Maður lærir allt lífið
Mikið get ég orðið þreytt á því stundum að vera enn að læra á lífið, orðin 30 ára. Ætli ég sitji enn þegar ég er orðin sjötug og nagi mig í handarbakið yfir einhverju sem ég sagði eða gerði?
Í mínu lífi fjallar það yfirleitt um að gjamma of mikið um eitthvað við einhvern. Og fatta það um leið og ég sleppi setningunni að ég hefði betur látið það vera. Það er bara þannig að ég greinilega á erfitt með að gera upp atburði með sjálfri mér fyrr en ég er búin að tala út um það. Og þyrfti stundum að sitja á mér, eiga það við sjálfa mig eða bíða þangað til ég er komin heim að tala við Jákup. Ég er alltof fljótfær, þoli það ekki! Og svo er ég oft of hreinskilin fyrir marga. En það er þeirra vandamál.
Djöfull hlýtur maður að vera orðinn klár um áttrætt! :)
Það er stöðugt verið að gera grín að því í vinnunni að ég sé síétandi. Hjúkkurnar segja að ég sé alltaf gúffandi eitthvað þegar þær sjá mig. Svo sagði ein þeirra í gær og ég hlyti að vera með hraða brennslu fyrst að ég gæti alltaf verið að áti. Ég held í alvöru að það sé í fyrsta sinn á ævinni sem ég heyri að ég hljóti að vera með hraða brennslu! En ég er satt að segja sjálf farin að hafa hálfpartinn áhyggjur af því hvað ég get látið ofan í mig af súkkulaði og ís án þess að það sjáist. Ætli ég sé að skipta alfarið um brennslukerfi á gamals aldri? (og þá meina ég gommuna af súkkulaði og nammi sé ég át í síðustu viku og ekki búin að bæta grammi á mig eftir helgina!) En er samt alveg til í að missa 2-3 kg sko.....Svona eru konur alltaf hálfklikkaðar :D hehe
Ég er bara ansi hress með að hjóla á morgnana þó ég sé búin að væla um annan bíl. í fyrsta lagi er þetta að venjast mjög vel (aftur. Er jú búin að hjóla allt daglega í mörg ár.) og mér finnst bara hressandi núna að mæta sveitt í vinnuna og vera búin að viðra mig aðeins áður en langur dagur byrjar. Í öðru lagi fitna ég ekki :) Í þriðja lagi tæmist hausinn af sjúklingum og hausverk á leiðinni heim! Snilld. Snjórinn má láta bíða eftir sér eins lengi og hægt er.
Eftir tvær og hálfa viku ætlum við Kristina að skella okkur í mæðgnaferð að heimsækja Dóru systur! Júhú!

5 Comments:
Ásta, thú ert stórkostleg eins og thu ert! Vildi ekkert hafa thig ødruvísi;)
Enn og aftur, *smá øfund* yfir ad thu getir hjolad i vinnuna! Einhvern timann thegar eg verd stor ætla eg ad geta thad!
Knus s
Ertu nú að búa til eitthvað drama Ásta mín? :)
Ég væri sjálf alveg til í smá hraðari brennslu. Ég fór til læknis í morgun til að tala um pilluna og læknirinn vildi ýmsar upplýsingar um hæð og vigt (hún ætlar að tjekka á PCOS) og þá kom í ljós að ég er búin að léttast um svona 3 kíló síðan ég flutti hingað. Mér finnst það ekki slæmt. :P
Ég væri alveg til í að fá mér hjól, en ég hef ekki efni á því og svo er ég ekki viss hversu mikið úthald ég hefði til að hjóla hérna...brekkurnar eru sumar hverjar ansi svakalegar.
Ég hlakka til að sjá ykkur! :D
Takk Sigga! Risaknús ;*
Ekkert drama Dóra, ég lofa :) Bara ég sjálf að niðurgreina í smáatriðum hvað ég hefði betur sagt í öllum aðstæðum, og alltaf sjálfsgagnrýnin. Ég overanalysera allt!
Ég skil þetta með að vera sífellt að hugsa til baka um hvað maður ætti að segja og hvað ekki. Gera það ekki allir?? :)))
Þú ert frábær eins og þú ert, síétandi eða ekki, +- einhver kíló. En hvort sem þú ert síétandi eða þurfir að léttast/þyngjast haltu þá áfram að hjóla meðan þú getur. Eins og þú segir, það hressir þig í báðar áttir. Ég vildi að ég gæti hjólað meira...
HD
Maður er að læra fram á grafarbakkan dóttir mín góð.
Öðruvísi væri ekkert gaman að þessi lífi.
að kvarta yfir því 30 er ekki tekið gilt, með allt með sér í lífinu eins og þú ert. Falleg ung kona með góða menntun og átt tvær prinnsessur og fallegan mann og goot útlit.
Að ég tali nú ekki um góða heilsu.
Hvað viltu meira ?
flugvél fyrir afganginn !!( fjölskylduhúmor)
mamma
Post a Comment
<< Home