Monday, August 31, 2009

31.ágúst

Þá er bara mánuður eftir af meðgöngunni í mesta lagi:) Ég verð sett af stað í kringum 1.október í versta falli. Vonandi verður ekki af því. Mér finnst bumban alveg vera búin að ná hámarki, amk hvað varðar pláss fyrir magasekk og önnur líffæri mín. Samdrættirnir eru líka orðnir ansi sterkir og litla snúllan greinilega orðin stór og sterk. Samt sem áður finnst okkur erfitt að átta okkur á því að það sé að koma lítill einstaklingur, enda mikið um að vera á heimilinu við að undirbúa flutninga. Við flytjum á laugardaginn, og Jákup er að vinna á Jótlandi alla vikuna, þannig að við erum búin að pakka ansi miklu. Það er hálftómlegt á heimilinu og hálftilgangslaust að taka til og þrífa. Það verður ótrúlega gott að ljúka þessu af og geta komið vöggunni og skiptiborðinu á sinn stað. Þá róast mömmuhjartað :)
Ég er að lesa alveg ótrúlega bók, sem hún Fjóla mælti með. Hún heitir "Handle with care" eftir Jodi Picoult, og ég er alveg föst yfir henni þessa dagana. Líka þegar ég á að vera að pakka ;) Mæli með henni.

Monday, August 17, 2009

Alveg finnst mér makalaust hvernig allt þarf alltaf að vera vesen. Aldrei ganga hlutirnir upp af sjálfu sér, án þess að maður þurfi að eyða hellingstíma í þá :(
Þegar við kláruðum námið rigndi inn um bréfalúguna pappírum sem við þurftum að taka afstöðu til, t.d. lífeyrissjóðir, tryggingar, A-kassar og annað. Á sama tíma vorum við auðvitað að gifta okkur og flytja, ásamt því að byrja í vinnu og svo skiptum við um banka og fórum fljótlega að leita að bíl. Pappírsvinnan endar einfaldlega aldrei. Í þessu pappírsflóði ákváðum við að nenna ekki að skrá okkur í A-kassa, sem er til þess gerður að tryggja manni laun ef maður verður atvinnulaus. Þetta kostar heilan helling og við sáum ekki fyrir okkur að verða atvinnulaus. Ég var líka búin að athuga rétt minn til fæðingarorlofs áður, og sá að ég myndi ekki lenda í neinum vandræðum.
Síðustu vikur hef ég verið að fá pappira senda varðandi fæðingarorlofið, hef skrifað undir og sent til baka, fullviss um að þetta væri klappað og klárt mál. Í dag hringdi svo kona frá kommúnunni og sagði að ég hefði ekki rétt til dagpeninga í ágúst vegna þess að ég væri ekki með ráðningasamning neinstaðar frá 1.ágúst til 1.sept og ekki meðlimur af A-kassa. Eftir 1.sept fæ ég hinsvegar fæðingarorlof frá Aabenraa. Ég fékk strax hnút í magann, því Jákup hætti að vinna á föstudaginn til þess að græja flutninga, og hann fær því eingöngu hálf laun fyrir ágúst. En ég þóttist nokkuð viss um að þetta væri vitleysa, og hringdi í stéttarfélagið okkar til þess að fá það á hreint. Konan þar sagðist oft heyra þetta, og alls ekki vera sammála, en því miður væri vandamálið mun minna ef ég væri meðlimur í A-kassa (damn!!). Ég ætti hins vegar að hafa samband við sjúkrahúsið hér og segja að þeir ættu að borga vegna þess að kommúnan neitaði, vegna samninganna sem við yngri læknar höfum gert. Það tók smá tíma, en virðist ætla að reddast. Ég kemst að því á morgun.
Mér finnst bara alveg ótrúlegt hvað allt þarf að vera flókið, og hversu meðvitaður maður alltaf þarf að vera um sinn eigin rétt. Saman ber þegar ég sótti um fæðingarstyrk hjá TR þegar ég var ólétt af Kristinu. Það tók engan smáræðis tíma, mörg símtöl og margar ferðir með reglurnar útprentaðar og yfirstrikaðar með gulu áður en ég fékk styrkinn! Og þetta bara af því að reglurnar eru svo margar að starfsfólkið hreinlega hefur ekki undan að muna þær sjálf.

Út í annað. Ég næ ekki upp í það að það sé að koma barn í heiminn eftir nokkrar vikur. Það er svo margt annað að hugsa um, að það er erfitt að setja sig í stellingar og bara skilja þessa staðreynd. Hún lætur sko finna fyrir sér, það er ekki málið, en að þetta sé raunverulegt er alveg jafn óskiljanlegt og í fyrsta sinn :) Ég hlakka samt mikið til að sjá þetta litla kríli, og kynnast nýjum persónuleika. Þetta hlýtur að fara að renna upp fyrir mér....eða amk þegar við erum búin að flytja? ;)

Helgin

Við áttum yndislega helgi á Sjállandi. Við skruppum í matarboð hjá frænda hans Jákups á Amager og gistum eftir það heima hjá Annie. Um morguninn tókum við því rólega, lékum okkur og leyfðum Kristinu að æfa sig á nýja hjólinu sem var tekið með í bílinn. Svo sóttum við Annie til kærastans og fórum saman á Bakken. Það átti að rigna um helgina eins og við erum vön (í hvert sinn sem við gerum eitthvað um helgar, rignir á okkur!) en það var æðislegt veður, heitt og sólríkt. Kristina fékk prinsessukórónu og fékk að prófa hin ýmsu tæki. Þessir bílar voru í uppáhaldi og hún fór margar ferðir í sitthvorum bílnum :) Hún var rosalega montin að sitja alein!
Hún fór líka í hringekju og margt annað með pabba, á meðan ég feitalínan tók myndir! Við keyrðum heim að verða 18, og Kristina sofnaði í bílnum í 2 tíma, alveg búin á því eftir daginn. Þá var ekki sjens að koma henni í háttinn, þannig að við fórum saman í bað, og settumst svo saman í sófann með sæng og kodda, popp og djús, og horfðum á Ice Age 2. Eftir það var henni dembt í rúmið, allt of seint, en hún sofnaði samt ekki fyrr en eftir mikið vesen og mótmæli. Svo vaknaði hún ekki fyrr en rúmlega 9 í morgun, þannig að það verður engin dagmamma í dag. Þar á maður að mæta fyrir kl.9. Pabbinn er kominn í frí til þess að fara að pakka fyrir flutningana, þannig að við verðum bara öll heima í dag!
Að lokum bumbumynd af mér og Heiðdísi, tekin á föstudaginn þegar við vorum með smá mömmuhitting heima hjá mér. Heiðdís komin tæpar 37 vikur og ég 35 vikur. Eigum við að giska á hvor eignast stærra barn? Hehe!
Hvernig getur maður gleymt því hvað síðasti mánuðurinn tekur á? Það er ekkert pláss þarna inni lengur, og krakkinn er búinn að vera að ærast alla helgina og virkilega boxa á rifbeinunum mínum. Ég má varla sitja lengur, þá er ennþá minna pláss. Ég er byrjuð að fá smá fyrirvaraverki af og til og grindin er virkilega farin að segja til sín. Maður sefur svo yndislega svona undir lokin eða þannig.