Wednesday, February 04, 2009

Myndir?

Er ekki kominn tími á update? :D
Fjölskyldan er farin heim og við áttum stórkostlegt brúðkaup með eftirminnilegum ræðum og frábærum mat. Fengum alveg rosalega mikið af fallegum gjöfum, sem við hlökkum mikið til að taka upp úr kössunum og byrja að nota þegar við erum flutt og búin að koma okkur fyrir!
Við erum ca hálfnuð með að flytja, pabbi og Kristinn hjálpuðu okkur með mikinn hluta á laugardaginn (já svona er að koma í heimsókn til busy fólks, maður er bara settur í flutninga:) og Jákup er búinn að nýta pabba sinn í nokkrar ferðir í vikunni. Restin verður tekin á laugardaginn. Þangað til erum við einungis með sófa, rúm og borðstofuborð á heimilinu, ásamt eldhúsdóti. Sjónvarpið er hérna enn, en Jákup er búinn að fara yfir með alla dvd og annað skemmtiefni, þannig að ég verð að láta mér nægja að horfa á fréttir. Ég á að vera í vinnunni í dag, en er búin að vera kvefuð og hás og slöpp síðan á mánudagsmorgun. Nýja vinnan byrjaði sem sagt vel. Og þetta náði nýjum hæðum í morgun þegar ég fékk hóstakast þangað til ég pissaði á mig:S Ég er með einhverjar kommur, og ákvað að vera skynsöm og vera heima undir sæng til þess að reyna að ná þessu einhvern tímann úr mér. Samviskan er samt alveg að fara með mig. Ný í vinnunni og strax orðin veik, ég sem verð aldrei veik. En það er kannski ekkert skrítið eftir allt álagið sem hefur verið á okkur.
Vinur okkar úr bekknum ákvað að yfirgefa konuna sína um helgina vegna annarrar konu (bekkjarsystur). Þau eiga 2 börn og konan er ólétt. Það fylgdi ekki sögunni hvort bekkjarsystirin sé til í tuskið. Ég er hreinlega orðlaus yfir því að það sé hægt að henda lífi sínu svona út um gluggann og særa sína nánustu. En það hljóta að hafa verið erfiðleikar hjá þeim sem betur skýra aðstæður. Mikið finn ég til með konunni hans.
Alla veganna, ef einhver vill sjá myndir úr brúðkaupinu okkar, sem vonandi ekki endar á þennan sorglega hátt, þá fylgist spennt með þessari síðu hjá Kristni bróður!