Wednesday, March 31, 2010

Páskafrí!



Síðan síðast er ég búin að eignast lítinn yndislegan frænda sem kom í heiminn eins skjótt og vel eins og eldri systkini hans :) Ég hlakka til að kynnast þeim litla gutta!

Hér er páskafríið formlega byrjað. Jákup var búinn að vinna snemma í dag, þannig að ég skutlaðist til Aabenraa að kaupa í matinn fyrir helgina. Ég er reyndar aldrei þessu vant engan veginn í eldamennskustuði þessa dagana og fannst því kvöl og pína að reyna að ákveða matseðil helgarinnar! Ég keypti svo sitt lítið af hverju: efni í pizzu, pastarétt, lambalæri með púrrulauk fetaosti og sítrónum, og einn Jamie Oliver rétt með hörpudisk og rucola. Í dag eldaði ég hins vegar bara grjónagraut sem mallaði á meðan ég fór út að hlaupa :) Ég hljóp í síðustu viku 5,5 km á 37 mínútum með nágrannakonu minni, en í dag fór ég sama hring á 30 mín sléttum :) Þegar ég kom heim var grauturinn akkurat tilbúinn og við settumst við snæðing. Kristina bað um meira 4 sinnum og meira að segja Íris smakkaði grautinn þegar hún var búinn með sinn hrísgraut! Já, Íris er loksins komin með smá matarlyst aftur og farin að borða meirihlutann af því sem við eldum fyrir hana. Svona eru börnin einföld! Ef ég stend í eldhúsinu klst saman að elda eitthvað nýtt og spennandi nennir Kristina varla að smakka það, en ef ég elda grjónagraut af hreinni leti, þá borðar hún eins og hestur! :)
Kristina svaf svo vært í morgun að við ákváðum að leyfa henni bara að sofa þangað til hún vaknaði, og Jákup keyrði einn af stað í vinnuna. Þegar við mæðgur vöknuðum rétt rúmlega 7 tókum við því með stakri ró, og fórum ekki af stað í leikskólann fyrr en rúmlega 9. Kristina vildi fá að hjóla þangað, og ég var hálfsmeyk um að hún myndi gefast upp á hálfri leið og ég myndi þurfa að leiða hjólið og keyra vagninn... En hún stóð sig þvílíkt vel og hjólaði alla leið í leikskólann, en það tók um 40 mín! Á leiðinni sáum við dauða mús sem hefur verið umræðuefni dagsins síðan. Íris var líka dugleg og sat í fyrsta sinn alla leiðina í vagninum og fylgdist með stóru systur :) Hún er annars enn mjög óstöðug við að sitja. En á móti er hún farin að velta sér um allt og snúa sér á gólfinu, og lætur ekkert stoppa sig.

Þegar ég kom heim úr búðinni seinnipartinn komu nágrannar okkar akkurat heim á sama tíma. Þetta er svolítið spes par, drykkfelld mjög og skrautleg til fara. Þau eru um fimmtugt, og eiga unglingsbörn. Þau fara amk einu sinni í viku yfir til Þýskalands að fylla á ölbyrgðirnar. Um daginn hrukkum við upp kl.2 að nóttu við það að þau voru í hörkurifrildi, og það hljómaði eins og þau væru hálfpartinn að slást líka. Lætin voru slík að við vorum á nippinu að hringja á lögregluna til að vera viss að ekkert gerðist, en þá róuðust þau niður. Svo keyra þau um á grænblárri druslu af mér óþekktu merki. Þau voru alla veganna að koma heim úr einhverjum leiðangri, hann sat í farþegasætinu með fangið fullt af sígarettupökkum, og hún keyrði. Sem var kannski eins gott, því hann virkaði ansi slompaður ;) Í því að ég er að stíga út um hurðina á bílnum kemst ég ekki hjá því að sjá hana stíga út úr bílnum sínum, og blasa þá við mér 2 naktar krumpaðar rasskinnar, 2 svartir nælonsokkar upp á læri og leopardpils um mittið sem hún flýtti sér að toga niður yfir fyrrnefndar kinnar. Og þá er ekki hjá því komist að nefna það að konan er með kryppu. Þetta outfit hefur komið mér fyrir sjónir einu sinni áður, og venst illa. Þegar ég sagði Jákupi frá þessari hressandi upplifun, sagði hann að honum finndist flott af þeim að eiga enn gott samlíf! :)

Plönin okkar fyrir páskana eru ansi afslöppuð. Ætlum að fara einn dag í legoland og fáum kannski kunningja í mat einn daginn. Annars ætlum við bara að taka því rólega, hvíla okkur og borða á okkur gat :) Gleðilega páska!

Friday, March 19, 2010



Ég ætla að skrifa niður hvað ég er búin að vera dugleg á meðan ég get montað mig af því ;) Ég er búin að vera dugleg að æfa undanfarið, og bara síðustu vikuna er ég búin að hlaupa, synda eða spinna alla daga síðan á laugardaginn. Ég mældi mig í dag og er búin að missa 14cm dreift á læri, mjaðmir, mitti og upphandlegg :D Við fögnuðum því svo með því að skreppa til Þýskaland og fylla byrgðirnar af gosi, og misstum okkur aðeins í nammikaupum þar! Úps! Er annars nánast ekkert búin að borða sælgæti í lengri tíma! Myndin að ofan er tekin í bílnum.
Ég er líka búin að baka allt brauð á heimilinu síðustu vikurnar, og er hrifnust af speltbrauði með lyftidufti sem er mjög auðvelt að baka. Deiginu er bara skellt saman og inn í ofn í brauðformi, það þarf ekkert að hefast. Auðvelt og gott :)

Það er allt annað að eiga heima í svona litlu bæjarfélagi en stórbæjunum sem ég er vön. Ég hika ekki við að spjalla við hvern sem er, hvort sem er í búningsklefanum, saunu í leikfiminni eða í leikskólanum. Það er gaman að vera farin að heilsa einhverjum í búðinni nánast á hverjum degi ;) Hehehe crazy kellan sem er aðflutt og þekkir engan! Í gær sat ég í sauna eftir spinning og spjallaði við 70 ára konu sem kemur í hvern einasta spinningtíma, eða 4 sinnum í viku. Hún sagði mér að hún færi líka að æfa á morgnana í 1,5 tíma. Maðurinn hennar er hjartveikur og með sykursýki og nennir ekki úr húsi, og hún eyðir því tímanum í ræktinni til þess að breyta aðeins um umhverfi! Mögnuð að standa í öllu þessu sprikli!
Þegar maður er aðfluttur og mætir í svona litla líkamsræktarstöð fer það heldur ekki fram hjá neinum að maður sé nýr! Spinningkennarinn vatt sér strax að mér í gær (fyrsti tíminn minn hjá þessum) og spurði hvort ég hefði mætt í spinning áður. Ég játti því en ákvað samt að hafa varann á og tilkynna það að ég hefði verið að koma úr fæðingarorlofi -þá myndi hann kannski vera vægur við mig ;) Strax á öðru lagi misskildi ég kauðann eitthvað og hjólaði með allt of mikinn þunga í staðinn fyrir létt, og var því í nokkur lög að ná mér eftir það. Og hann sýndi enga vægð! Helvítið á honum. En svo kom hann til mín eftir tímann og hrósaði mér fyrir að vera í góðu formi....hmmmmmm.....kannski þegar maður er langyngsti aðilinn í salnum....af 6! :)

Í vikunni var ég á rölti niðri í miðbæ með Írisi kl.8.30 um morguninn, og uppgötvaði þá litla búð á einu horninu sem selur föt. Ég hafði ekkert tekið eftir henni áður, enda fór ekki mikið fyrir henni. Búðin var að sjálfsögðu lokuð, en ég skrapp þangað daginn eftir til að skoða, því það stóð í glugganum að flest allt væri á 100kr - þeim vantaði pláss. Ég sá fyrir mér hálfgerðan flóamarkað en ákvað að skoða samt;) Þarna voru svo Tommy Hilfiger, Björn Borg og Lee vörur, allar á 100 kr, alveg sama hvað upprunalega verðið var! Ég kom því út með fullan poka af fötum, eða 7 flíkur á mig og 2 á Jákup, fyrir 900kr (sumt kostaði 900kr fyrir stykkið) :D Jákup VARÐ að kíkja þangað daginn eftir og kom heim með þrenna skó og einar buxur -sem pössuðu svo engan veginn á hann en smellpössuðu á mig :) hihi

Annars er ég farin að kíkja á bókasafnið í hverri viku, og lána hverja bókina á fætur annarri, auk kvikmynda. Stundum sest ég bara niður og les blöðin í smá stund áður en ég sæki Kristinu. Ég ljósritaði nokkrar uppskriftir í vikunni úr Alt for damerne sem ég ætla að prófa í næstu viku. ALLT AÐ GERAST! lol

Thursday, March 11, 2010

Skattaframhald

Í framhaldi af síðustu færslu vill ég bara segja hvernig gekk :) Ég var á nippinu að aflýsa tímanum hjá endurskoðandanum því ég var búin að uppgötva vandamálið og var sjálf að vinna í öllum smáatriðum skattaskýrslunnar (keyrslupeningar og vextir). En ég ákvað að fara samt, því ef hann kæmi með eitthvað nýtt...? Aldrei að vita. En en...hann gat ekkert gert fyrir okkur sem ég var ekki búin að gera. Og hann rukkaði okkur ekki einu sinni þessi elska! Þvílíkt sætur að eyða 20 mín í okkur ókeypis. En hann hefur séð sér gott til glóðarinnar, hann er nefnilega vanur því að vinna með heimilislæknum með eigin stofu og vissi að við værum bæði læknar. Hann bað okkur bara um að koma aftur seinna ef við einhvern tímann förum út í eigin buisness :)

Kristina sofnaði í bílnum á leiðinni til endurskoðandans, og Jákup bar hana inn. Hún hélt svo bara áfram að sofa allan tímann sem við töluðum við hann, á meðan Jákup bar hana út í bíl aftur og alla leið heim :D Hún vaknaði þó þegar hann bar hana inn, og borðaði kvöldmat með okkur. Svo fengum við okkur jarðaberjagraut með rjóma í eftirrétt, og Kristina talaði allan tímann! Hún er farin að tala og tala og tala... og það er bara yndislegt að hlusta á hana. Elska það! :D Íris var vakandi alla leið fram og tilbaka og brosti og hjalaði svo mikið að pabbi hennar gat varla einbeitt sér að akstrinum. Hann síendurtekur sig þegar hann segir "Hún er alltaf brosandi"

Wednesday, March 10, 2010

Skratti skattur


Ég get endalaust furðað mig á því hvað fullorðinslífið er flókið! Við vorum að fá skattaskýrsluna okkar fyrir 2009, og Jákup fékk risareikning út af smáskissu sem við gerðum í fyrra. Við gleymdum að gera smá breytingu á forskudsopgörelsen þegar við kláruðum nám (fyrir þá sem skilja það gleymdum við að eyða Færingefradraget, og þess vegna er hann búinn að borga skatt árið 2009 eins og hann eigi enn rétt á því), og samt vorum við búin að sjá til þess að réttar tekjur væru settar inn. Ég er svo endalaust svekkt yfir þessu, því við vorum loksins byrjuð að fá fjármálin í mjög fastar skorður og byrjuð að borga yfirdráttarheimildina, en nú þurfum við að nota hana aftur til þess að borga skattinn, og það er ekki einu sinni nóg :( Nú ligg ég yfir skattaskýrslunni og reyni að finna hvað sem er sem hægt er að draga frá í skatti! Af hverju tekur mann alltaf nokkur ár að læra svona?? Ég er ekki hissa á því að það hafi komið fram í fréttum í morgun að meirihluti Dana geri engar breytingar á skattaskýrslunni, og missi því af í allt 0,7 milljörðum króna sem þeir eiga rétt á. Þetta er einfaldlega of flókið.
Við erum búin að panta tíma hjá endurskoðanda á morgun til þess að sjá hvort hann geti ekki kreist þessa upphæð lengra niður. Og þó er ég mjög tvístígandi, því það kostar þrátt fyrir allt 1500kr að ráða hann, og ef hann finnur ekkert sem getur lækkað skuldina, þá erum við 1500kr meira fátækari :(

En þessi rúsína hér að ofan er endalaust kát og glöð og gerir hvern dag skemmtilegri :)

Thursday, March 04, 2010

Tannréttingar?


Jahá, í dag átti sér stað merkur áfangi í lífi mínu. Ég hef nefnilega verið leið yfir tannsettinu mínu alla ævi og eytt meiri eða minni tíma í að syrgja það að eiga ekki fallegri tennur. Eins og sumir vita datt ég á andlitið þegar ég var 6 ára, og framtennurnar skemmdust aðeins á því, auk þess sem mig vantar 2 tennur í genunum mínum. Vegna þess að eina framtönnina vantar, er tvíburi hennar mjög lítil og ekki til mikils gagns. Þetta hefur skekkt alla myndina, og höggið sem varð á tönnunum hefur svo illa skemmt aðra framtönn, sem er þess vegna rótarstutt og gulnuð. Augntennurnar eru báðar mjög gular. Allt í allt ekki mjög álitlegt, en sterkar tennur samt sem áður. Nú er svo komið að framtönnin og einn jaxlinn, sem er barnatönn, þola bráðum ekki mikið meira, og það þarf að setja upp skrúfu á báðum stöðum. Ég fór því að spyrjast fyrir um hvort það væri ekki hægt að rétta þetta aðeins í leiðinni og lýsa augntennurnar. Mér var því vísað á tannréttingasérfræðing, sem ég hitti svo í dag. Hann skildi mig mjög vel (enda fær hann borgað fyrir það, hehe) og benti mér á það að tannréttingarnar ættu eftir að kosta svipað og bara skrúfan myndi kosta fyrir barnatönnina, jaxlinn. Við tannréttingarnar er hugsanlega hægt að draga bara barnatönnina út og nota plássið til þess að færa hinar til. Þannig að það á eftir að koma svipað út fjárhagslega, en annars vegar fæ ég bara skrúfu fyrir barnatönnina og allt verður jafn skakkt og áður, og hins vegar fæ ég kannski draumatennurnar mínar! Það á hins vegar eftir að taka 2 ár eða meira. En ég held að það verði alveg þess virði. Hins vegar verð ég að fá skrúfu fyrir framtönnina hvað sem ég geri annars, og það kostar sitt, auk þess sem þessar aðgerðir verða að samræmast. Þetta verður því stórverkefni!
Þetta verður þrítugsafmælisgjöfin til sjálfrar mín :D

Annars var ég að hugsa hvort þetta sé fyrir suma sambærilegt við að fá sér silíkon eða nefaðgerð eða slíkt? Eins fjarri það er mér að fara í lýtalækningar (þótt ég hafi nú oft getað hugsað mér að minnka fjölskyldustoltið okkar, nefið...), þá finnst mér tannréttingar miklu eðlilegra. Tennurnar eru jú nauðsynlegar, en í þessu tilfelli er þetta farið að snúast um útlitsbreytingu, þannig að það er hægt að rökræða nauðsyn þess. Og jú, ég er að fara að breyta því sem gerir mig að mér. En ég er orðin þreytt á að heyra að það sé bara sjarmerandi að vera með skakkar og öðruvísi tennur! Kannski er þetta aldurinn sem er að færast yfir mig ;)