Wednesday, September 23, 2009

Hvar á maður að byrja? Litla snúllan komin í heiminn og hægt að lesa um það allt á barnalandi. Hún er búin að liggja á brjóstinu stanslaust síðan hún fæddist þannig að þreytan er að ná hámarki. En núna er hún loksins farin að sofa södd og þá snýst þetta vonandi við á næstu dögum.
Við erum búin að ákveða nafn á hana, og af því að skírnardagur er óákveðinn, ætlum við bara að segja frá því strax. Stubban á að heita Íris Lilja Jákupsdóttir.
Kristina er rosalega hrifin af litlu systur og alsæl í leikskólanum, en svolítið athyglissjúk eins og við er að búast. Við finnum strax vel fyrir því að það er munur á einu barni og tveimur. Við erum alltaf með hendur fullar af börnum, að reyna að sinna matseld og tiltekt á sama tíma :) Það verður spennandi að sjá hvernig lífið verður með fleiri börn! En eitt í einu takk :D
Ég er eins og flak eftir meðgönguna, öll lin og slöpp og í hræðilegu formi! Hlakka til að fara að hreyfa mig þegar grindin er hætt að kvarta. Ég er stöðugt svöng, því var ég búin að gleyma frá síðast. Ekki amalegt að geta borðað meira í smá tíma ;) En ég get ekki hætt að horfa á þetta litla fullkomna eintak sem var að koma í heiminn, finna lyktina af henni og kyssa hana!

Tuesday, September 15, 2009

Fyrsti leikskóladagurinn

Við smurðum nesti í prinsessunestisbox í morgun og báðir foreldrar fylgdu stóru stelpunni okkar í leikskólann í morgun því Jákup er í fríi í dag. Kristina var ekki lengi að finna sér eitthvað að dunda við, settist með nokkrum stelpum í stofunni sinni og fór að klippa í pappír og lita. Hún hefur aldrei klippt áður, svo við vitum til, og var alveg hugfangin af þessari iðju. Við vorum hjá henni í klst eða svo, og ákváðum svo að reyna að skilja hana eftir í nokkra tíma. Hún vinkaði okkur bara bless og hélt áfram að föndra með stelpunum. Við Jákup notuðum tímann og fórum inn til Aabenraa að versla nauðsynjar til þess að laga til í þvottahúsinu okkar, knaga og slá. Leikskólakennarinn ætlaði bara að hringja ef hún yrði óhuggandi eða ef hún gæti ekki sofnað með hinum, en við heyrðum ekkert í þeim. Þegar ég kom til baka kl.13.30 var hún nývöknuð eftir hádegiskúr, búin að borða nestið sitt og alsæl. Hún vildi ekki koma með mér heim, heldur vildi hún bara fara út að leika! Við urðum því að fara út að leika í hálftíma áður en ég gat tekið hana með mér heim, með loforði um að við kæmum aftur á morgun:) Hún er svo á leiðinni í leikfimi á eftir með pabba sínum, þar eru mörg af börnunum í leikskólanum líka. Alveg hreint ótrúlegt að þetta hafi gengið svona vel. En kannski koma einhver viðbrögð á morgun, hver veit?

Ég fékk líka alveg frábært símtal í dag. Þannig er mál með vexti að útleigjandinn okkar frá þarsíðustu íbúð, sem við fluttum úr í byrjun febrúar, er búinn að vera með eintómt vesen og vildi ekki borga okkur trygginguna okkar til baka (18 þús danskar!), og einnig bara hluta af henni vegna viðgerða sem við áttum ekki að þurfa að borga. Ég er því búin að rekja allt málið fyrir samtökum leigjenda í Danmörku og gerast meðlimur þar. Ég skrifaðu ítarlega niður öll okkar samskipti við þennan manndjöful og gerði ljósrit af lista sem við gerðum þegar við fluttum inn, yfir það sem var að íbúðinni þegar við tókum við henni. Svo er ég búin að bíða spennt eftir því að einhver tæki málið að sér, og var ekki með á hreinu hvort við værum með eitthvað haldbært gegn honum eða ekki. Þetta eru sjálfboðasamtök sem vinna þetta fyrir mann, þannig að hlutirnir geta tekið smá tíma. En sú sem tekur mál okkar að sér, hringdi í morgun og staðfesti að allt sem maðurinn hefur gert sé kolólöglegt, og að hann eigi að borga okkur alla trygginguna til baka. Hún ætlar að taka við héðan í frá. Yes! Það var svo frábært að fá staðfest að hann væri búinn að svindla á okkur, og ennþá betra að hann fái ekki að komast upp með þetta! Ég er í skýjunum með þetta, sama hversu langan tíma það mun taka að fá peninginn aftur. Þetta er bara orðið principmál fyrir mér! Segið svo að Ásta sé ekki með allt á hreinu ;)

Hleðslutækið að myndavélinni okkar kom loksins í leitirnar í gær, og það meira að segja eftir að ég kom með hugljómun yfir það hvar það gæti verið! Og hafði rétt fyrir mér. Hjúkk, það var ekki seinna vænna. Nú er myndavélin hlaðin, og ég tilbúin að fara að eiga þetta stúlkubarn;)

Monday, September 14, 2009

Komin með net!

Thank god! Ég var nú alveg að missa mig yfir þessu sambandsleysi. En hafði samt gott af smá pásu;)
Ég er sem sagt búin að liggja í símanum að tala við tæknimenn seinnipartinn af því að það var eitthvað að uppsetningunni hérna. En þetta er komið í lag, og ég get farið að fylgjast með lífi annarra aftur:) Ekki að ég hafi ekki verið í símanum eins og símamella síðustu daga! Ég fæ stærsta símareikning ever eftir þessa viku! Hehe
Kristina byrjar í leikskólanum á morgun og biðin mikla hefst fyrir alvöru. Litla krílið sparkar eins og galin öll kvöld en það er ekki snertur af hríðum eða fyrirvaraverkjum. Ég á greinilega bara að vera ólétt eins lengi og fíllinn.... Ég var reyndar í Odense á laugardaginn, og fékk þá verki í bakið. Þá fór ég strax að vona að það væru merki um að eitthvað væri að gerast, en verkirnir hættu fljótlega!%#! Ég fer að sofa á hverju kvöldi og vona að vakna með hríðar. Það er það snilldarlega við þessar löngu meðgöngur -maður verður svo þreyttur á að bíða að maður fer að vonast eftir verkjum! :D

Friday, September 11, 2009

Flutt

Vid erum flutt, en ekki komin med internet. Internetfyrirtækid er búid ad vera med eintómt vesen og ég er ad verda vitlaus á ad vera sambandslaus vid umheiminn.
Flutningarnir gengu mjøg vel og vid erum ad klára ad koma okkur fyrir. Kristina er búin ad fara í heimsókn á leikskólann sinn og okkur leist bara vel á. Hún byrjar á thridjudaginn.
Ég er ekki búin ad eiga! Ljósmódirin mat barnid í kringum 3200g á midvikudaginn, thannig ad hún verdur kannski svipud á stærd og Kristina. Hún er ekki búin ad skorda sig.
Ég er á bókasafninu og komst í tølvu. Vid Kristina erum ad skoda okkur um í "midbænum" okkar. Hér er bókasafn, bókabúd, bakarí og ørfáar búdir. Svo eru 7km inn til Aabenraa thar sem er miklu stærri midbær.
Skrifa aftur thegar netid er komid.

Friday, September 04, 2009

13 dagar

Ég tók því rólega í gær eftir að ég á aðfaranótt fimmtudags var með samdrætti á 5mín fresti í 7 tíma. Þeir hættu svo af sjálfu sér, og eru ekkert búnir að láta á sér kræla aftur. Mamma fyrirskipaði rólegheit, og ég fór að mestu eftir því í gær ;) Það eru jú flutningar framundan á morgun, þannig að það er ekki alveg hægt að leggjast bara í kör hérna. En ég varð að fara með Kristinu til eyrnalæknis í dag, kaupa gjöf handa dagmömmunni og versla í matinn. Þurfti líka að fara á pósthúsið, skila bók í bókasafnið, þvo síðasta þvottinn (3 vélar) og fara með flöskur í búðina. Þannig að ég er búin að gera miklu meira en ég ætti í dag, og það er bara rétt svo hádegi :S En þetta er síðasti dagurinn hennar Kristinu hjá dagmömmunni, og þá verður maður að koma með gjöf og gotterý handa krökkunum (þau fengu vínber og kakómjólk!). Kristina var algjör engill, labbaði allt sjálf í morgun og gerði mömmu sinni þetta eins auðvelt og hægt var. Og eyrnalæknirinn var ánægður með hana. Hún mætti svo fyrst til dagmömmunnar kl.11.
Annette engill ætlar að sækja hana seinnipartinn og fara með þau Andreas í bíó svo við getum pakkað í friði. Sem er ágætt, því við pökkuðum herberginu hennar Kristinu í gærkveldi, og það fyrsta sem hún sagði þegar hún vaknaði í morgun var, að hún vildi ekki hafa dótið sitt í kössum og fór að hágráta! :S Ég reyndi að útskýra fyrir henni að við værum að fara að flytja í nýtt hús á morgun, og að allt dótið hennar kæmi þá upp úr kössunum, en þá sagðist hún ekki vilja flytja í nýtt hús, hún ætti heima hér! :(
Hér er komið rífandi rok og grenjandi rigning á köflum. Það er greinilega komið haust! Ég er þó enn í sandölum, hehe...
Jæja, þá er eldhúsið eftir. Og síðustu flíkurnar.

Tuesday, September 01, 2009

16 dagar!

Jákup er byrjaður að vinna aftur og lagði af stað til Sönderborg kl.6 í morgun. Hann átti að mæta kl.8...skemmtilegar vegalengdir þetta. Mér finnst skrítið að vera ein heima aftur, en kem ýmsu í verk á meðan. Er að þvo þvott og þvo sængina fyrir litla krílið m.a. Ég er líka að reyna að pakka í létta kassa, Jákup getur þá flutt þá þegar hann kemur heim í dag.
Ég kláraði bókina áðan og var ekki með sjálfri mér í smá stund á eftir. Maður ætti kannski að geyma það að lesa tilfinningaþrungnar bækur þangað til eftir meðgönguna -sérstaklega bækur um lítil börn sem eiga bágt :( En vá hvað þessi kona nær til manns! Trúi því ekki að ég hafi ekki lesið neitt eftir hana áður.
Skrítið hvernig það er með bækur. Allar góðar bækur eru þannig byggðar upp að það kemur að einhverjum punkti sem maður hættir að geta lagt þær frá sér. Það er misjafnt hversu langt maður þarf að lesa þangað til að þeim punkti kemur. Og sennilega er það líka misjafn hvað það er sem snertir mann eða hvað manni finnst spennandi. Það væri gaman að vita hvort fólk nær þessum punkti á ca. sama tíma fyrir hverja bók :) Þessa bók gat ég ekki lengur hætt að lesa þegar ég var komin 1/3 inn í söguna. Þá vitiði það.
Annette vinkona mín kom eins og sönn hetja hingað kl.8.30 í morgun til að ná í okkur mæðgur til þess að keyra Kristinu til Anne-Marie svo ég þyrfti ekki að hjóla. Svo var mér skutlað aftur heim og verð sótt aftur kl.14.30. Algjör lúxus! Hún ætlar að aðstoða mig þessa vikuna þangað til við flytjum. Jákup ætlar reyndar að keyra Kristinu næstu 2 dagana, þá á hann nefnilega að mæta í Haderslev, sem er mun styttri keyrsla. Þannig að Annette sækir hana, nema að ég reyni að hjóla...;)