Thursday, December 28, 2006

Kristina Ósk

Ég er búin að breyta léninu hennar í www.kristinaosk.barnaland.is.
Það koma inn nýjar myndir í dag!

Tuesday, December 26, 2006

Jól og nafngjöf



Síðan síðast:
Fæðing
Heimkoma

Fjölskyldan komin í heimsókn frá Íslandi og Færeyjum

Jól


Loksins ákvað litla krílið að láta sjá sig. Það gerðist 16.des.
Nú eru jólin að verða búin og mamma, pabbi, Dóra, Gunnar og amma eru að fara heim á morgun. Það verður tómt í kotinu næstu daga. Það er ágætt að Jákup á ekki að mæta í skólann fyrr en eftir áramót, svo viðbrigðin verði í smá skömmtum. Ég hef ekki verið ein heima með stelpuna nema tvisvar í fáeina klst síðan ég kom heim af spítalanum. Það hefur verið gott að hafa svona margar hendur til þess að skiptast á að halda á henni á þessum erilsama tíma. Hún hefur líka verið mjög óróleg á nóttinni flestar nætur og grátið í nokkra tíma. Í nótt fór hún ekki að sofa fyrr en kl. 7.30 um morguninn, og við Jákup búin að skiptast á að ganga um með hana alla nóttina. Þetta er vonandi bara tímabundið! Við erum orðin ansi lúin... Hún er hæstánægð þegar stofan er full af fólki, þá sefur hún best í vöggunni á milli okkar allra.
Við héldum jólin báðar fjölskyldur saman, og það var virkilega vel heppnað og huggulegt. Ég hef aldrei séð jafn margar jólagjafir undir jólatrénu áður! Og við vorum helminginn af kvöldinu að opna gjafir handa litla krílinu. Takk fyrir okkur allir!:-)
Stúlkubarnið er búin að fá nafn. Hún heitir Kristina Ósk Jákupsdóttir. Skírnin fer þó ekki fram fyrr en um páskana. Hún er nefnd eftir báðum ömmum, en það skipti okkur máli að finna nafn sem gengur í öllum þremur löndum:)

Friday, December 15, 2006

Ég fékk reglulega samdrætti í nótt, sem héldu fyrir mér vöku á milli kl. 3 og 6. Ég var mjög ánægð með þá þróun og hugsaði með mér að 15.12. væri barasta fín dagsetning. Nema að samdrættirnir duttu niður aftur! øv..........
Þessi bið er án vafa það leiðinlegasta sem ég hef upplifað!!:-(

Wednesday, December 13, 2006


Ein lokabumbumynd (vonandi) fyrir þá sem ekki fylgjast með barnalandi. 41 vika.

Annað af púsluspilunum sem við Jákup erum búin að púsla. Mjög skemmtilegt:)

Og jóladúkurinn undir jólatréð er í vinnslu, eins og sést hér:)

Svo er ég búin að baka smákökur og snúða, og er hálfnuð með eina bók...

Það er sem sagt ekkert að gerast enn!

Monday, December 11, 2006

Jólakort

Alveg rétt....það var verið að biðja mig um heimilisfangið okkar fyrir jólakortin.
Hér fáiði það:
Pjentedamsgade 49 st.th
5000 Odense C
Danmark

Ég er nefnilega búin að sauma jólakortapoka, og mamma búin að ganga frá honum fyrir mig, og verð nú að fá einhver jólakort í hann:-)

Mamma mætti nágranna mínum hlaupandi niður tröppurnar í dag. Hún hljóp upp og niður bara til að athuga hvort eitthvað væri búið að skrifa í fréttum á töfluna niðri í kjallara:) Það mætti halda að það fæddust engin börn lengur! Annars held ég að stelpan sé að reyna að virða óskir móðursystur sinnar. Dóra vildi nefnilega fá að sjá hana alveg splunkunýja, og það lítur út fyrir að verða raunin. Ekki bjuggust við nú við því!
Við Jákup og mamma erum búin að horfa á allar Lord of the rings myndirnar, extended edition, síðustu 3 dagana takk fyrir. Snilldarmyndir! Við erum búin með 2 púsluspil. Allt að gerast hér á bæ. Ég er guðslifandi fegin að hafa ekki farið í fæðingarorlof fyrr...
Ljósmóðir á morgun. Belglosun, tilraun 2.
Annars var Sigrún vinkona að kvarta undan prófljótu. Að maður verði svo skelfilega ljótur í prófunum. Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að meðganga, gengin vel á 10.mánuð sé verri! Og hananú.

Saturday, December 09, 2006

Tanja vinkona mín var sett 14.des. Hún átti strák í dag. 13 merkur og 51cm.
Ég er að púsla. Bömmer.

HAhaha

Hélduð þið að ég væri farin af stað?? Aldeilis ekki! :) En.....pílurnar eru að aukast, lofi sé drottni!
Við fórum á árlegt jólahlaðborð í húsinu okkar í gærkveldi. Ég hafði ekki reiknað með að komast og hafði því ekkert fylgst með hvað við áttum að hafa með okkur. En við áttum að taka grafinn lax og sósu (sem ég mundi eftir) og 2 pakka pr par fyrir pakkaleik (sem ég mundi ekki eftir). Jákup hljóp því niður og snaraði í pakka. Nágrannarnir vildu þó helst setja litla barnið í pakkaleikinn, og sögðu það gilda fyrir tvo pakka. Billigt sloppið, ha? Við enduðum með að vinna økologisk hindberja- og vanillumarmelade og borða með danska fánanum. Gat það verið meira danskt??
Nágrannarnir tjáðu okkur einnig að það væru búnar að vera miklar spekulationer í kringum það hvort við værum búin að eiga. Það voru hin ýmsu komment um að það væri svo hljótt hjá okkur: við hlutum að vera á spítalanum, að barnavagninn væri ekki kominn: ekki búin að eiga, slökkt ljós: búin að eiga osfrv... J er búinn að lofa að skrifa það niður á töflu þegar barnið fæðist. Hann afþakkaði tilboð um að banka hjá hverjum og einum:-)

Thursday, December 07, 2006

Ekkert enn.............

Við erum hins vegar að fara að halda uppá afmælið hennar Annie í kvöld. Stúlkan verður 23 ára í dag. Ætli hún óski sér ekki helst litla bróðurdóttur í afmælisgjöf?:)

Tuesday, December 05, 2006

Dagurinn er kominn!

Litla stelpan mín ætlar að koma þegar hún ákveður það sjálf. Ég verð bara að bíða eftir henni. Ég lét hreyfa við belgnum í morgun, sem var vont á meðan á stóð, en hef ekki fundið fyrir neinu síðan. Við verðum bara að vera þolinmóð og finna okkur eitthvað að gera:) Ég verð að segja að eftir upplifun mína í morgun, er ég ekkert rosalega spennt fyrir því að koma þessu barni út!:-/ Mjög vont....
Við buðum Halldísi vinkonu í mat í gær og tókum fram jólamatardiskana okkar. Það er jólastemning hér á bæ:) Við fengum nautatornedoes og ofnbakaðar kartöflur með 1L af sósu í matinn! Ég var ekki alveg að reikna sósumagnið rétt:-D
Svo erum við hjúin bæði komin með nýja síma! Jákup keypti handa mér þennan:

Motorola RAZR V3i Dolce & Gabbana







Og ég keypti handa honum þennan:


Sony Ericsson W810i

Friday, December 01, 2006

Ekkert....

að gerast:( Við erum bara búin að búa til aðventukrans, setja upp jólaseríu, skrifa jólakort og kaupa nokkrar jólagjafir. Svo er mamma auðvitað ofvirk í prjónaskapnum:)
Við fórum á Jensens böfhus í gær og fengum okkur að borða, með það í huga að þetta væri sennilega í síðasta sinn í lengri tíma sem við komumst út, nema að þetta dragist endalaust! Svo fór ég í afmæli til Hjördísar og gúffaði í mig kökur og annað góðgæti. Ég fékk sannarlega að finna fyrir því þegar ég fór að sofa, því þá kom brjóstsviði! En kökurnar voru góðar....:-D

Þetta verður sem sagt desember barn, það er nokkuð ljóst!