Wednesday, May 31, 2006

Það er eitthvað mikið skakkt þetta dagatal hérna fyrir ofan....:) Jæja já.

Rigningunni hérna í flata landinu er að létta, sólin á að fara að skína aftur næstu daga. Mikið var! En það hefur verið ágætt að læra í þessu veðri samt, engin þörf til að njóta veðursins.

Það voru fréttir dagsins.

Saturday, May 27, 2006

Það bloggar enginn annar, þannig að ég held bara áfram....
Ég átti að fara að vinna í morgun, en barnið sem ég átti að passa reyndist vera í einangrun vegna heilahimnubólgu, og ég fékk þar af leiðandi frí vegna óléttu:) Ekki fannst mér það leiðinlegt, og hlakkaði mikið til að fá að sofa út! Þegar ég glaðvaknaði í morgun var klukkan þó ekki nema 7:( Þannig að ég borðaði bara morgunmat, kom mér vel fyrir uppi í rúmi og kláraði alveg hreint snilldar bók, og hló hástöfum við hliðina á svefnburkunni minni. Mér tókst að vekja hann endanlega kl.10.30 og sannfæra hann um að koma með mér út að borða brunch niðri í bæ, mmmmmmm.... Þar hámuðum við í okkur pönnukökum, sírópi, croissants, kokteilpylsum, brauði, osti og appelsínusafa ásamt hinum ýmsu ávöxtum. Staðgóður hádegismatur. Þetta ættum við að gera hverja helgi!

Svo röltum við í gegnum bæinn og kíktum í búðir, og fórum svo í garðútsölu hjá útivistarbúð í bænum þar sem var 70% afsláttur á flest öllu. Við keyptum nýjan bakpoka/skólatösku handa Jákup, en mér var neitað um að kaupa flíspeysu vegna þess að ég myndi ekki passa í hana hvort eð er eftir nokkra mánuði..:( Hann lofaði mér að kaupa allt sem ég girnist um leið og ég er orðin eðlileg stærð aftur. Ég ætla að láta hann standa við það!

Svo töluðum við við hann pabba gamla, sem tjáði okkur að hann væri líklega að koma í heimsókn þann 16.júní í 2 daga. Kristinn bróðir, Pálína og Teddi koma svo daginn eftir, þannig að ég fæ fullt af heimsóknum bráðum:D Jibbý! Systir hans Jákups er að koma til okkar á sunnudaginn og mamma hans og pabbi í örstutta heimsókn þann 10., þannig að það er nóg að gera:) En þau sjá okkur heldur ekkert næstu mánuðina, þar sem við ætlum bæði heim til Íslands í sumar.

Friday, May 26, 2006

Kvein

Það bloggar enginn á blogglistanum mínum! Það er hundleiðinlegt að fara blogghring þessa dagana....:( Viljiði svo fara að gera eitthvað í þessu!:)

Thursday, May 25, 2006

Dóra stúdent!

Hún Dóra litla systir mín fetaði í fótspor systur sinnar í gær og gerðist stúdent! Þó með mun betri árangri en systirin, hehe:) Sjá myndir hér. Innilega til hamingju Dóra!

Á meðan fjölskyldan fór út að borða heima á Íslandi í tilefni dagsins, var ég hér ein heima að slefa mig langaði svo í Domino´s pizzu eða bara einhverja íslenska pizzu, en eldaði fiskibollur og kartöflur í staðinn:( Ég var að reyna að fá þau til að panta fyrir mig á Caruzo og senda með hraðpósti, en eitthvað hefur það klikkað:)
Mmmmmm, talandi um mat, mig er búið að dreyma um íslenskar kræsingar síðustu daga. Ég er meira að segja byrjuð að skipuleggja hvers konar brauðtertu og kökur ég ætla að baka í tilefni af afmælinu mínu þegar ég kem heim!:) Það jafnast ekkert á við íslenskar kræsingar....

Í gær gerðist líka sá merkilegi atburður að ég 1. Eyddi 4 tímum í kandídatsverkefnið mitt sem ég á að skila á næsta ári, og 2. Fór í ræktina í fyrsta skipti í margar vikur. Ég er búin að vera sök um að hugsa að ég verði hvort eð er bara feitari með hverjum deginum, líkamsrækt eður æj. En það var fínt að hreyfa sig aðeins, og ég var gjörsamlega búin á því eftir á! Ég get hins vegar ekki þakkað mínum járnsjálfsaga fyrir þennan gjörning, heldur var ástæðan sú, að það rigndi svo mikið í gær að ég fór niður í ræktina á sjúkrahúsinu eftir lærdóm, í von um að það væri búið að stytta upp þegar ég var búin að hlaupa svolítið:-) hehehe

Friday, May 19, 2006

Livet efter eksamen

Það er gott að eiga sér líf á ný! Var í prófi í morgun og er ekki búin að gera annað en að læra síðustu tvær vikur. Það gekk hins vegar assskoti vel og fékk ég 90% rétt:D
Svo er það eilífa eirðarleysið í mér eftir svona próftörn! Ég get ekki slakað á...

Ég komst að því í dag að ein vinkona mín í bekknum á að eiga nokkrum dögum seinna en ég í des. (Fyrir utan hinar 6 sem eru óléttar!!) Það er ferlega gaman að við skulum geta verið samferða með þetta:) Gaman að þessu.

Annars var ég að taka viðtöl við umsækjendur inn í læknanámið í gær. Það er þannig að helmingur þeirra sem komast inn, kemst inn á stúdentseinkunn, og helmingur er valinn út (af 1700 umsækjendum) og boðuð í viðtal, þar sem þau eru svo metin. Af 300 sem koma í viðtöl, fá ca.150 tilboð um pláss. Það var ferlega gaman að vera með í þessu, þó að ég hafi verið svolítið stressuð yfir prófinu daginn eftir. Ég var í hóp með eldri lækni, magaskurðlækni, og í lok dagsins sagði hann að ég ætti bara að láta vita ef okkur vantaði "afa" til að passa fyrir okkur, og eins ef mig vantaði sambönd innan skurðdeildarinnar, þá ætti ég bara að hafa samband:-) LOL! Hress kall!!
Mér fannst allir umsækjendurnir svo góðir, það var erfitt að meta þau. Ég vildi helst sjá þau öll komast inn! Allra helst hefði ég þó viljað sjá mitt eigið viðtal og mat endurspilað fyrir mig!:) Það væri gaman að sjá hvernig það gekk! Ég skil eiginlega ekki í dag hvernig í ósköðunum ég komst inn fyrir 5 (!!!!!) árum miðað við hversu vel undirbúnir allir umsækjendurnir eru. Ég man að ég hugsaði ekki einu sinni út í hvað ég ætlaði að segja í viðtalinu mínu, fyrr en ég sat í lestinni á leiðinni til Odense:) Slúbbert!

Tuesday, May 16, 2006

Sko, þetta gátum við!



Jæja, við fórum í sónar í dag og sáum lítinn spriklara sem hefur það gott:D Þar með getum við ekki haldið þessu leyndu meira (sem er erfitt fyrir, það virðast allir vita það hvort eð er:) Krílið er 11 vikna og kemur í heiminn í kringum 6.des, litlu systur hans Jákups til mikillar gleði, því hún á afmæli 7.des.
Jákup var ekki lengi að sýna öllum vinunum (og öllum öðrum sem gengu framhjá....þetta fór heldur ekki framhjá bekkjarfélögum mínum...) sónarmyndina í dag, stoltur og glaður! Ég var hins vegar eitthvað feimnari við þetta, finnst við svolítið snemma í því. En ég er samt fegin að hætta þessu leynimakki:)

Monday, May 15, 2006

Ég er búin að panta flug fyrir okkur Jákup þann 30.júní, strax eftir próf! Eins gott að þeir fresti engu þann daginn!:)
En það er að styttast í heimför...jibbý!!

Tuesday, May 09, 2006

Jákup hélt upp á afmælið sitt á laugardaginn og það kom skari af fólki. Það var virkilega gaman að hitta alla, og Jákup var mjög sáttur. Þegar fólkið fór í bæinn um tvöleytið ákvað ég að verða eftir, af því að ég var dauðþreytt, enda vaknaði ég kl.7 um morguninn. Ég fór bara að taka til eftir partýið og dreif mig svo bara í rúmið, nema að ég tók eftir að það voru eitt par kvenmannsskór eftir í ganginum og þegar ég kom inn í svefnherbergi lá þar einn jakki! Ég get svo svarið það, ég kíkti í alla skápa og og leitaði að þessum dularfulla aðila sem varð eftir! En það var enginn..... Ég er búin að finna eiganda jakkans, en ekki skónna:=) Hver fer í bæinn án skónna sinna?? Gefðu þig fram kona!:D
Annars er hér glampandi sól alla daga og 20-22 stiga hiti og við lögðumst bara út í garð í gær eftir skóla og nutum sólarinnar. Það er ansi erfitt að lesa í þessari bongóblíðu eins og hann frændi minn segir. En nú verð ég að taka mig taki, það er próf í næstu viku og nóg að lesa!

Wednesday, May 03, 2006

Sumarið er komið!

Já loksins byrjaði að hlýna fyrir alvöru og ég var of vel klædd á leiðinni í skólann í morgun. Það er hægt að byrja tilraunir í að breyta húðlit héðan í frá:)
Við J vorum svo svöng eftir skóla að við brunuðum heim og elduðum heimatilbúna hamborgara kl.15:-) Þá verður bara eitthvað snarl í kvöldmatinn. Inn á milli lestursins! Það er alveg vitlaust að lesa fyrir skólann, og svo ætlar Jákup að halda upp á afmælið sitt á laugardaginn, þannig að eitthvað verð ég að taka til líka. Skrítið hvað tíminn er fljótur að líða á milli afmælisdaga, við verðum eldri og eldri, og náum ekki að fylgja með í huganum:)
Ein mynd í lokin af Jákup að gefa Tobias mauk að borða í annað sinn. Jákup tók sig vel út, og barnið elskar hann eftir þetta. Hann fær alltaf risabros í hvert sinn sem Tobias sér hann:)