Ég er nú bara að fíla þetta yoga meira og meira. Ég vaknaði með harðsperrur í morgun eftir miklar teygjuæfingar í gær. Ég er jafnvel að hugsa um að skrá mig á venjulegt yoga námskeið, á kvöldin, þegar þetta fæðingar yoga námskeið er búið. Ég næ ekki alltaf að gera allar æfingarnar, ef Kristina Ósk er eitthvað óþolinmóð eða svöng á meðan á tímanum stendur. Í síðustu viku náði ég næstum því bara helmingnum, því KÓ var svöng og svo kúkaði hún upp á bak og ég varð að skipta á öllu. Þegar ég kom til baka voru þær byrjaðar á slökun:( Í gær var hún óþekk og vildi ekki sofa, en kennarinn var svo sæt að halda á henni næstum því allan tímann, svo ég náði að gera mest allt. Kennarinn er alltaf með 1 eða 2 börn á handleggnum:) Það er líka æðislegt að finna hvernig líkaminn er að styrkjast eftir meðgönguna, ég verð sterkari með hverjum tímanum.
Við erum að undirbúa ferðina til Íslands á fullu þessa dagana. Ég fór með jakkafötin hans Jákups í hreinsun í gær og lét festa tölurnar betur á. Svo er ég búin að kaupa mér föt og Jákup er búinn að kaupa nýja skyrtu og bindi. Ég er í daglegum samskiptum við mömmu vegna skírnarundirbúnings. Hún greyið stendur nánast fyrir þessu, því við komum svo seint heim. En við hlökkum svo mikið til að koma heim og hitta alla, og sýna prinsessuna:-)

