Að gefnu tilefni
langar mér að benda á að nafn dóttur minnar beygist á eftirfarandi hátt:
Kristina
Kristinu
Kristinu
Kristinar
Það segja nánast allir "dótið/stólinn/rúmið hennar Kristinu" og þetta sker mig í eyrun. Þetta er ekki algengt nafn og þess vegna skiljanlegt að fólk er í vandræðum með að beygja það, en þið getið tekið þetta til umhugsunar:)

4 Comments:
móttekið! held að ég beygi nafnið hennar alltaf vitlaust!
Ég hef einmitt oft hugsað út í þetta þegar ég heyri þig fallbeygja nafnið svona í eignarfalli, því bæði skv. orðabók Háskóla Íslands, og mannanafnaskrá þá fallbeygist nafnið Kristina til KristinU í eignarfalli. Nafnið Kristín fallbeygist hins vegar til KristínAR - en það er líka allt annað nafn og ekki nafnið sem þið gáfuð henni.
Þannig að það er ekkert skrítið að fólkið í kringum ykkur fallbeygi það svona "öðruvísi" :)
Gleymdi - best að ég bæti því við að ef þið viljið láta fallbeygja nafnið á þennan hátt þá skulum við reyna að muna það framvegis :)
Ok. Þar fékk ég það!
Post a Comment
<< Home