Wednesday, April 27, 2005

10km!!

Markmiðinu er náð: ég hljóp 10km í dag í fyrsta skipti á ævinni! Hljóp á 1.01klst. Þetta var æfing fyrir sjálft hlaupið sem er á fimmtudaginn í næstu viku. Þá verður hlaupið á undir einni klukkustundu, það er nokkuð ljóst:)
Þá verður maður að setja sér nýtt markmið, ekki satt?.....en ég held að ég sleppi maraþoninu samt:) hehe

Monday, April 25, 2005

Gleðilegt sumar!

Við erum aldeilis búin að borða góðan mat á meðan pabbi hefur verið hjá okkur. Ummmm. Við erum að elda hamborgarahrygg með brúnuðum kartöflum núna og ilmurinn af kjötinu er alveg að gera bragðlaukana í mér brjálaða:) Hlakka til að skófla honum í mig...
Við fórum til Köben á þriðjudaginn og skelltum okkur í tivoli, og gamli maðurinn stóð sig eins og hetja. Hann fór með mér í öll tækin, enda var hann búinn að kaupa sé turpas, og það meira að segja tvisvar í gullna turninn ægilega! Ég er stolt af honum, kallinum! Jákup þorði sko engu og horfði bara á okkur:) Svo fengum við okkur að borða og röltum niður á Nyhavn áður en við keyrðum til baka.
Á miðvikudaginn fórum við með pabba í tölvuleiðangur og keyptum okkur nýja tölvu! Þvílíkur lúxus að vera með almennilega tölvu, og þvílíkur lúxus að hafa pabba til að setja allt upp og ná í öll prógröm eða hvað þetta heitir allt saman:) haha Ég held reyndar að pabba hafi ekkert leiðst þetta;) Svo tókst okkur á fá virus í tölvuna strax fyrsta daginn, þannig að þeir gátu skemmt sér við að losna við hann aftur í sameiningu, pabba og Jákup. En nú getum við nördast enn meira en fyrr og setið í sitt hvorri tölvunni og verið bæði á netinu því pabbi er auðvitað búinn að redda því líka:)
Svo fór ég að djamma á föstudaginn og pabbi fór til Michael vinar síns, og við vorum bæði ansi þreytt á laugardaginn og gerðum mest ekkert. Í gær skelltum við okkur þó í bíltúr til Bogense. Mér tókst líka það afrek að mistakast herfilega að baka marengsköku, og hún endaði bara í einni klessu í skál, með súkkulaðibitum og rjóma:S Við átum hana þó með bestu lyst, vopnuð einum gafli hvert!
Nú er bara einn dagur eftir af heimsókninni hans pabba og þá tekur hversdagsleikinn við! En við huggum okkur þó við að við erum búin að bæta á okkur smá forða fyrir næsta mánuðinn eða svo (á vömbina!) og svo er alltaf að hlýna;) Jey!

Tuesday, April 19, 2005

Vorið er komið!

Mikið óskaplega er ég búin að vera löt að skrifa!! Skamm skamm. En...Dóra systir er nýbúin að vera í heimsókn í 5 daga. Það var alveg yndislegt að hafa hana hjá mér og gaman að ná svolítið saman eftir mikla fjarveru.
Svo átti Kristinn bróðir 28 ára afmæli á sunnudaginn! Til hamingju með það brósi, aftur!:)
Nú er pabbi svo kominn til baunalands og ætlar að vera með okkur skötuhjúunum í viku. Það er alltaf gaman að fá pabba gamla í heimsókn:) Hann var að taka til í geymslunni hjá mömmu og fann gamlar dagbækur eftir mig, sem hann tók með sér. Vá hvað maður getur skammast sín fyrir það hvað maður hefur verið vitlaus! Og þvílík vandamál sem hrjáðu mig þegar ég var 12-13 ára (strákar,vinkonur, foreldrar......ekki var maður að hafa miklar áhyggjur af heiminum!!) Usss, þetta hlýtur að hafa verið einhver annar en ég!:) hehehe
Rúnstykki í morgunmat...nammm

Friday, April 08, 2005

Árshátíð á morgun -stuð!
Dóra sys kemur svo í heimsókn á mánudaginn -stuðx2!
Próf eftir viku -bömmer:( Er ekki búin að vera dugleg:(