Thursday, September 28, 2006

Í gær vaknaði ég kl.5 vegna bakverkja og ákvað að pissa fyrst ég væri vöknuð. Þegar ég lagðist upp í aftur til þess að sofa áfram, ákvað litla krílið að það væri kominn dagur og tími til morgunleikfimi! Eftir hálftíma hnoð gat ég engan veginn sofnað aftur, og fór því bara fram að læra:-D Svo fór Jákup í skólann, og ég setti í tvær þvottavélar, þreif baðherbergið, fór í bað og margt fleira. Kl.10 hringdi Jákup og sagði kennarann ekki hafa mætt, og spurði hvort við ættum ekki að fara út og borða lunch! Nammmmm.... Það þurfti ekki að spyrja mig tvisvar:Þ
Eftir matinn fórum við í Silvan (byggt og búið) og keyptum nýtt loftljós, ljós í baðherbergið, gólfmoppu og fleira, og fórum svo heim að taka til. Nema að við ákváðum að skreppa líka út og kaupa málningu fyrir stofuna, því við erum búin að horfa á einn vegginn í 1 og hálft ár og andvarpa yfir því að þurfa að mála hann!
Í lok dagsins vorum við búin að gera eftirfarandi:
Mála 3 veggi, rífa niður hillur, smíða nýja hillu, þrífa drulluna ofan á eldhússkápunum, ryksuga og þvo svefnherbergið, hengja upp tvö ljós, snúa stofuborðinu, skipta um sturtuhengi og elda mat:-)
Kvöldið endaði með að við horfðum á Walk the line. Frábær mynd!
Ég held að ég hafi aldrei á ævinni afrekað jafn mikið á einum degi eins og í gær!! Og bara róleg, ég fór ekki af stað í öllum hamaganginum, stelpan er ennþá í bumbunni;-)

Tuesday, September 26, 2006

Skiptiborðið mitt er komið og ég er búin að raða öllum barnafötunum í:-D
Ég á eftir að þvo allt, en það má bíða í nokkrar vikur...
Þetta fer að verða meira og meira raunverulegt!;)

Hitinn hérna er ennþá 20-24 stig og verður það áfram út þessa viku. Það á reyndar að rigna næstu daga. Það er ágætt að veðrið skuli vera gott svona lengi, því ég á ekkert allt of mikið af hlýjum fötum í þeim stærðum sem ég þarf:) Ég get auðvitað stolið fötum af Jákup en það er bónus að geta verið í eigin fötum eins lengi og hægt er!

Blokkin sem ég er að lesa eins og er, er mjög áhugaverð. Hún fjallar um meðgöngu, fæðingu og barnasjúkdóma, og hefur mikinn relevans eins og er, hehe:) Ég heyri hins vegar nánast eingöngu allt það sem getur farið úrskeiðis, og verð því að taka Pollíönnu leik á þetta! Við erum búin að fara stofugang á barnadeild, þar sem ég sá m.a. eina nýfædda og splunkunýja. Hún var algjört yndi, og gerði tilhlökkun mína ekki minni:D Mikið hlakka ég til að finna lyktina af barninu MÍNU, og finna mjúka húðina!
Í dag var ég í fyrirlestri um vaxtarskerðingu, og þar var lögð mikil áhersla á hæð foreldra til samanburðar. Ég er því búin að reikna út að dóttir okkar ætti að verða 167cm á hæð miðað við hæð okkar foreldranna. Reyndar hefði ég átt að vera 166cm en vantar 4cm uppá, hmm....... Ætli það sé samt ekki innan skekkjumarka;) Merete vinkona mín komst hins vegar að því að hún er 10cm hærri en hún hefði átt að vera, auk þess að vera með eitt "minor deformation ummerki" í andliti! Freak!! Hehehehehehe

Saturday, September 23, 2006

Jæja, það er sennilega kominn tími til að skrifa eitthvað:) Ég er komin heim til Odense, og ferðin gekk áfallalaust fyrir sig. Ég fékk það mikinn bjúg á hendur og fætur að ég þekkti varla sjálfa mig. Það var æðislegt að sjá Jákup á lestarstöðinni -og fá hjálp með farangurinn!
Veðrið er búið að vera með eindæmum gott síðan ég kom, 20-24 stiga hiti! Þannig að ég gat dregið fram sumarfötin aftur. Og svo er ég búin að láta skipta um hnakk og handföng á hjólinu mínu, og fá körfu aftan á. Þannig að ég er hæstánægð með að hjóla eitthvað áfram:) Það kemur svo annað hljóð í skrokkinn þegar það byrjar að kólna og bumban stækkar! Við erum ekki farin að skoða bíla enn, enda hefur verið nóg að gera þessa viku. Ekki síst er íbúðin svo hræðilega skítug eftir langa fjarveru okkar, að við erum búin að taka eitt og annað í gegn:-S Svo erum við líka svolítið eftir á í skólanum...en það reddast:) Ég er í Móðir og barn blokkinni og finnst hún að sjálfsögðu mjög spennandi! En ég er líka að læra um allt sem getur farið úrskeiðis á meðgöngu og í fæðingu og þakka því fyrir hverja viku sem líður af minni meðgöngu:)
Við Jákup fórum í góða veðrinu í dag og keyptum okkur lampa og borð í stofuna. Einnig erum við að spá í að bæta pullu við sófasettið. Alltaf gaman að nota peninga, hehe.

Thursday, September 14, 2006

Róleg á hormónunum kona!

Já, ég tel mig hafa sloppið nokkuð vel hingað til með hormónaflipp, en þá ákvað líkaminn að gera uppreisn (eða hugurinn kannski)! Ég er búin að vera svakalega touchy síðustu 2 daga og ýmist fokið í mig af minnsta tilefni eða farið að grenja yfir engu. Og það eru 2 dagar í að ég þurfi að kveðja alla. Ég er ekki viss um að ég höndli meiri grát:( Kannski er þreytan að segja til sín eftir sumarið, en ég væri til í að hætta þessu núna.
Ég hef verið að tala við vinkonur mínar í Odense á msn og það eru ægileg plön fyrir næstu vikur. Árshátíð, göngur og partý. Og ég verð bara pirruð yfir öllum þessum látum! Vill bara sofa næstu 2 vikurnar eða svo, ekki þykjast vera ofur hress:( Ásta Pirringur Theodórsdóttir! Eru til töflur við svona?? Ég ætti kannski að kynna mér það hérna á síðustu vaktinni á geðdeild?

J fór að kynna sér bílalán, og fyrstu tölur voru sjokkerandi. Kannski ættum við að halda áfram að hjóla þrátt fyrir allt?:) Hvenær er maður orðinn fullorðinn? Verður maður að eiga bíl til þess?

Og Tryggingastofnun Ríkisins er formlega í mínum huga skítapakk og kúkaladdar. Vá hvað mér finnst leiðinlegt að eiga við þessa stofnun. Þeir reyna að gera mér lífið leitt.

Er eitthvað jákvætt í þessu öllu saman?? Já, það er von að þið spyrjið.. Ég ætla í sund á morgun með Pálínu og Tedda stríðnispúka. Og svo er pabbapizza a la Teddi í kvöldmatinn. Það er kannski meðalið sem ég þarf?:)

Sunday, September 10, 2006

Þar sem ég á svo marga dygga lesendur sem kommenta í gríð og erg, ætla ég að henda inn einni færslu eða svo....:S

Jákup fór heim til DK í gær, og var svo óheppinn á leiðinni að bakpokanum hans var stolið á lestarstöðinni í Köben. Í bakpokanum voru mörg verðmæti, t.d. myndavélin okkar, extern harður diskur fullur af tónlist, 20 DVD osvfrv. Við erum svo ógeðslega svekkt að því er ekki hægt að lýsa! Nú er bara að sjá hvort við fáum eitthvað úr tryggingunum:( En tilfinningalegt gildi margra þessara hluta var mun meira en peningalegt, og því er ekki hægt að bæta það upp með peningum. Við hughreystum okkur þó á því að þetta hefði getað verið mun verra!

Ég er heima hjá mömmu yfir helgina. Pabbi fór austur að skoða Kárahnjúka og ég fæ að sofa í hans rúmhelming á meðan:) Við mamma vorum að passa Tedda í nótt, og hann lék á alls oddi hérna í morgun. Hann hefur erft stríðnina frá pabba sínum:-)

Það er vika í brottför, og ég er með mörg áform um að hitta alla mögulega þessa viku. Það er þó ekkert nýtt;)

Wednesday, September 06, 2006

Ferðahugur

Við Jákup vorum dugleg í morgun. Við fórum í sund og syntum nokkrar umferðir og lékum okkur í grunnu lauginni. Lágum að sjálfsögðu líka í pottinum, og bumban er farin að stinga upp úr;) Við fórum svo í Kringluna og keyptum stóra ferðatösku. Við erum með svo miklu meiri farangur með okkur út en við komum með! Við erum meira að segja búin að senda eina tösku til DK með Simon félaga okkar:-S
Jákup fer heim á laugardaginn. Þá er ég ein eftir í viku í góðu yfirlæti hjá Kristni bróður og Pálínu, að ógleymdum honum Tedda. Ég á nefnilega eftir nokkrar vaktir í vinnunni og ekki sakar að þéna smá aukalega;) Ég á eftir að grenja úr mér augun þegar ég fer í þetta sinn! Ég grenja reyndar í hvert skipti, en nú er ég orðin svo vön að vera hérna, þetta verður extra slæmt:(

Svo var ég að komast að því að ég þarf læknisvottorð til þess að mega fljúga heim! Ekki grunaði mig að það væri vandamál fyrr en einhvern tímann eftir 30 vikurnar. En það var ágætt að ég skyldi komast að því í dag, þá er lítið mál að redda því.

Teddi litli söng hástöfum nokkur lög fyrir okkur Jákup í morgun, hann er svo yndislegur! Ég mæli með hlustun á síðunni hans Kristins!!:-)