Saturday, May 17, 2008

Dagurinn í dag

Jákup fór í dag og keypti nýtt rúm handa prinsessunni. Rúmið er lágt eins og er, en það er hægt að setja stólpa undir og stiga, svo hægt sé að leika sér undir því. Gerum það seinna. Kristina er ægilega ánægð með nýja rúmið! Við drifum líka í því að setja upp myrkvunargardínur inni hjá henni, svo birtan sé ekki að halda henni vakandi.


Ég fór á meðan á lagersölu hjá þessu fyrirtæki! Ég slóst í för með Valdísi, Ragnheiði og Finni. Við gerðum góð kaup, og ég keypti eina peysu, tvo síðerma boli, 9 hlýraboli, eina skyrtu, einn kjól, þrennar buxur og einn bol á Kristinu fyrir 1700kr! Þetta var líka upplifun í sjálfu sér. Þarna voru konur með stóra sekki og hentu fötunum í, og fóru svo eftir á út í horn og sorteruðu. Þær stóðu á nærfötunum og mátuðu. Það var slegist um flíkurnar!

Jákup er farinn í grillpartý og við Kristina ætlum að hafa það huggulegt heima. Þegar hún er sofnuð ætla ég að plokka og lita og horfa á stelpumynd!!:)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home