Saturday, April 29, 2006

Insomnia

Það er svo furðulegt, alveg sama hvenær ég fer að sofa á kvöldin, þá bregst það ekki að ég er byrjuð að rumska upp úr kl.6 og þegar kl. er 7.30 get ég bara ómögulega sofið lengur! Ég er nú vön að fara sæmilega snemma að sofa upp á síðkastið af því að ég hef verið í praktík síðustu mánuði og alltaf þurft að vakna snemma alla daga. En í gær fór ég að sofa að verða 01.30, og þegar ég byrjaði að rumska, hugsaði ég mér gott til glóðarinnar, nú hlyti klukkan að vera margt! Nema að klukkan var 7.40 og ég var búin að vakna margoft! Hvað er að mér? Jákup sefur á sínum græna og ég er bara byrjuð blogghring dagsins (sem gefur ekki sérlega mikið af sér, þar sem kl. er 6 á Íslandi auk þess sem það er laugardagur!) og búin að borða morgunmat(cocoa puffs, hihi). Kannski ætti maður að eyða þessum tímum í lestur??? Hmmmmmm. Eða spila nokkra kapla:)
Við vorum annars í mat hjá Ívari og Stínu í gær, og fengum alveg meiriháttar mat! Hörpudisk og rækjur í forrétt og lambafilét með bakaðri kartöflu og salati í aðalrétt. Nammmmmm... Það var svakalega huggulegt kvöld, og við verðum að endurtaka þetta fljótlega, þó ég sé nú hrædd um að geta ekki framreitt alveg jafn glæsilegan menu:-)

Á morgun er svo skírn hjá litlu krílunum í næstu íbúð. Þeir eru að gera mömmu sína geðveika, þannig að þau eru búin að biðja okkur um að fara stundum með þá út að ganga í vagninum svo hún fái smá pásu, og við verðum að sjálfsögðu við þeirri ósk:) Við pössuðum þá aðeins í fyrradag og í gær af því að mamman og pabbinn voru að undirbúa skírnina, og það er nú meira en að segja það að passa tvo í einu! Ég tek hattinn að ofan fyrir henni Lene, að hún skuli vera með þá ein allan daginn!

Saturday, April 22, 2006

Arg

Sigrún ef þú lest þetta, máttu vita að ég er að verða geðveik! Langaði að henda tölvunni í gólfið! Ég er búin að reyna að kommenta á síðuna þína margoft og alltaf kemur innsláttarvilla í þessu helv...... öryggiskerfi! Man ó man. Andskotans helvítis.

Thursday, April 20, 2006

Vard ad prófa!



create your own visited countries map
or vertaling Duits Nederlands

visited 12 countries (5%)

Ég verd ad fara ad drífa mig út fyrir Evrópu! Thetta gengur ekki....

Tuesday, April 18, 2006

Ég er komin með kviðslit.....buhuhuhuhuhuhu....... Maður á sem sagt ekki að lyfta alls konar húsgögnum eins og hver annar karlmaður!

Sunday, April 16, 2006

Við Jákup horfðum á myndina Crash í gærkveldi. Okkur þótti hún meiriháttar góð, og vorum sjokkeruð yfir öllum fordómunum! Mikið er ég fegin að búa ekki í Bandaríkjunum! Við horfðum líka á King Kong í fyrradag, henni sofnaði ég yfir:) Við erum í páskafríi og erum búin að njóta þess að gera sem minnst síðustu daga. Fyndið hvað mann hlakkar alltaf til að komast í frí, og svo leiðist manni bara þegar fríið loksins byrjar! En við erum að venjast því að gera ekki neitt, það venst vel:) Nú er fríið líka að verða búið. Þá er best að reyna að nýta síðustu dagana í að koma húsinu í almennilegt horf og þvo gólf osfrv..... Ég er byrjuð að japla á páskaegginu sem mamma og pabbi voru svo sæt að senda okkur (mér hehe) -nói síríus er bestur! Namminamm!
Ég spjallaði við hana ömmu mína í gær, og hún sagðist lesa bloggið mitt á hverjum degi. Nú verð ég að herða mig í skriffinnskunni;) Það er bara svolítið erfitt í Esbjerg, því þar er bara ein tölva fyrir alla aðstoðarlæknana og okkur, og það er slegist um hana.

Að lokum vil ég auglýsa aftur eftir húsnæði fyrir okkur hjúin í sumar. Umtalaða tímabil er 1.júlí til 31.ágúst, hugsanlega til 15.sept ef hægt er. Okkur vantar ekkert stórt, og hugsanleg skipti koma vel til greina ef einhver vill fá íbúðina okkar lánaða í staðinn! Látið fréttina ganga:-) Ég er búin að skella inn auglýsingu á barnaland líka.

Tuesday, April 11, 2006

Páskablogg!

Ég býð spennt eftir páskaegginu mínu og cocoa puffsinu sem því er pakkað inn í! Í gær hringdi dyrabjallan á meðan við lágum ennþá í bælinu, og ég hélt auðvitað að þar væri pósturinn á ferð og bað Jákup um að drífa sig í föt og til dyra.....hann dreif sig greyið eins og hann gat....en þetta voru vottar jehóva!:( Hvers á ég að gjalda?? Súkkulaðisvengdin er farin að segja til sín!

Ég var að enda við að vinna tvær næturvaktir á gjörgæslu og er nú komin í páskafrí! Jibbí! Enda þörf á smá heimaveru svo ég nái að þvo gólf og hengja upp gardínurnar aftur sem gáfu upp öndina á laugaradaginn og hrundu á gólfið....

J er að fara að spila póker! Verð að stoppa!

Sunday, April 02, 2006

Við hjúin skruppum til Köben um helgina. Á föstudagskvöldinu fórum við út að borða með Annie litlu systur hans Jákups, og fórum svo heim til hennar og horfðum á dvd og höfðum það huggulegt. Laugardeginum eyddum við með litlu systur í Fisketorvet, og svo fór ég að heimsækja Vigdísi, Eika og Sóldísi og við spjölluðum lengi fram eftir (takk fyrir mig!:). Jákup fór að hitta færeyska vini sína á meðan og kom seint heim. Við Annie vorum þó vakandi og vorum að spjalla um stóru málefni lífsins:) Í dag fórum við svo að gefa öndunum rétt hjá kollegíinu hennar Annie og sáum þá skjaldböku liggja þar við vatnið! Við enduðum með að taka hana með okkur og skiluðum henni í gæludýrabúð í næsta nágrenni. Greyið skjaldbakan var greinilega búin að vera lengi úti, var útötuð í fuglaskít og alles..
En nú er ég um það bil að rjúka til Esbjerg, tek lestina kl.22 til að hefja viku nr.2 á taugadeildinni. Jibbícóla!