Friday, June 27, 2008

Sumarfrí

Síðasta prófið var í dag og gekk mjög vel. Það er búið að vera stíf dagskrá í dag vegna útskriftar allra vinanna, og ekki tími til að slaka á heima. Hvað þá heldur að taka til eða þrífa fyrir sumarið! Við leggjum af stað til Köben í fyrramálið og þaðan til Parísar, og svo er Íslandsferð strax á eftir, og ég er ekki byrjuð að pakka. Ohmygod. Það er svo notalegt að geta gengið vel frá eftir sig og tekið til áður en maður leggur af stað, en það er ekki í boði, því miður. Við verðum heppin ef við munum eftir öllu!:S
Það var örlítið skrítið að sjá alla vinina klára í dag, og vera ekki á meðal þeirra. En næst er komið að okkur! Marga af þessum bekkjarfélögum eigum við aldrei eftir að sjá aftur. Fólk dreifist um allt, Svíþjóð, Noreg, Færeyjar, Brasilíu, Sjálland, Jótland. Undarlegt eftir 6 og hálfs árs samveru upp á næstum hvern dag!

Tuesday, June 24, 2008

Oooo týpisk staða sem ég er í. Áður en þessi blokk byrjaði, ætlaði ég aldeilis að vera langt á undan í lestri, en hvað gerist? 3 dögum fyrir próf finnst mér ég eiga eftir að fara yfir mest allt, og hef ekki tíma í neitt annað en lestur þegar ég er ekki að sinna Kristinu. Öll kvöld fara í lestur. En það er líka að styttast í Parísarferðina og heimferð, og margt sem þarf að ganga frá áður. Þess vegna hefur líka farið talsverður tími í pappírstúss og reddingar.
Ég er að vinna úr innihaldi ísskápsins og frystisins, og þá þarf að nýta það sem til er! Þess vegna var bráðnauðsynlegt að búa til pönnukökur í gær, af því að ég átti allt of mikið að eggjum;) Leiðinlegt það. hehe.
Ég fór á fund í dag með leiðbeinandanum mínum og tölfræðingi til þess að fá leiðbeiningar um hvernig best væri að gera Anova greiningu á niðurstöðunum hjá mér. Smá auka efni fyrir greinina. Það er erfitt að koma með gáfulegar spurningar um svona tölfræði:P En ég held að ég hafi skilið hvað á að gera. Spurningin er hvort ég geti komið þessu gáfulega frá mér! hehehe

Tuesday, June 17, 2008

Doctor doctor

Ég fór til læknis í dag til að biðja um tilvísun í nefaðgerð. Ég er með svo skakkt miðnes (takk mamma) að ég anda nánast eingöngu í gegnum aðra nösina. Ef ég kvefast, þá sef ég varla því ég verð að geta andað í gegnum nefið. Ég vill að ákveðinn yfirlæknir á háls-nef- og eyrnadeild geri aðgerðina því hún er best. Ætli ég verði ekki kölluð inn árið 2012 í aðgerð. Verst að það þarf að gerast áður en ég flyt til Íslands, því þá þarf ég að borga fyrir það! hehe
Læknirinn minn er með ungan lækni hjá sér sem er í sérnámi til heimilislæknis. Það var hún sem tók á móti mér í dag. Þegar ég kom inn, spurði hún hvað hún gæti gert fyrir mig og afgreiddi það. Næstu 10 mínúturnar fóru í að ræða það hvernig hún gæti komist til Íslands að vinna í nokkra mánuði í afleysingar. Hvort ég væri með einhver sambönd osfrv. Ég fékk e-mail adressuna hennar og lofaði að senda henni adressuna hjá lækninum sem ég er að fara að leysa af í sumar.
Hvor okkar ætli hafi fengið meira út úr þessum tíma?:)

Saturday, June 14, 2008

Er ekki um að gera að éta sig fullsaddan af íslensku nammi mánuði áður en maður kemur heim? Mamma var að senda mér pakka.

Ég á að vera að læra.

Nennir einhver að blogga eitthvað skemmtilegt svo ég hafi eitthvað að lesa?

Nærfatafetish?

Kristina er á einhverju fataskeiði, henni finnst æðislegt að reyna að klæða sig í allt mögulegt. Oft er hún þar af leiðandi í tvennum buxum og náttfötum um miðjan dag osfrv. En nú slær öllu við. Hún var að róta í óhreina tauinu í dag og kom fram alsæl með nærbuxur af móður sinni um hálsinn. Ég reyndi að fjarlægja þær og setja aftur í bunkann, en þær voru sóttar aftur jafnharðan. Þá tók ég á það ráð að skipta og gefa henni hreinar nærur til að bera sem hálsfesti:D
Rétt fyrir kvöldmat fann hún svo skítugar boxer nærbuxur af pabba sínum, sem var að enda við að keppa í fótbolta. Þær varð hún að reyna líka. Hann reyndi sama ráð og ég fyrr í dag, með mun lakari árangri. Hún er þó búin að gleyma því núna:-)

Friday, June 13, 2008

Það var lítið sofið í nótt. Börnin vöknuðu til skiptis til þess að fá snuð eða vatn eða bara til að grenja aðeins upp úr svefni. Strákurinn vaknaði svo kl.4.20, þegar Jákup kom heim af djamminu. Ég var meðvitundarlaus, og heyrði ekki einu sinni í honum! Jákup var svo sætur að taka hann fram og leyfa mér að sofa aðeins áfram, þrátt fyrir ástandið á honum sjálfum:) Kristina vaknaði svo kl.5.30 við lætin í þeim og þau borðuðu hafragraut áður en ég fór á fætur. Mamman kom svo í mjög svo slæmu ástandi að sækja hann svo við kæmumst í skóla og til dagmömmu (Jákup svaf). Ég náði í McD fyrir manninn minn á leiðinni heim úr skólanum, sem þakkir fyrir morguninn. Það var vel þegið:D

Thursday, June 12, 2008

Ásta Nanny

Yes, er byrjuð aftur í skólanum eftir 3ja vikna pásu. Það er ljúft, alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. Sit hérna sveitt að læra, en ætti að vera farin að sofa. Er að passa lítinn gaur fyrir vinafólk sem var í embættisprófi í dag og eru því úti að fagna. Hann vaknar kl.5 á morgnana og ég ætti því að demba mér í rúmið til þess að vera úthvíld eftir nokkra tíma, en börnin grenja bara til skiptis, þannig að það tekur því varla:S Ég held að Kristina sé óörugg við það að hann sé í pössun, hún er nefnilega búin að sofa eins og engill upp á síðkastið. Hún er reyndar með eyrnabólgu í báðum, svo það gæti líka verið það sem er að trufla hana.
Ég verð annars alveg fjúkandi brjáluð þegar ég sit hérna að læra um nýrnasjúkdóma, hvernig læknirinn bar sig að um daginn þegar Kristina fékk þvagfærasýkingu! Hún var búin að vera meira eða minna veik í 6 vikur og var með næstum 40 stiga hita, hékk á okkur eins og slytti og vildi ekkert ganga eða leika sér. Þvagprufan sýndi sýkingu, en það var föstudagur og hann gat ekki sent þvagið í ræktun. Þannig að hann sendi okkur heim og bað mig um að koma aftur á mánudeginum með þvagprufu! Ég gæti lamið mig fyrir að fara eftir þessu. Ég hringdi svo í vaktlækninn daginn eftir og fékk sýklalyf af því að hún var þá hætt að borða líka. Nú er ég að lesa að börn með svona mikinn hita og merki um þvagfærasýkingu eiga að leggjast inn og fá sýklalyf i æð. Og það er hætta á að það myndist ör á nýrunum ef meðferð seinkar um meira en 2 daga, sem getur háð þeim seinna í lífinu. Ég vissi þetta meira að segja nokkurn veginn, en var ekki með þetta alveg á hreinu og treysti honum því bara fyrir ákvörðuninni. Það er engin lygi að maður fær oft verri meðhöndlun af því að maður er læknanemi eða læknir. Þá er manni nefnilega t.d. frekar treyst til þess að fylgjast með einkennunum sjálfur osfrv. Ég lem hann næst þegar ég sé hann.
Finnst einhverjum ég oft passa annarra manna börn??:)

Thursday, June 05, 2008

Legoland

Kristina gekk um allt Legoland með dúkkukerruna sína og Annabell
Fjör
Fröken fix fór í hringekju og fannst það mikið fjör
Krútt
Fjölskyldan fór saman í lestarferð og Annie tók myndir

Wednesday, June 04, 2008

Vörn og Dýr

Ég varði verkefnið mitt í gær, og það gekk alveg ágætlega. Ég fékk 10, sem er næsthæsta einkunnin hérna eftir að einkunnakerfinu var breytt. Ég verðskuldaði ekki hærra, enda grilluðu þeir mig í vörninni og spurðu mig um svo margt sem ég hafði ekkert velt fyrir mér. Ég bjargaði mér samt alveg út úr því og þetta reddaðist allt saman:)


Í dag fór ég og hélt fyrirlestur á háls- nef- og eyrnadeildinni um verkefnið mitt og yfirlæknarnir héldu ekki vatni yfir verkefninu! Þeir voru sem sagt mjög hrifnir, og hvöttu mig óspart til að birta verkefnið í erlendu tímariti frekar en dönsku, eins og við leiðbeinandinn höfðum hugsað okkur. Það myndi þá þýða að ég þyrfti að liggja yfir verkefninu í sumar og þýða það á ensku og bæta ýmislegt.... Sjáum til;) Ein af Kristinu í fyrradag, hún setti sjálf á sig hjálminn og var tilbúin í ferðalag:)
Kristina og Annabell í ljónagarðinum
Kristina og Jákup að skoða fílanaVið fjölskyldan fórum strax eftir vörnina í gær í ljónagarðinn á Jótlandi og tókum Annie faster með okkur. Það var geggjað veður og dagurinn var æðislegur. Kristina var eins og ljós í bílnum, sem veitir á gott fyrir Parísarferðina okkar eftir rúmar 3 vikur!