Friday, February 29, 2008

Kristina morgunhani

Er ekki meiningin að börn verði svo þreytt þegar þau séu að læra að ganga? Noti meiri orku og svona? Kristina vaknaði kl.5 í morgun og var tilbúin að byrja daginn! Fyrir stuttu síðan var hægt að treina það aðeins að fara á fætur, því hún lá á milli okkar og brölti, og sofnaði jafnvel aftur ef við vorum heppin.... En núna klifrar hún yfir mig um leið og hún vaknar og rennir sér framúr rúminu. Það er misgott hvað hún er að verða sjálfbjarga %-) Það var ekki annað að gera að skiptast á að sofa, og Jákup fékk fyrsta vinnutjansinn:)

Thursday, February 28, 2008

Skokkgleðin -nú á það að vera!

Ég fór út að skokka áðan, en er annars búin að vera óheyrilega léleg að drífa mig af stað. Ég fer ekki nema ca einu sinni aðra hverja viku eins og er. Nema að ég hitti á leiðinni 4 bekkjafélaga að skokka í sitt hvoru lagi og systur vinkonu minnar! Þegar ég mæti svona fólki sem ég þekki dáist ég alltaf að því hvað þau eru dugleg að hreyfa sig reglulega, því ég veit auðvitað sannleikann um mig:) Kannski hittist þannig á að þau eru alveg jafn löt og ég, og þau eru að hugsa það sama um mig?? Það er gott að það er það kalt í veðri ennþá að maður er svo dúðaður að það er auðvelt að fela allt síðuspik sem myndi koma upp um letina:D hehe

Sunday, February 24, 2008

Verkefnid stóra:)

Tvø blogg á einum degi, hvad er ad gerast??
Já ég er ad vinna:) Get ekki farid ad sofa thví ad einn af sjúklingunum er bimmilimm og ég veit ad ég fæ engan frid hvort ed er. Thá getur madur alveg eins nýtt tímann smá!
Ég nádi loksins smá brakethrough í verkefninu í dag. Ég fékk 3ja tíma frid til ad vinna med thad, og komst aftur í gang. Ég komst reyndar ad thví ad ég thurfti ad byrja uppá nýtt enn og aftur med alla útreikninga, en ég verd fljótari og fljótari ad thessu og hef fulla trú á ad thetta hafi verid í sídasta sinn. Mér tókst ad skipuleggja framhaldid og vonast til ad geta skrifad fyrsta uppkast og sent thad til leidbeinandans á morgun! Ædislegt ad fyllast aftur af smá vinnugledi!:-D

En verkefnid fjallar um hvada faktorar (ísl ord hjálp?) hafa áhrif á hversu vel heyrnin batnar eftir eyrnaadgerdir thar sem beinkedjan er løgud. Adgerdirnar eru oft framkvæmdar vegna kronisks sjúkdóms í eyranu thar sem beinin eru hreinlega étin upp, eda theim hefur verid hlidrad úr réttri stødu. Ég er ad bera saman 7 mismunandi faktora, m.a. hvada sjúkdómur er valdur ad vandamálinu, hvers konar adgerd var framkvæmd, hvort thad hafi verid framkvæmd adgerd á eyranu ádur eda ekki osvfrv. Og svo tharf ég ad búa til alls konar grøf og boxplots til ad sýna nidurstødurnar. Og ad sjálfsøgdu bera saman vid fyrirliggjandi greinar um efnid. Thad er ótrúlegt hvad madur getur verid lengi ad gera einføldustu grøf, svo thau líti rétt út!

Ég er búin ad borda thad sama í hádegismat og kvøldmat: rúgbraud med fiskibollu/hamborgarahrygg og kók. Boring. Hlakka til ad fá kvøldmat á morgun.

Labbilabb

Litla fjølskyldan fór í gær í Løvens hule, sem er stórt leiksvædi fyrir børn med boltalandi, rennibrautum og fleiru. Um leid og vid settum Kristinu nidur hjá hinum krøkkunum, brosti hún út ad eyrum og byrjadi ad brølta um. Hún skreid yfir hindranir og skellti sér í rennibrautina sem endadi í boltalandinu, og skemmti sér afar vel! Hún elskar ad fylgjast med ødrum børnum. Í lokin eftir mikid brølt og mikid gaman, sat hún og horfdi á krakkana hlaupa um. Thá stód mín bara upp og gekk af stad!:) Hún hefur í 2 mánudi tekid 2-4 skref og sídan sest nidur, en frá og med midjum degi í gær gengur hún á milli hluta, í 8-10 skrefum, nokkud óstødug en gengur thó! Yes! Ég var farin ad verda ótholinmód, allir hinir krakkarnir eru løngu búnir ad taka framúr thegar kemur ad thví ad ganga. En dóttir mín er bara svo ægilega varkár:)

Annad mál er ad hún er alls ekkert varkár thegar kemur ad mømmu hennar. Ég veit ekki hversu mørg høgg mér hefur verid veitt á nefid sídasta hálfa árid! Kristina sefur oft stóran hluta nætur uppi í rúminu okkar, vegna tanntøku, eyrnaverka, magapínu eda annars, og thá á hún thad til ad sparka rækilega í okkur foreldrana auk thess ad skalla okkur í andlitid. Oftum ligg ég og er jafnvel ad dádst ad henni sofandi (børn eru fallegust sofandi) thegar hún ákvedur ad hún sé búin ad fá nóg af thví ad liggja á theirri hlidinni, og snarar sér yfir á hina, á sama tíma og hún fleygir hausnum í nefid á mér! Ég skil ekki af hverju hún tharf alltaf ad hitta á nefid á mér (kannski skarar ættarnefid bara einum of langt fram, ha?). Einu sinni skalladi hún mig thó í "tindingen" og ég fékk kúlu. En ég skil sem sagt ekki af hverju barnid er ekki búin ad brjóta á mér nefid. Henni finnst best ad liggja ofan á mér eda mjøg nálægt amk, og oftar en ekki kúrir hún sig ofan í hálsakotid á mér. Best í heimi. Í gær var henni illt og eftir 2ja tíma svefn í eigin rúmi, vard ég ad taka hana uppí og svæfa hana aftur. Thá lagdist hún med kinnina á andlitid á mér svo ég myndi ørugglega kyssa hana:-D Mjúka barnid mitt.

Thursday, February 21, 2008

Litla gullið mitt

Við Jakup vorum að skoða gamlar myndir úr símanum mínum og fengum algjöra nostalgíu.

Þarna var hún aldeilis lítil og sæt!

Og ein nýleg, þegar við fórum á Jensens með Kristni, Guðrúnu og Tedda.
En ég er heima með hálsbólgu og er illt. Uhuhuhu. Og verkefnið er leiðinlegt. Ég skal lýsa því seinna. Ég er að fá gesti, og Kristina er svolítið lítil í sér..

Wednesday, February 13, 2008

Sagan endalausa

Ég þykist vita að allir séu orðnir þreyttir á að lesa um verkefnið endalausa, en óheppni mín er takmarkalaus! Án gríns.
Ég get ekki fengið tölfræðiforrit fyrr en á morgun. Allt í lagi með það. Þannig að ég er búin að nýta tímann í annað á meðan. Nema hvað að ég var að uppgötva að 7 af þeim 223 sjúklingum sem ég er að nota, eru ónothæfir og ég þarf að byrja frá byrjun með ALLT. Bráðum myrði ég einhvern! Ég var búin að reikna næstum alla tölfræði, byrjuð að búa til stöplarit og búin að skrifa allt sem hægt var hingað til.
Ég ætla út að hlaupa til þess að losa um gremjuna. Vonandi mæti ég engum fyrsta korterið.

Monday, February 11, 2008

Kill bill



Hversu geðveikur á maður að þurfa að verða í svona verkefnaskrifum???!

Fyrst er mánuðurinn búinn að vera mjög afkastalítill vegna gestagangs (þó hann hafi líka verið kærkominn, ekki misskilja!:) og vinnu, svo eyddi ég dögum í að fiksa forritin sem ég þurfti að nota. Þegar ég vaknaði í morgun sendi ég Jákup af stað með Kristinu til dagmömmunnar í fyrsta sinn í 5 daga, og ætlaði svo að demba mér í verkefnið. Nema hvað, tölvan var búin að láta lífið yfir nóttina! Hún vildi ekki starta og eftir nokkrar tilraunir og samtöl yfir atlantshafið við hann pabba, komumst við að þeirri niðurstöðu að endurlífgunartilraunir myndu ekki borga sig.

Hvað gera bændur þá?

Þeir fara út og kaupa sér nýja tölvu. Í Netto! Hehehe. Við vorum á leiðinni í Rosengaardcentret og vorum búin að ákveða nokkurn veginn að kaupa HP tölvu með 160 gB minni og 15 tommu skjá á 6000kr. En fórum í Netto að kaupa í matinn. Þá hafði þessi sama tölva verið á tilboði síðasta sunnudag og það voru 2 stk eftir! Á 5000kr.

Nú sitjum við Jákup á móti hvoru öðru með eins tölvur, bara litla og stóra bróður (hans er með 17 tommu skjá) og fílum þetta bara ágætlega. Gamla tölvan fer á haugana, og skrifborðið verður aftur hægt að nota í lærdóm. Svona borðtölvur taka svo mikið pláss.

Það er ekki allt alslæmt við svona óhöpp:-D

Thursday, February 07, 2008

Ótrúlegt

Er thessi gaur ótrúlegur eda hvad?

Wednesday, February 06, 2008

Shiiiiit!


Ég er svo stolt af sjálfri mér núna að ég er að springa!!:-)
Mér tókst að fá Reference manager version 10 og Word 2007 til að vinna saman með því að leita að upplýsingum á netinu og fikta í hinum ýmsu stillingum í tölvunni. Sjálfstrausti mínu verður ekki haggað í dag:-D Ég fór líka á fund með leiðbeinandanum mínum í gær og komst að því að öll vinnan sem ég er búin að vinna síðustu vikur var ekki til einskis, hann hefði gert það nákvæmlega eins. Og ég fékk hjálp til þess að halda áfram. Þá er bara að klára þetta bévítas verkefni!! Trallallallallalla
3 tímum síðar: Dauði og djöfull. Af hverju þarf SPSS að vera svona helvíti leiðinlegt við mig??!%&!")%$

Tuesday, February 05, 2008

Febrúarhangs


Jákup og Kristina í flugferð!

Rétt hjá þér Sigrún! Ég er lélegur bloggari þessa dagana. Ekki vegna þess að ekkert hafi verið um að vera upp á síðkastið. Bara af hreinni leti. Það er búið að vera margt um manninn á heimilinu.
Fyrst kom mamma um miðjan janúar, og pabbi stoppaði yfir helgi á meðan hún var hérna. Það var étið og étið, og við hjúin komumst í bíó:) Svo fór mamma, og nokkrum dögum seinna komu tengdó og voru í nokkra daga. Sama dag og þau fluttu sig um set yfir til Marianna, komu Sigrún og Jón Þór í heimsókn. Það var rosalega gaman að sjá þau, og mikið hlegið að vanda! Takk fyrir okkur;)
Fljótlega koma svo bæði Annie systir hans Jákups, og Kristinn bróðir og hans fjölskylda. Það er svo gaman að sjá allt þetta fólk!! Við Jákup erum "bara" að skrifa kandídatsverkefnin okkar þessa dagana, og það hefur ekki verið svona mikil ró yfir mér í marga mánuði. Ástæðan er sú, að ég er hálfpartinn strönduð í verkefninu eins og er, og á fund með leiðbeinandanum á eftir. Þannig að ég byrja vonandi á fljúgandi ferð aftur á morgun. Þangað til er ég búin að njóta þess svolítið að horfa á sjónvarpið, lesa bækur og sauma í fyrsta sinn í marga mánuði. Það er svo ljúft að vera svona stresslaus í nokkra daga. Verkefnið þarf hins vegar helst að klárast að mestu núna í feb, þannig að það verður ekkert hangs á morgun.
Mamma kom með Næturvaktina með sér, og ég horfði á alla þættina á 2 dögum. Svo er ég búin að vera með þetta á heilanum síðan! Þvílík snilld! Ég horfði svo á Astropiu í morgun, og fannst hún ekki alveg að gera sig. En bækurnar hans Stieg Larsson eru meiriháttar spennandi, og varla hægt að leggja þær frá sér! Mæli með þeim. Og Wire in the blood eru góðir þættir. Þá vitiði hvað ég er búin að vera að gera;-o hehe