Wednesday, May 07, 2008

Þá er Jákup orðinn ári eldri, nánar tiltekið í gær. Það er búið að halda uppá það tvisvar, með partýi og matarboði og hann fékk góðar gjafir og góða daga. Að vísu lenti hann í því að slasa sig á laugardaginn og við eyddum stórum hluta dagsins á slysó. Við náðum að koma heim 15mín áður en gestirnir mættu í partý! Partýið lukkaðist vel og lauk kl.5 um morgun. Kristina var í pössun hjá Siggu, Stinna og Klöru þrátt fyrir smá hitavellu og gekk það bara vel. Dúllurnar kysstust og dönsuðu og léku sér saman. Við máttum ekki vera að því að sofa meira en 3 tíma á sunnudeginum, því við þurftum að drífa okkur að ná í gullið okkar:)
Gamli maðurinn fékk sem sagt svona líka að finna fyrir aldrinum, hann er í fatla og getur lítið gert (eða á sem minnst að gera, en svindlar samt!). Mér líður eins og ég sé með tvö börn, nema að ég fæ bara að gera allt það leiðinlega eins og að skipta á bleyjum og bursta tennur. Kristina vill nefnilega bara vera hjá pabba sínum þessa dagana og finnst ég hundleiðinleg. En ég þarf samt að hjálpa honum að taka hana upp.... Get ekki beðið eftir að þessi fatli sé farinn. Og svo vill ég fá glaða barnið mitt aftur, sem er ekki með blöðrubólgu að öllum líkindum (það eru ennþá bakteríur í þvagi, en enginn hiti) og ekki að fá 3 augntennur í einu. Hún er vægast sagt pirruð og leiðinleg þessa dagana, og þegar við reynum að þvinga í hana sýklalyfjunum til þess að laga ástandið, þá gubbar hún næstum af ógeði. Skemmtilegt!

2 Comments:

At 11:32 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með gamla! :)

Vonandi hætta þessar blessuðu bakteríur og veirur að angra ykkur...

Helga Dröfn

 
At 7:44 PM, Blogger Ásta said...

Takk! Ég sá að hann var einn af þeim sem þú gleymdir:)
Hann var takklaður í fótbolta, og datt svona illa á öxlina, það slitnaði liðband. Svar við síðustu færslu:)

 

Post a Comment

<< Home