astatedda
húsmóðir í Rødekro
Sunday, October 28, 2007
Thursday, October 18, 2007
Iceland here we come
Við sitjum hérna í morgunrökkvinu mæðgurnar, nývaknaðar og búnar að borða hafragrautinn okkar. Pabbi borðaði með okkur graut áður en hann lagði af stað í köfunarferð í Rauðahafið með Michael vini sínum. Hann er búinn að vera hjá okkur í tvo daga, kálaði á sér bakinu á gestadýnunni okkar og eldaði fyrir okkur dýrindis nautasteik í gær. Næst sjáum við hann í janúar:( Þá verðum við vonandi búin að kaupa okkur nýtt rúm, þannig að gamla rúmið getur verið í gestaherberginu. Planið er að demba sér í rúmleit þegar við komum frá Íslandi. Spurningin er bara hvort við eigum að fá okkur venjulegt rúm eða fjarstýtt með elevation??
Ég fann gamla unglingabók sem var í miklu uppáhaldi hjá mér í gamla daga og las hana á einu kvöldi á sunnudaginn. Þvílík nostalgía!:D Bókin heitir *Ég get séð um mig sjálf* eftir *Liz Berry*. Man einhver eftir henni?
Alla veganna, við eigum eftir að pakka, en við leggjum af stað til Köben um hádegið. Við eigum ekki flug fyrr en í kvöld, en ætlum að hitta Annie fyrst. Hún er farin að sakna litla ólátabelgsins.
Endilega látið vita ef þið hafið tíma og viljið hitta okkur næstu vikuna!
