Friday, February 25, 2005

Var að koma heim úr skólanum, ég elska föstudaga! Ég ætti auðvitað að sitja og læra eftir skóla, en ef það eru einhverjir dagar sem ég er löt við það, þá eru það föstudagar! Við erum að læra um hjartasjúkdóma, og í því samhengi vorum við að taka hjartalínurit á hverju öðru í dag. Við þurfum auðvitað bæði að kunna að taka þau og túlka þau. Við vorum nokkur í bekknum sem buðum okkur fram, m.a. ég, og mitt línurit var fullkomlega eðlilegt! Alltaf gaman að sjá hvernig kroppurinn manns virkar þegar maður er að læra um allt sem getur verið að:) Maskínan sem tekur línuritin segir sjaldan að línuritin séu eðlileg, hún segir yfirleitt að það sé hugsanlega eitthvað athugavert, en í mínu tilfelli sagði hún að línuritið væri "normal"....hehe YES!

Wednesday, February 23, 2005

Mmmm, var að borða afgangana frá matarboðinu sem við Jákup héldum í gær. Ég mæli með þessum pastarétti: steiktar bitaðar kjúklingabringur, pastaskrúfur, pestó, sólþurrkaðir tómatar og furuhnetur. Öllu blandað saman og parmesanosti stráð yfir. Borið fram með salati og brauði. Við elduðum svo lika lasagne því við vorum svo mörg...

Við buðum David, Stine, Lene og Simon í mat til að skipuleggja og ákveða dagsetningu á för okkar til Íslands og Færeyja í sumar. Við ætlum að vera allt í allt í 3 vikur, 2 á Íslandi og 1 í Færeyjum á Ólafsvökunni. Flugmiðaverðið þessar þrjár ferðir er ekkert grín! Rúmlega 40.000! Eins gott að ferðin verði vel heppnuð.....:)
Ég kem þó aðeins á undan svo ég geti hitt vini og vandamenn áður en ferðalangarnir birtast. Ég er búin að panta miða heim 30.júní, á afmælisdaginn hans pabba, og stefni á að halda upp á 25 ára afmælið mitt um helgina eða helgina þar á eftir! Svona verður maður skipulagður þegar maður býr í Danmörku:) hehehe

Friday, February 11, 2005

Helgin

Nú er ég loksins að verða eins og ég er vön, er öll að fyllast af orku og langar að fara að drífa mig í ræktina og ná af mér spikinu -einu sinni enn!:-) Mér leið eins og gamalmenni í síðustu viku, alltaf með hita á kvöldin og að leka niður úr syfju og orkuleysi. En þetta er allt að koma sko!
Ég var að koma úr bænum, þar sem ég var inni í Deres að velja nýjar gallabuxur -ókeypis! :) Ég þurfti reyndar að borga 200kall á milli, en það var af því að ég valdi nýjar Miss Sixty buxur í staðinn. Ekki slæmt að borga 200kr fyrir nýjustu tísku! Og þessar koma líka með 2ja ára ábyrgð. Bring it on. Ég er til í að gera þetta á hverju ári:)
Skólinn er byrjaður á fullu og það er allt í goody, ég er búin að vera dugleg að læra, enda nóg sem við þurfum að hafa styr på :) Jákup minn byrjaði í skólanum í dag en er svo að vinna næturvaktir alla helgina og á mánudaginn, þannig að ég verð hálfgerð grasekkja næstu 4 nætur!
Svo var Anna Sigga að tilkynna komu sína til Odense í kvöld, þannig að ég vona að við náum að slúðra margt og mikið yfir helgina.
Á dagskránni um helgina er s.s. lestur, gólfþvottur (sem er heilsdagsvinna á þessu heimili með óslípuðu trégólfi sem þarf að skrúbba og láta þorna vel í friði), leikfimi, og kannski djamm með Önnu Siggu og vinkonu hennar. Ekki slæmt það.

Sunday, February 06, 2005

Snúllinn minn er að fara í próf bæði á morgun og á þriðjudaginn. Þannig að ég er búin að baka fyrir hann heita eplaköku og ætla að gefa honum vanilluís með til að taka hugann af prófunum í smá stund. Nammmmmm (ok, kannski ekki bara fyrir hann....ég elska eplakökur og ís!:) Annars er heimilið búið að vera undirlagt bókum og glósum og ég hef ekki viljað bara kveikja á sjónvarpinu og hanga yfir því til að trufla ekki einbeitinguna hans. Ég get ekki beðið þangað til þetta prófstand er búið og ég get farið að glápa á imbann aftur öll kvöld!!:)

Saturday, February 05, 2005

Já, ég er alveg sammála því að nafnið á blogginu mínu passi prýðilega, því ég segi yfirleitt eitthvað óhugsað og kemst greinilega í vandræði þar af leiðandi. En það er nú alls ekki viljandi.
Alla veganna, þá eru síðustu dagar búnir að fara í vinnu, og nú er komin helgi! Jei! Ég komst að því að aðrar gallabuxurnar mínar eru að detta í sundur í klofinu, þannig að ég fékk löglega afsökun til að líta um eftir nýjum buxum:) Ég ætla að skreppa í bæinn í dag og sjá hvort það sé eitthvað eftir á útsölunum, það væri auðvitað bara snilld! Svo byrjar skólinn aftur á mánudaginn. Það er að verða langt síðan ég hef þurft að læra eitthvað af viti, því við erum búin að vera í klinik í 3 mánuði, en ætli ég verði ekki að vekja einhverjar stakar heilafrumur úr löngum dvala fyrir það verkefni!:)

Tuesday, February 01, 2005

Ég lofa að ég ætla aldrei aftur að vera milliliður fólks í flutningum! Nágrannar okkar voru að flytja úr íbúðinni við hliðinna á okkur og vinir okkar, Simon og Lene ákváðu að leigja íbúðina. Nema hvað, af því að ég er íslensk og er vinkona þeirra Ásgeirs og Guðrúnar, og á auðveldara með að tala við þau en Lene og Simon, þá lentu flest öll samskiptin þeirra á milli á mér. Og leigusalinn -hann fór í frí og kemur ekki aftur fyrr en 7.feb! Þannig að hann hefur ekki verið til staðar til að kíkja á íbúðina og semja við alla aðila um hvenær lyklar eiga að afhendast o.s.frv. Þannig að ég hef þurft að hringja og ákveða með öllum hvenær og hvar lyklarnir eiga að afhendast, og svo er málarinn horfinn með einn lykilinn! Ég skil sko vel að Lene og Simon séu pissed og vilji varla flytja inn fyrr en þriðji lykillinn er fundinn. Þrátt fyrir að málarinn eigi að vera góður vinur leigusalans, þá gæti hann auðveldlega kopierað lykilinn á meðan. Auk þess er það alveg út í hött að þurfa að borga 300þús kr í innborgun fyrir íbúð sem eigandinn er ekki einu sinni búinn að líta á og samþykkja fráganginn á frá fyrri leigjendum, og fá svo ekki heldur alla lyklana. Ég ætla að láta þetta mér að kenningu verða og vera meira á varðbergi næst þegar ég flyt!:)
Svo er ég í þokkabót með nýrnasýkingu eða einhvern andskotann, ekki af því að læknirinn minn vill rannsaka það nánar, og er búin að liggja heima í 3 daga með háan hita og með illt í bakinu, uhuhuhu:( Ég á mjög bágt!:)