Friday, March 24, 2006

Tinky winky og bangsímon


Síðasti dagurinn á geðdeild í dag! Jibbí! Á mánudaginn fer ég til Esbjerg á taugadeild í 4 vikur. Ég á eftir að sakna þess að fá knús frá þessum litlu bangsímonum hérna í næstu íbúð.....

Thursday, March 16, 2006

Klinikin er öll að skána, og ég er búin að upplifa margt og mikið og búin að læra heilmargt. Ég er bara bjartsýn á sumarið og sumarvinnuna!
En letin í mér seinnipartinn er allt annar handleggur. Ég nenni hreinlega engu þegar ég kem heim með lestinni frá Vejle. Ég veit að ég ætti að drífa mig í ræktina, og veit hvað ég mér myndi líða vel eftir á, en ég sest bara og horfi á sjónvarpið. Ég kenni kuldanum um! Nenni ekki út að hjóla í þessum kuldabola.

Á morgun er fastelavnspartý (öskudagspartý) í húsinu okkar! Við ætlum að borða saman, slá köttinn úr tunninnu og skemmta okkur saman fram á kvöld. Ég er ekki búin að ákveða í hverju ég á að vera, en ég er enn með dimmisjón búninginn inni í skáp.... Spurning um að vera Tinky Winky enn einu sinni?:-)

Thursday, March 09, 2006

Boooooring

Ég er á Vejle spítala, á geðdeild. Nei, ég er ekki sjúklingur. En mér leiðist alveg hræðilega! Við eigum að vera hérna í praktík í 4 vikur og mest allur dagurinn fer í að láta sér leiðast og bíða eftir að geta stungið af! Þetta er nú ekki hægt, ég vill helst læra sem mest fyrir sumarið. Ég á ekki að sjá næsta sjúkling fyrr en eftir klst, þá er best að taka einn bloggrúnt og lesa alls konar óþarfa á netinu;-)
Annars er ekkert að frétta af lífi okkar. Við komum heim seinnipartinn, eldum mat og borðum, horfum á sjónvarpið, smyrjum nesti fyrir daginn eftir (ok, ég geri það....J er ekki svona skipulagður) og ég hoppa í sturtu fyrir svefninn til að geta sofið lengur daginn eftir og svo er það bara í rúmið. Svo vakna ég í síðasta lagi kl.6 til að ná lestinni kl.6.30. Mér finnst alveg súrrealistiskt að sitja í lestinni og sjá klukkuna verða 7.....þá er maður venjulega að skríða á fætur! Í byrjun námsins gat ég ekki einu sinni vaknað þá, og mætti alltaf of seint. Ætli þetta verði veruleikinn eftir nokkur ár, kannski þarf maður að vinna í allt öðrum bæ og taka lest á hverjum morgni...? Ullabjakk.
Hér er ennþá skítakuldi, frost á nóttinni, og snjór mest alla daga. Ég bíð spennt eftir að það fari að hlýna, en veðurspáin segir að það eigi ekki að hlýna fyrr en í byrjun apríl:( Ég gæti alveg þegið smá hlýju bráðum!

Tuesday, March 07, 2006

London




Já við skruppum til London á fimmtdaginn fram á sunnudag, og hittum Kristinn bróður og Pálínu. Það var meiriháttar ferð í alla staði og við ætlum að gera þetta að árlegum viðburði héðan í frá!:-)
Við náðum að gera svo margt á þessum stutta tíma, m.a. sáum við tvo söngleiki, fórum í rútuferð um London og borðuðum á sushi veitingastað. Og svo versluðum við að sjálfsögðu smá:) Ég fór líka út að borða með George Clooney, en sá ekki ástæðu til að skipta um föt, strigaskórnir og úlpan urðu að duga.....