Monday, April 30, 2007


Vá hvað ég er slappur bloggari! Það er nóg að gera í huggulegheitum hjá okkur litlu fjölskyldunni. Göngutúrar í skóginum, grill úti í garði, garðpartý með nágrönnunum og bara gleði gleði:-)
Í gær horfði ég á Babel, og ég var svo gagntekin af myndinni að ég áttaði mig ekki á því að kl. var orðin 01 um nótt, og ég átti að vera löngu farin að sofa. Ég er orðin svo viðkvæm fyrir afdrifum barna í kvikmyndum, að ég get varla horft á aðra hverja mynd án þess að vera í kleinu yfir því. Það var sama sagan í gær! Ég var límd við skjáinn, og fannst myndin meiriháttar spennandi. Ég kallaði meira að segja á Jákup einu sinni í gær og sagðist ekki þola meira!


Ég er að fara að halda Tupperware kynningu á miðvikudaginn. Það er ekki aftur snúið. Ég er orðin svona úthverfahúsmóðir (nema að ég bý í miðbænum:)hehe) sem tala ekki um annað en börnin mín og kökuuppskriftir. Hrikalegt. Það verður gott að byrja aftur í skólanum í haust. En mikið verður skrítið að skila litla hamstrinum mínum í pössun og sjá hana ekki í nokkra tíma á hverjum degi:( Tíminn er allt of fljótur að líða!

Ég er búin að panta miða heim í sumar, 26.júní. Ég veit ekki enn hversu lengi ég verð, því ég á eftir að panta miða til Færeyja, en ég reikna með ca viku. Enda verð ég í stofunni hjá ma+pa og þá er vika meira en nóg! Því miður....:(

Monday, April 23, 2007


Við fengum góða heimsókn í gær. Vigdís, Eiki og Sóldís María komu til okkar í mat. Ég hafði ekki séð þau í eitt ár, þannig að það var tími til kominn að hittast smá:) Svona kríli stækka mikið á einu ári! Takk fyrir komuna!
Við vorum að koma úr ungbarnasundi. Litla daman fór á kaf 4 sinnum, og það í fyrsta skipti. Einnig er hún búin að velta sér einu sinni yfir á bakið, en það var algjör slembilukka held ég, því hún sýnir engin merki um að ætla að endurtaka leikinn í bráð!:) Og svo er hún orðin ansi ráðrík daman. Jákup kennir mér um, segir að sér hafi verið nær að eignast barn með mér, hún sé með persónuleikann minn! Það er alla veganna greinilegt að uppeldið byrjar Núna. Hvernig fer maður svo að? Spyr sá sem ekkert veit!
Svo ætla ég að monta mig aðeins líka. Ég er að verða frænka! Guðrún Pálína og Kiddi The eru að stækka fjölskylduna um þriðjung!:-) Til lukku með það! Ég spyr þau kannski að þessu um barnauppeldið....alla veganna eru þau ekki búin að fórna höndum enn....hehe.....já eða konungsfjölskylduna bara, það gengur alla veganna ágætlega að búa til börn á þeim bænum.

Saturday, April 14, 2007

Sól og blíða

Já veðrið heldur áfram að vera æðislegt. Ykkur finnst svo gaman að heyra um það þarna heima á Frónni:-) hehe Við vorum í sólbaði í dag, og ég var að stikna í gallabuxum!
Ég fór út að hlaupa seinnipartinn með Lene, og leið eins og ofurhetju. Það er svo erfitt að drulla sér af stað og svo líður manni eins og nýrri manneskju á eftir.
Á morgun liggur leiðin í dýragarðinn með nágrönnunum. Við ætlum að ganga þangað og hring í gegnum garðinn, og taka nesti með okkur. Jákup er að fara að keppa í fótbolta og ætlar að hitta okkur þar eftir leikinn. Þá held ég að ég keyri með honum heim aftur í staðinn fyrir að labba:-)

Thursday, April 12, 2007

18 stiga hiti í dag?

Ekki slæmt það! Og ég fékk að sofa til kl.9.30:) Dagurinn byrjar vel...

Tuesday, April 10, 2007

Komin heim!

Við erum komin heim eftir frábært páskafrí á Íslandinu góða, þar sem við skírðum, fórum í þrítugsafmæli hjá Kristni bróður, borðuðum á okkur gat alla daga, hittum góða vini og fjölskyldu.
Töskurnar okkar eru enn fullar af dóti, letin er að drepa okkur! Ég datt í bókalestur, var að klára Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur sem mér fannst mjög góð. Borðaði páskaegg í morgunmat af því að ísskápurinn var tómur. Fór svo á fund upp í skóla sem ég þurfti ekki að mæta á, en það var allt í lagi, ég fékk göngutúr út úr því og barnið svaf. Við litla fjölskyldan stoppuðum svo í Netto á leiðinni heim til þess að fylla kæliskápinn af einhverju ætu -öðru en súkkulaði og appelsíni;)

Ég hélt að ég yrði döpur við það að koma heim í tóma íbúðina, eftir að hafa verið umkringd fjölskyldunni í 10 daga. En ég er bara kát í dag, sólin skín og það er alltaf gott að vera innan um eigin húsgögn. Það gerir það að verkum að ég hugsa að það verði enn erfiðara að flytja til Íslands en ég hef hugsað hingað til. Mikið eigum við eftir að sakna margs! En við höfum tæp 2 ár til þess að njóta þess góða við Danmörku, og svo er ég búin að tilkynna Jákup það að ég fari tvisvar á ári til Dk til þess að njóta alls sem ég sakna eftir að við flytjum!:-) Gott veður, lægra verðlag(ekki síst á kjúkling!), minni sveiflur í sólarbirtu, vinir og kunningjar, hjólatúrar og rólegheit. Það er sko gott að búa í Danmörku!

Við hendum inn myndum í dag. Af nógu er að taka:)