Monday, December 24, 2007

Gledileg jól!

Thá er bara komið að thví. Jólin eru komin. Ég verð nú að viðurkenna að ég hef aldrei verið í eins litlu jólaskapi eins og ég er thessa dagana, enda svolítid erfitt thegar fjølskyldan er langt í burtu. Jólastemningin hérna heima hjá tengdó er heldur ekki alveg að gera sig... Litla kartaflan er heldur ekki farin að átta sig á thví um hvað thetta snýst allt saman. Hún fékk að opna einn pakka í morgun, thví okkur vantaði eitthvað fyrir hana ad leika sér með. Hún verður hvort eð er sofnuð í kvøld thegar pakkarnir verða opnaðir, og fær ad opna á morgun í staðinn. Annars er hún búin að vera dugleg í tiltektinni hérna hjá ømmu sinni og afa, hún er búin að róta vel og vandlega í gegnum allar skúffur og skápa og breyta øllum stillingum á útvarpi og magnara. Svo ætlaði hún að byrja á dvd spilaranum en pabbi hennar stoppaði hana. Við erum vøknuð á milli kl.5 og 6, en restin af fjølskyldunni sefur til hádegis og er svo vakandi alla nóttina. Thau eru sum sé B manneskjur. Skemmtilegt alveg hreint.
Thað hefur verið stormur hérna í Færeyjum síðan við komum og fluglendingin var ansi upplífgandi. Annie lenti klst á eftir okkur, og thá var veðrið orðið ennthá verra, og fólk grét og øskraði í hennar vél. Thad var ekki alveg svo slæmt hjá okkur, thótt Jákup hafi verið farinn að svitna:) Kristina svaf thetta hins vegar allt af sér! Enda vøknuðum við kl.4 til thess að fara upp á vøll. Kristina skildi ekkert í thví að mamma hennar og pabbi væru vøknuð á undan henni á thessum ókristilega tíma. Venjulega á hún einkarétt á svona framkomu:)
Ein leiðinleg jól eftir með próflestri fyrir embættispróf og svo er ég komin heim til Íslands! Mikið hlakka ég til:-D Thangað til.....gleðileg jól lesendur góðir!

Monday, December 17, 2007

Erfinginn 1 árs

Já það er ekkert annað. Litla tröllið varð eins árs í gær og fagnði þeim áfanga ógurlega eins og sést hér. Við áttum alveg yndislegan dag sem byrjaði með afmælissöng kl.6 (þá var hún búin að sofa lengi, stundum erum við komin á fætur kl.5:)). Pabbinn var svolítið þreyttur eins og sést! Það eru fleiri myndir inni á barnalandi.
góða nótt

Tuesday, December 04, 2007

Mig langar í svona...

...en djöfull er þetta dýrt dót! Spurning um að bíða fram yfir jól?:)

Sunday, December 02, 2007

Sunnudagur í dýragarðinum

Kristina fín með Hogwarts trefil!:)

Að renna niður rennibraut


Mamman crazy á svip


Halló!


Við áttum góðan dag saman í dag. Við Kristina vöknuðum aldrei þessu vant kl.8 í morgun (hún vaknar venjulega um 6 leytið) eftir nótt með mikinn hita. Hún var hins vegar eldhress þegar hún vaknaði og við lékum okkur því hér heima þangað til Jákup kom heim úr vinnunni. Ég smurði nesti fyrir okkur þrjú, og svo drifum við okkur í dýragarðinn. Við sáum fullt af dýrum, og lékum okkur á leikvellinum. Kristina var ekkert hrifin af rólunni, og vildi bara láta taka sig aftur! Hún var aðeins hrifnari af rennibrautinni. Skemmtilegast var samt að skoða risaskjaldbökurnar og litlu geiturnar. Svo sofnaði hún eftir að við borðuðum nestið og við löbbuðum heim og gáfum hverju öðru aðventugjafir. Ég fékk nýjan usb lykil sem mig vantaði mjög svo, Jákup fékk myndina Blood diamond og Kristina fékk lítið vélmenni sem labbar. Já, pabbinn valdi þessa strákagjöf, hehehe! Loksins gátum við svo kveikt á fyrsta kertinu á aðventukransinum sem ég bjó til í fyrsta skipti! Við erum líka búin að sækja jólaskrautið og ætlum að fara að skreyta fljótlega.

Seinnipartinn fórum við í hjólaferð heim til Marianna og fengum köku og kók. Kristina var alveg að sofna á hjólinu, hausinn dinglaði fram og aftur á meðan hún barðist við að halda sér vakandi;) Svo drifum við okkur heim að elda kvöldmat og hátta litlu músina.