Eitthvað var þetta fucket up. En það er ágætt að vita að maður er meiri kvenmaður en karlmaður. Ég veit þó með vissu að ég er ekki karlmaður (hjúkket!) því ég HATA að rökræða hluti þar sem ekki er hægt að komast að neinni niðurstöðu! Komst að því enn og aftur í kvöld þar sem við Jákup vorum heima hjá systur hans að borða. Við vorum að rökræða gáfur og hvort að það sé gáfa að vera hamingjusamur!%!$#! Argggggg..... Ég verð því miður alltaf frekar ergileg við þessar kringumstæður sem er ekki sérlega gáfulegt:)
astatedda
húsmóðir í Rødekro
Saturday, March 26, 2005
| Your Brain is 60.00% Female, 40.00% Male |
Your brain is a healthy mix of male and female You are both sensitive and savvy Rational and reasonable, you tend to keep level headed But you also tend to wear your heart on your sleeve |
What'>http://www.blogthings.com/genderbrainquiz/">What Gender Is Your Brain?
Tuesday, March 22, 2005
Prófið gekk prýðilega alveg hreint og nú er ég komin í páskafrí. Eins og mig hlakkaði mikið til, er ég alveg komin með nóg af þessu fríi núna!:) Jákup er í skólanum allan daginn að læra og ég nenni ekki á fætur á morgnana! Svo er ég að láta mér leiðast og skreppa út að skokka til að hafa eitthvað að gera. Ég væri helst til í að vera heima á Íslandi að hjálpa mömmu að flytja...
Best að eyða þessu fríi í að skoða skattskýrsluna mína. Ég var loksins að komast að því hvernig ég fæ transport peningana í vinnunni niðurgreidda í skatti. Stupid me! Ég þarf að reikna út kílómetrafjöldann fyrir hverja einustu vakt, draga frá 12km hverja leið, og fylla restina inn í skattskýrsluna. Ég hef ekki gert þetta síðan ég byrjaði að vinna, og ég má víst fá þetta reiknað út 3 ár aftur í tímann. Eins gott að það er vika eftir af páskafríinu......:S
Thursday, March 10, 2005
Jæks!!
Vikan líður svo hratt, ég bara skil þetta ekki. Það er sennilega af því að það er próf eftir viku og mér finnst ég geta haldið endalaust áfram að lesa fyrir það:( Ég er að bilast yfir lyfjafræðinni!
Síðasta helgi var mjög fín. Við Jákup fórum til Köben og fórum í leikhús á laugardeginum. Það var mjög gaman, og skemmtilegt að gera eitthvað nýtt! Eftir það hittum við Herborgu og Bjössa og fórum með þeim út að borða á tælenskum veitingastað á Istedgade. Maturinn var virkilega góður og ekki skemmdi félagsskapurinn fyrir;) Síðan fórum við á kaffihús og fengum okkur nokkra bjóra og spjölluðum til rúmlega eitt. Svo var ætlunin að við myndum gista í Köben og fara heim á sunnudeginum, en þar sem við gengum framhjá lestarstöðinni á leiðinni heim til Herborgar og Bjössa, þá ákváðum við bara að hoppa í næstu lest heim og fara að sofa í eigin rúmi! Það var svo vibbalega kalt í DK þessa helgi að mann langaði ekkert sérstaklega að vera mikið á ferðinni hvort eð var. Það var líka ágætt að hafa allan sunnudaginn í lestur. Það eina var að ég sveik Vigdísi um að hitta hana á kaffihúsi á sunnudeginum:( Ég ætlaði að kíkja á bumbuna áður en bumbubúinn lætur sjá sig:) Ég verð bara að hitta hana í apríl í staðinn....
Vá hvað ég er eitthvað andlaus allt í einu... Já, skóli á morgun og yfirferð með lesfélaganum fyrir próf, æfing, og svo er pókerkvöld hjá strákunum. Jákup keypti pókerborð um daginn með öllu tilheyrandi, þannig að ég verð að fara að æfa mig í laumi:) hehe Á laugardaginn á Lene vinkona afmæli og þar sem hún er í sumarbústaðaferð með bekknum, ætlum við Jákup og Simon kærastinn hennar að koma henni á óvart og kíkja uppí bústað með köku.
Ég er alveg komin með nóg af kuldanum hérna! Það er við frostmark alla daga og allt að 12 stiga frost á nóttunni! Hvað á þetta að þýða??? Ég nenni ekki að vera gegnfrosin á lærunum á leiðinni í skólann lengur! Þó er þetta kannski skömminni skárra en veturinn sem ég var á 1.önn, þá rigndi stöðugt í 2 mánuði og maður var alltaf rennandi blautur fyrstu tvo tímana í skólanum. Enda vorum við ansi oft kvefuð í bekknum þá......það var ekki hægt að heyra í kennaranum fyrir hnerri og nefsogi! Alltaf er samt hægt að kvarta yfir einhverju:) Ekki satt Sigrún?;) hehehehe
Thursday, March 03, 2005
Ég gleymdi alveg að segja frá því að ég er að fá alla fjölskylduna í heimsókn á næstunni! Jeii! Fyrst ætla mamma og Dóra systir að koma í heimsókn 11. til 16.apríl, og svo koma pabbi og Gunnsi bróðir 18. til 26.apríl!! Þau verða s.s. öll á Íslandi saman til að halda upp á afmælið hans Kristins bróður þann 17.apríl:) Svo kemur Kristinn með Guðrúnu og Tedda strumpalingi í lok júní! Það verður svakalega gaman að fá alla í heimsókn og geta loksins sýnt systkinum mínum hvernig mitt líf er, því þau hafa aldrei komið í heimsókn áður.
Ég hugsa sjaldan út í það hvað ég er eiginlega búin að búa hérna lengi. En ég er núna búin að búa í Danmörku í rúmlega 4 ár, fyrir utan hálfa árið sem ég bjó í Köben árið áður en ég flutti endanlega. Mamma og pabbi lærðu líka í Odense þegar ég var lítil, og þá bjó ég hér í 4 og hálft ár, sem mér hefur alltaf fundist vera svo langur tími! En nú er ég bráðum búin að búa hérna lengur en þá, og ég er bara rétt hálfnuð með námið! Jæks.... En svona er það nú, skrítið þetta líf. Enda fæ ég að heyra það oftar og oftar hvað ég sé að verða dönsk:S En það er nú lítið við því að gera:) Og það á bara eftir að versna!! hehehe
Tuesday, March 01, 2005
Úffffff
Shit hvað ég er uppgefin núna! Ég var að koma úr fyrsta spinning tímanum mínum í heilt ár! Ég hef ekki farið í spinning síðan ég skipti um líkamsræktarstöð og ákvað að það væri kominn tími til að testa nýju skóna sem mamma og pabbi gáfu mér í jólajöf. Þeir voru líka mjög góðir, og alveg án efa flottustu skórnir í salnum;) Kennarinn var svooo mikil grybba að ég þorði ekki annað en að hálfdrepa mig á hjólinu, enda var ég fremst með öllum strákunum, sem greinilega voru þaulvanir þessari íþrótt, og þar af leiðandi þrjóskaðist ég ennþá meira!:) Svo fór ég eins og undin tuska í sturtuna, og hitti þar kennarann aftur, nema þá brosti hún hinu blíðasta og spurði hvar ég hefði verið í spinning áður..... að það væri greinilegt að þetta væri ekki fyrsti tíminn minn. Þá skipti ég snarlega um skoðun á gellunni, þetta er uppáhaldskennarinn minn héðan í frá!:) hehehe En ef ég er ekki alla veganna hálfu kg léttari eftir þessi átök þá veit ég ekki hvað!
Jákup var heima og eldaði fyrir mig kjúklingabringur og gróf hrísgrjón. Hann spurði þó fyrst hvort mig langaði í McD í dag en ég er svo mikið hörkutól að ég stóðst freistinguna og kaus hollustu:-) Enda er ég á góðri leið, búin að missa 2,5kg, bara 2,5kg eftir að fyrsta takmarkinu:)
