Bókatíðindi 2010
Mig langar hræðilega í :
Yrsa Sigurðardóttir "Ég man þig"
Arnaldur Indriðason "Furðustrandir"
Þórarinn Árnason "Morgunengill"
Kristín Marja Baldursdóttir "Karítas án titils"
Spurning um að gefa sér eins og eina bók í jólagjöf frá sjálfri sér? :)

6 Comments:
karitas án titils er alveg svakalega góð.
Og hinar væri ég meira en til í að lesa.
Líst vel á þetta plan hjá þér að splæsa í eina handa sjálfri þér og vonandi færðu einhverja/einhverjar í jólagjöf frá einhverjum öðrum;)
Ég er að melta það hvaða bók ég eigi að panta :)
Ég er búin að rekast á Karitas án titils ítrekað hérna í Danmörku á dönsku, en langar að lesa hana á íslensku. Um daginn var ég meira að segja spurð um þessa bók tvisvar sama dag á sjúkrahúsinu og sá hana tvisvar á náttborðinu hjá sjúklingum.
búin að lesa Karitas án titils og Yrsu.
Náttúrulega rosalega ólíkar bækur - en ég held bara að af þessum 2 myndi ég mæla með Karitas. Hún skilur svo mikið meira eftir sig...
Helga Dröfn
Amma er búin að hvísla því að mér að ég eigi von á Karitas í jólapakkanum :-)
Ertu búin með Karitas? Og fékkstu Yrsu?
Helga Dröfn
ég er að lesa Karítas -og elska hana!
Fékk ekki Yrsu :( En fæ hana bara lánaða næst þegar ég kem heim ;-)
Post a Comment
<< Home