Saturday, June 13, 2009

Ásta goes coffeedrinking!

Jákup fór í Rosengaardcenterið á föstudaginn með Kristinu, á meðan var ég að vinna til kl.18. Þegar ég kom heim mátti Kristina ekkert vera að því að koma og heilsa mér almennilega eða kyssa mig, heldur óð hún strax um alla íbúð að leita að "pakkanum". "Pakki" segi ég hissa. Þá reyndi pabbi hennar að sussa á hana, og sagði að hann hefði verið að kaupa handa mér afmælisgjöf og að ég ætti ekki að fá hana strax:) Hún hætti þó ekki fyrr en hún fann hana...en gjöfin fékk að vera á sínum felustað enn um sinn. Í dag þurfti Jákup hinsvegar snögglega að komast í pakkann til þess að senda einhverja pappíra inn, og vantaði eitthvað númer á gjöfinni. Þá byrjaði Kristina aftur að tala um pakkann og að lokum ákvað Jákup bara að gefa mér gjöfina núna (ekki í fyrsta sinn sem ég fæ afmælis- eða jólagjöf fyrirfram!). Jákup spurði Kristinu hvað væri í pakkanum áður en ég var búin að opna, og litla frökenin sagði strax "daffi"! Jákup vissi ekki að hún hefði tekið eftir því, hehe. Sem sagt fékk ég þessa flottu ekspresso kaffivél með mjólkurfroðugerð á, til þess að búa mér til kaffi latte! :D Haldiði að sé fínerí!
Nú þarf ég að setja mig inn í þetta allt saman....er ekki alveg að skilja muninn á þessu espresso og lungo kaffi, en er að vinna í því. Það fylgdu 12 mismundandi kaffiblöndur með til þess að prófa sig áfram með, svo pantar maður kaffið á netinu og fær sent heim. Mmmmmm!!
Kristinn abbó?? :)