Sunday, March 29, 2009

Sunnudagar geta verið ferlega nice! Við fjölskyldan tuskuðumst af stað í morgun, eftir nýja sumartímanum, á hjóli inn á lestarstöð og þaðan með lest til Svendborg. Keyptum okkur nesti í bakaríinu í staðinn fyrir að smyrja, að ósk Jákups. Hann valdi líka úrvalið. Svo skelltum við okkur í sund í innilaug með barnalaugum og rennibraut. Húsmóðirin synti 10 ferðir og feðginin fóru eins margar ferðir og þau gátu á meðan í rennibrautinni! Eftir sund smurðum við okkur inn í krem og borðuðum svo nestið okkar. Það reyndist vera alls konar gúmmilaði, vínarbrauð og annað. Kannski ekki alveg það sem ég hefði valið ;) Í lestinni á leiðinni heim sofnaði Kristina í fanginu á mér, sem var bara notalegt. Við settumst á Barresso og fengum okkur icecoffee og skunduðum svo heim á leið. Nú eru allir búnir að fá lúrinn sinn og að verða tilbúin til að hitta Íslendingafélagið að borða bjúgu og uppstúf, saltkjöt og baunir! Namminamm :)
2 vikur í Ísland!:D

Thursday, March 26, 2009

Það er alveg að koma helgi -aftur. Mér finnst þessi vika hafa liðið svakalega hratt! Enda var ég á næturvakt á mánudag, svaf þriðjudag og miðvikudag var ég heima með Kristinu lasna. Þannig að ég er bara búin að vinna venjulegan vinnudag í dag :) Kristina er þó enn lasin og amma hennar passaði í dag, og sennilega á morgun líka. Á morgun erum við jákup bæði að vinna til kl.18 og ætlum að fara út að borða saman og í bíó eftir það, ef við getum látið okkur hafa það, þegar snúllan er lasin... Hún er reyndar að hressast. Ég er spennt að sjá hvort ég sleppi við Novo virusinn sem gengur á deildinni minni eins og er! Ég var nýbúin að fara inn að tala við tvo sjúklinga þegar mér var tilkynnt að stofunni yrði lokað vegna víruss! :S Spennt er kannski ekki orðið...!

Annars var ég að reyna að sjá fyrir mér hvernig lífið verður með tvö börn eftir rúmlega ár, og bæði í fullri vinnu. Það er nú einu sinni þannig að maður á bara rétt á "fyrsta veikindadegi barns" í hverjum veikindum, og svo verður maður að finna sér pössun. En hvað gerir maður þegar barnið leggst í viku veikindi, með hlaupabólu eða annað? Ekki getur maður endalaust fengið vini og kunningja til að passa? Við yrðum þá að nýta okkur einn dag hvort (þótt það sé strangt til tekið ekki leyfilegt) og svo ljúga því að við séum sjálf veik restina af vikunni! Þetta verður spennandi. 2 börn = 2svar sinnum fleiri veikindadagar.

Ég er gengin 15 vikur í dag og er strax farin að finna fyrir grindinni. Jibbíkóla! Ég man ekki hvenær það kom síðast, en örugglega ekki svona snemma. Þó kom það of snemma síðast. En þá var ég samt ekki stöðugt að halda á 14 kg barni ;) Þetta verður spennandi. En ég á bara eftir að vinna næturvaktir í 2 mánuði í viðbót, eftir það vinn ég bara dagvinnu.

Wednesday, March 11, 2009

Fjölskyldustækkun

Bráðum bætist eitt svona kríli í litlu fjölskylduna, nánar tiltekið í kringum 17.september! Við vorum í sónar í dag og allt leit vel út. Litla krílið hefur það gott og er nú þegar farið að taka sitt pláss, og ég hætt að passa í buxurnar mínar. Það er mikil tilhlökkun hér á bæ:)
Við Kristina komum í 6 daga heimsókn 12.apríl til 18.apríl til Íslands. Vonandi náum við að sjá sem flesta! Svo komum við öll í byrjun júní í nokkra daga. Í lok júlí hætti ég að vinna, og í ágúst flytjum við sennilega á nýjar slóðir.

Saturday, March 07, 2009

Ýsa í kvöld, lamb á morgun

Jákup keypti vagn aftan á hjólið í vikunni, sem Kristina getur setið í. Við prufukeyrðum hann áðan, skruppum niður í bæ á grænmetismarkaðinn og keyptum ávexti og grænmeti fyrir heila viku. Svo fundum við þetta fínasta lambalæri og ætlum að skella því í ofninn á morgun. Ekki nóg með það, heldur var ég að kaupa heilann kassa af ýsu af Steinari hennar Kötlu og raða í frystinn, þannig að við ættum ekki að svelta á næstunni;)
Í gær eldaði ég súpu úr rauðum linsum, lauk, hvítlauk og tómötum og bakaði valhnetubrauð til meðlætis. Það var alveg hreint ljómandi gott! Hluta af brauðinu var líka hent í frystinn;) Það mætti halda að það væri að koma vetur hjá mér, eins og ég er í búskapnum! Það koma tímabil hjá mér þar sem ég er að prófa eitthvað nýtt á hverjum degi, og ég er alltaf að grúska í uppskriftum. En þess á milli dettur mér ekkert í hug í kvöldmatinn og elda sömu 8 réttina eða svo til skiptis. Ég er örugglega ekki ein um það!
Andreas vinur hennar Kristinu ætlar að koma hingað að leika á eftir og borða pönnukökur með okkur. Við ætlum að sjá hvort við getum ekki platað ofan í þau smá fisk:D
Okkur vantar barnapíu eitthvert kvöldið. Aldrei að vita nema að foreldrar hans Jákups séu til í hlutverkið. Við fengum gjafakort á Eydes kælder frá Annie í útskriftargjöf, og langar að fara út að borða og í bíó saman.

Monday, March 02, 2009

Það hlaut að koma að því

Já við erum búin að vera svo lánsöm og ánægð með hvernig allt hefur gengið upp hjá okkur undanfarið, að það var kominn tími á smá óheppni. Maður getur ekki verið heppinn alveg stöðugt, er það? Það er sem sagt verið að úthluta turnus númerum, fyrir kandídatsárið okkar, og við fengum nr.343 af 368 númerum. Þetta þýðir að við getum í besta falli fengið stöðu í 1,5klst keyrslu frá Odense, eða við verðum að flytja. Það kemur þó endanlega í ljós í apríl, þegar við veljum stöðu. Við sem vorum svo innilega að vona að við gætum verið áfram í Odense og að Kristina gæti klárað hjá dagmömmunni sinni áður en hún byrjar á leikskóla 3ja ára. Auk þess sem við þekkjum ENGAN í Esbjerg eða Sönderborg eða Hjörring, eða hvar sem við nú lendum. Fólk lifir þetta af, en þetta er engin óskastaða.
Annars gengur vinnan bara vel. Mér finnst ég vera ansi mikið á kvöld-næturvöktum þessa dagana, en það hittir bara svona á í bili. Ég er að vinna á stærstu taugadeild í Danmörku, og á nóttunni og um helgar er ég eini læknirinn með tvær 20 sjúklinga deildar með tilheyrandi snatti, auk forvaktarfunktionar. Og bakvaktin er bara með símavakt, er ekki í húsinu. Þannig að það er ekki mikið um svefn, mesta lagi 1-2klst á 17 tíma vakt, ef ég er heppin. Þetta eru viðbrigði, en það hefur allt gengið hingað til. Jákup er líka mjög sáttur á sinni litlu deild, með mun rólegri vaktir en ég, auk þess sem hann þarf ekki að taka næturvaktir, því bakvaktin sinnir því.
Kristina talar meira og meira og er voða góð að sofa þessa dagana eftir smá tímabil með eyrnabólgur og órólegheit eftir flutninga og annað. Hún er mikið að velta því fyrir sér þessa dagana hvort maður kúki og pissi í bleyju eða kopp, og við erum búin að reyna nokkra daga að taka af henni bleyjuna. En ég held að hún sé ekki alveg tilbúin, það var eins og hún reyndi að halda í sér þangað til við sáum ekki til, og pissaði svo í buxurnar. Hún vill gjarnan setjast á koppinn, en það er sjaldnast að það komi eitthvað í hann. En hann er spennandi, kannski kemur þetta fljótlega. Hún sagði mér samt um daginn að hún væri ekki stór, hún væri baby, og að hún pissaði þess vegna í bleyju. Caput :)