur hvad magaæfingarnar voru erfidar! Thetta voru ad mestu kyrrstædar magaæfingar, m.a. á bolta, thar sem madur verdur ad spenna í grindarbotninum, magavødvunum, rétta úr bakinu, ýta øxlunum aftur og muna svo ad anda! Allt í einu. Thá mætti halda ad ég væri fáviti. Get med engu móti munad eftir øllu á sama tíma. " Ohh shit, ég slakadi á í magavødvunum" "NEI thá gleymdi ég øxlunum" "Shit -grindarbotnsvødvarnir!!" Og svo framvegis. Kannski eftir svona 30 tíma med sømu rútínu verd ég farin ad geta thetta:-D Thá er spinning audveldara, thar tharf madur bara ad svitna eins og hross og halda út tímann. Sem er erfitt thegar thad er lidid hálft ár sídan sídast. Thá er ekki gód hugmynd ad stilla sér upp fremst thannig ad allir geti horft á mann hvort madur sé ad gefast upp og hvort madur geti stadid allan tímann. Man thad næst.
Er á vakt og get ekki bedid eftir ad koma heim til kartøflunnar á morgun. Hún er yndislegust. Henni finnst kryddadur matur bestur og bidur um ad fá spennur í hárid.

Thursday, January 10, 2008

Tølvudrusla

Tølvan mín vill allt í einu ekki leyfa mér hvorki ad blogga né kommenta á blogspot! Ég er búin ad fara í internetstillingar og gera blogspot ad safe sídu, en allt kemur fyrir ekki! Ég er búin ad sjá øll kommentin hjá mér, en get ekki svarad:(
Tølvusnillingar, einhver, hjálp?

Tuesday, January 01, 2008

Áramót

Gledilegt nýtt ár!
Vid litla fjølskyldan erum búin ad eyda áramótunum á geddeild. Vid Jákup erum ad vinna og Kristina Ósk fær ad fljóta med:) Vid gleymdum ad taka myndavélina med í gær thegar vid fórum á eina deildina ad borda áramótakvøldmatinn. Thad hefdi verid fyndid ad eiga myndir af litla stýrinu thar sem hún sat og bordadi med hinu starfsfólkinu og heilladi alla uppúr skónum á geddeild á ødrum áramótunum hennar:) Restinni af kvøldinu var svo eytt í ad reyna ad svæfa hana thrátt fyrir endalausar símhringingar, sem stoppudu svo um 20 leytid. Thá var ég komin med hálsbólgu ofan í kvefid mit og hitavellu, og var ég thví farin ad sofa thegar lætin byrjudu. Jákup hélt sér hins vegar vakandi til thess ad syngja fyrir Kristinu, hún var svo óróleg út af øllum lætunum. Ótrúlegt hversu miklum flugeldum var skotid á thessum litla stad!
Vid eldudum okkur nautalundir med ofnsteiktum kartøflum og sósu ádan. Kristina hefur verid nokkud lystarlítil undanfarid, thannig ad ég reiknadi med ad hún nartadi í nokkrar kartøflur og ekki mikid meira en thad. Ónei, litla daman skófladi inn helmingnum af steikinni minni og vildi ekki sjá kartøflurnar! Hún líkist víst pabba sínum meira en vid héldum;)
Á morgun tekur vid verkefnavinna fram í mars, og "det kan kun gå for langsomt" eins og madur segir á dønskunni! Thad er nóg eftir af bádum verkefnum, og vid ad verda stressud.
En mikid verdur gott ad sjá mømmu, og kannski pabba, eftir 2 vikur!:) Ég missti af miklu áramótafjølskyldubodi í gær, en hlakka bara theim mun meira til ad vera med næst. Thad verdur gott ad fá heimsóknir í stadinn.

Árid 2007 var fyrsta árid okkar sem lítil fjølskylda. Litla gullid okkar er búin ad throskast ótrúlega mikid á thessu ári. Ég hlakka til thess nýja, sídasta árs míns sem læknanemi og kannski sídasta árs í Danmørku? Spennandi!