Friday, December 24, 2004

Hóhóhó!

Nú er ég búin að vera heima í Dyrhömrum í tæpa viku að pakka jólagjöfum og dundast með familíunni. Ég get ekki sagt að ég sé búin að vera dugleg að skrifa jólakort í ár! Þetta eru fyrstu jólin okkar Jakobs sem við erum ekki saman, og ég sakna hans alveg hræðilega! Vonandi verðum við saman næstu jól....
Ég er búin að fá að passa Theódór Helga þrisvar síða ég kom, og hann er mesta krúsímúsídúlla í heimi! Það er ekki hægt að láta sér ekki þykja óendanlega vænt um svona mjúkar rúsínubollur sem sjá ekki neitt:) Ég er líka búin að fara í heimsókn til Helgu og Jóa og sjá gullfallegu dóttur þeirra hana Steinunni Marsilíu. Hún verður sko ákveðin ung dama, enginn vafi um það:)
Á mánudaginn ætla ég að hitta hana Kristrúnu frænku og við ætlum að kjafta úr okkur öll vit, og á þriðjudaginn ætlum við Herborg, Dagmar, Anna Sigga, Arndís og Ásdís að hittast og borða góðan mat heima hjá Dagmar og dást að litla stráknum hennar. Á gamlárskvöld er ég svo búin að bjóða sjálfri mér í áramótapartý og afmæli hjá honum Óla, sjáum hvað hann segir við því:) hehe
2.janúar er svo brúðkaup Kristins bróður og Pálínu og skírnin hans Theódórs Helga, og eftir það þá er bara tími til kominn að drífa sig heim til Fjónar.

Vegna jólakortaleti minnar í ár þá vil ég bara óska allra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs! Ég sé vonandi alla áður en ég fer heim aftur!

Monday, December 13, 2004

Jólajóla

Ég er barasta næstum því búin að kaupa allar jólagjafirnar í ár! Við skötuhjúin rumpuðum því af í tveimur innkaupaferðum um helgina rétt áður en búðirnar lokuðu báða dagana. Við skruppum líka í húsgagnaverslun niðri í miðbæ á leiðinni heim í gær og náðum í sófaborðið sem við gefum hvoru öðru í jólagjöf í ár. Það var helvíti þungt að bera það heim! Við erum bæði með heavy harðsperrur í dag... Deginum lauk svo með snilldar kjúklingarétt sem mamma sendi mér uppskriftina af einu sinni, og salati og hrísgrjónum í sófanum við nýja sófaborðið. Það gerist varla betra......
5 dagar í heimferð!!!

Sunday, December 05, 2004

Desemberrökkur

Eitthvad er ég búin að vera löt að skrifa! Nú er dvöl minni á skurðdeild alla veganna lokið og ég byrja hjá heimilislækni i Kolding á morgun. Vona að hann sé ekki einhver sveittur gamall kall!! Ég fæ að mæta kl.9 á morgun sem bjargar alveg hreint lífi mínu því ég er búin að vinna 12 tíma vaktir bæði í dag og í gær og þurfti að vakna fyrir allar aldir eins og alla aðra daga, þannig að á morgun fæ ég að sofa alveg til kl.7!! (fagnaðarlæti.....) Dagarnir eru alveg skuggalega stuttir orðið! Ég er rétt að stíga fæti inn um dyrnar á spítalanum á morgnana þegar sólin kemur upp og er á leiðinni heim þegar sólin er að setjast. Og þegar ég kem heim þá nenni ég engan veginn að fara aftur af stað, og finnst eins og það sé bara tími til að fara aftur að sofa, eins og það er dimmt! Ég ímynda mér oft þegar ég er að labba heim seinnipartinn hvernig mér myndi líða ef það væri sumar og klukkan væri 4 um daginn. Og satt að segja þá finn ég alveg inn að beini að ef það væri sumar, þá væri dagurinn sko rétt að byrja, og maður gæti sko bara sofið einhvern tímann seinna!! Kannast einhver við þessa tilfinningu??
Ég ætla bara að taka fram að sálarheilsan er fín, það er ekkert þunglyndi hér á ferð:) hehe
Jákup fór í afmæli hjá bekkjarfélaga okkar í gærkveldi (mér var líka boðið, en tíminn var dýrmætur, vildi frekar sofa...:) og kom heim klukkutíma áður en ég þurfti að vakna í vinnuna, frekar kenndur greyið. Samt var hann búinn að elda þessa dýrindis máltíð þegar ég kom heim í kvöld þessi elska! Namminamm! Alltaf gott að þurfa ekki að standa og elda matinn þegar maður kemur heim glorhungraður:)
P.s. 13 dagar þangað til ég kem heim! Teddi litli verður knúsaður sundur og saman! Og allir hinir auðvitað líka:)